<xmp> <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3238927?origin\x3dhttp://rotturnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script> </xmp>
mánudagur, nóvember 26, 2007

Eins og glöggir lesendur síðunnar ættu að sjá þá hefur hún breyst. Sem sagt Guðrún, Sella, Hrebbna og Telma ættu amk að taka eftir því ;) þar sem ég held að þetta séu um það bil lesendurnir. Hehe.
Annars er bara kominn tími til að hressa aðeins upp á þessa síðu og reyna að fá fleiri til að vera memm í kommentum og solleiðis! Endilega svarið nú meilinu sem ég sendi ykkur og ef þið hafið ekki fengið meil frá mér reynið þá að fá einhvern til að áframsenda því á ykkur.
Sjáumst hjá Hrebbnu 27. desember.
Ranted at 10:03 e.h.♥

|


fimmtudagur, nóvember 22, 2007
Hæ hó Dísir nær og fjær!

......ég held að það hafi aldrei verið bloggað svona mikið hérna í háa herrans tíð - en ég ákvað að bæta einni færslu við :)

Langaði bara svo að fá öll heimilisföngin hjá Dísunum fyrir jólakortasendingarnar! Sérstaklega hjá útlandadísum - ég er að vísu með heimilisfangið hjá Gyðu, Hrebbnu og Sellu en mig vantar hjá Telmu.

Endilega skellið inn heimilisföngum og líka þið hinar sem búið ennþá á Íslandinu fagra - er ekki AJ komin í nýja íbúð t.d.???

Annars langaði mig líka að bæta því við að hann litli hennar Maríu hefur fengið nafnið Friðbert Þór og þar með hefur pabbi hennar Maríu fengið eitt stykki nafna og svo á Óli hennar Maríu nafnið Þór sem millinafn þannig að núna bera bæði börnin sama millinafn og foreldrar sínir.

Hlakka síðan til að hitta ykkur allar í jólasaumó :)

p.s. heimilisfangið mitt má finna á forsíðu bloggsins okkar! www.gudrunogstyrmir.com
Ranted at 7:30 e.h.♥

|


sunnudagur, nóvember 18, 2007
JÓLASAUMÓ HJÁ HREBBNU ;O)

Ákvað að koma með smá línu hérna svo að umræða okkar fari ekkki bara í gegnum kommenta kerfið hér ;o) Hrebbna hefur boðist til að halda jólasaumaklúbb Dísanna 2007 í heimkynnum foreldra sinna í Kópavoginum að þessu sinni...

Umræða er hafin hvenær best er að halda hann og hefur undirrituð Sesselja, Gyða Mjöll og Telma (a.k.a Kaupmannahafnarbúarnir) mælt með þeim dýrðardögum 27.des eða 28.des.... hvað hentar ykkur best?? Ekki vitlaust að reyna að negla niður dag svo að útlendingar hópsins og aðrar Dísir geti skipurlagt tímann sinn vel og við getum allar hisst ;o)

Njótið jólaundirbúningsins og hlakka til að hitta ykkur - með öðrum orðum;

"Ég HLAKKA SVO TIL, ÉG HLAKKA ALLTAF SVO TIL....EN ÞAÐ ER LANGT OG SVO LANGT AÐ BÍÐA OG ALLIR DAGAR SVO LENGI AÐ LÍÐA....."
Ranted at 3:16 e.h.♥

|


fimmtudagur, nóvember 01, 2007
HVAÐ ERU ALLIR DØD EÐA???????

Ja hérna hér - það mætti halda að við værum komnar í gröfina allar saman....svo mikið er lífið hér á síðunni ;o) Ekki það að ég geti svo sem mikið sagt en ég ákvað allavegana að skrifa hérna nokkrar línur.

"Dísirnar í Kaupmannahöfn" standa sig með eindæmum vel í hitting og í kvöld er búið að plana videókvöld með poppi&kók þar sem íslensk hámenning er í gangi - MÝRIN VERÐUR SÝND STUNDVÍSLEGA KL.21 - hehe ef þið viljið skella ykkur.

Annars gengur lífið sinn vanagang hér í Dejlige Denmark - bara skóli skóli og mikið meiri skóli!! Allt að verða tjúll núna í verkefnavinnu, hópverkefnum, fyrirtækjaheimsóknum og lestri...próf eftir 3 vikur svo það er um að gera að massa þetta!! Fyrir þá sem ekki vita þá er ég í mastersnámi í alþjóða markaðsfræði og stjórnun í CBS...hehe bara svona ef þið viljið vita ;o)

Svo langaði mig til að óska nýjustu Dísarmeðlimina velkomna:
* Prins ÓIafsson fæddur 3. september og því er töffarinn orðin 2 mánaða - innilega til hamingju María, Óli og Bára
* Lísa María Styrmisdóttir fædd 12.september og skvísan því orðin 7 vikna - til hamingju Guðrún, Styrmir og Júlía Dagbjört

Einnig vil ég óska dísunum Sunnu og Maríu innilega til hamingju með afmælið ;o)
Sunna núna 22. október og María Ósk á morgun 2. nóv.

Svo er bara forvitnin að fara með mig: hvað er að frétta af ykkur stelpur? Ekkert slúður........hummm

....Eitt ennhefur enginn saumaklúbbur verið - ekkert sem þið þurfið að segja okkur útlandaskvísunum - auk þess er ekki skemmtilegt að reyna að halda eitt stykki jólasaumó þegar liðið kíkir á klakann?? ég er persónulega mjög spennt yfir því... svona líka rétt áður en næsta Dís flytur til Köben líka - vó hvað ég hlakka til að fá þig Telma mín.

En yfir og út - bíð spennt eftir kommentum, slúðri, fréttum og já bara ölllllllluuuuuuu
Ranted at 6:10 e.h.♥

|