mánudagur, júní 27, 2005
Ég bara á ekki til orð, ég er miður mín! Hvurslags ógeðis er þetta þegar konu í Pakistan er refsað fyrir meint hjúskaparbrot BRÓÐUR síns!!! Ógeðið má sjá hér, vona að mennirnir munu stikkna í helvíti!
Ranted at 12:54 e.h.♥
þriðjudagur, júní 21, 2005
Jæja þar sem spenna fyrir næsta saumó er orðin óbærileg, amk hjá mér og Sellu miðað við commentin ;) þá langar mig að forvitnast um það hvort sumarhátíðarnefnd hafi núna einhverjar dagsetningar í huga fyrir ööö......sumarhátíðina!?
Var að skoða myndir síðan í fyrra og mundi þá hvað mér fannst gaman og mig langar aftur :) Hvað segiði dömur?
Ranted at 4:57 e.h.♥
mánudagur, júní 20, 2005
Jæja stúlkukindur.Núna ætla Benný og Telma að halda saumaklúbb þó fyrr hefði verið. Hann verður haldin 3. júlí og staðsetning verður ákveðin þegar nær dregur.
Við höfum ákveðið að gera þetta saman og svona þar sem að okkur finnst lélegt hversu langt er liðið síðan síðasti saumaklúbbur var. Við erum búnar að ákveða það að þeir sem hafa ekki staðið sig í halda saumaklúbinn verða rasskelldar á beran bossan og verður tekið upp á videótape. Það verður svo sýnt í hverjum saumaklúbb til áminningar þeim sem að sleppa sínum skiptum.
Vonandi verður góð mæting. Því þeir sem mæta ekki verða líka flengdir og munum við senda tapeið í strákarnir á stöð 2 (Auddi er besti vinur hennar Bennýjar og Sveppi er besti vinur hennar Telmu og Pétur þekkir okkur báðar). Og hananú ;)
Kveðja Benný og Telma sem er veinandi í símanum núna yfir að geta ekki skrifað inn á síðuna. :)
Ranted at 4:54 e.h.♥
miðvikudagur, júní 15, 2005
Bjútífúl ljóð Benný mín. Þú átt framtíðina fyrir þér!!Sko þetta með saumaklúbbsmál.. ég var að spá í hvort að tölvusnillinn hún Gyða gæti ekki bara gert svona dagatal inn á heimasíðuna og þar gætum við sett alls konar merkilega daga. Það gætu bara allir sett inn. Svo myndum við bara merkja við þá daga sem saumaklúbbarnir eiga að vera, hver eigi að halda hann og þannig lagað. Svo gæti fólk sett inn afmælisdaga, bæði sína og barnanna sinna og svoleis. Hvernig líst ykkur á?
Ranted at 5:05 e.h.♥
sunnudagur, júní 12, 2005
Jæja stúlkukindur. Mér fannst orðið tímabært að eh yrði skrifa hérna inn. Þannig að ég ákvað að skrifa þetta. En hvað er málið með saumaklúbbin. Er hann dáinn????? Hvernig væri að fólk færi að standa sig í að halda saumó hérna. Það þarf greinilega að búa til nýjan lista og einhver einn ákveðinn þarf bara að hafa listann og segja þú og þú og þú ert næst. Ég hef allavena svo gaman að hitta ykkur. En ég veit að ég á ekki að halda fyrr en desember og ég er búin að ákveða dagsetninguna. Það verður 24 desember vil bara láta vita með góðum fyrirvara til þess að þið getið tekið dagin frá. Munið það 24 DESEMBER.
Annar langaði mig að segja ykkur frá því að ég er gengin í votta jehóva þannig að það verða ekki jól hjá mér framar. Þannig að í næsta saumaklúbb ætla ég að fá að taka með mér prestinn og fá hann til þess að fræða ykkur um nægjusemi. Þetta er alveg rosalega skemmtilegt. Góður mórall og svo fullt af elskulegu fólki.
Svo er ég að bíða eftir að Katrín og Anna Lára fái símhringinu frá dúpu lauginni því þær skráðu sig víst í þáttin. Ég man líka eftir að einhverntíman skráðu þær sig í fyndnasta mann íslands og vitir menn, öllum til mikillar undrunnar að þá unnu þær ekki.
ok afskakið bullið héra, er í vinnunni og leiðist alveg hrottalega. En ég var samt ekki að ljúga að ég er gengin í vottana. Ég meina það er svo stutt að fara.
En stelpur ég er búin að semja star wars ljóð sem ég ætla að deila með ykkur.
Star Wars tvisvar ég hef séð
og það góða að lokum ei réð.
Anakin varð hinu illa að bráð
En Logi og Lilja urðu honum ekki háð.
Yoda okkar mikla hetja
Vildi ein neinn mann letja.
Og geislasverð sitt Obi Wan á loft hóf
og fætur Anakin svo hjó.
Sith var jú keisarinn mikli
sem keisarveldi vildi
Og Anakin í blindni honum fylgdi.
Já ég get sko sagt ykkur það að fólk hefur tárast yfir þessum mikla skáldskap mínum
Að lokum vilja ég segja að ef þið eruð í vondu skapi farið þá bara í Hagkaup og kíkið á Darth Veider grímuna og ýtið á takkana á grímunni og ég LOFA þið farið í gott skap. Allavena hefur þessi gríma komið mér í MJÖG gott skap í ófá skipti.
En ég kveð loksins og stelpur endilega kommentið. Alltaf gaman að fá komment. :) Og sá sem kemur með skemtilegasta kommentið fær frumsamið ljóð frá mér í verðlaun ;)
sæl að sinni
Palpatine kanslari.. Djókk.... þetta er nú bara hún Bennsla brennsla
Ranted at 4:14 e.h.♥
mánudagur, júní 06, 2005
Nú er sumar, gleðjumst.....Jæja stelpur, hvað segiði þá.... alveg hrikalegt hvað eru fáar sem skrifa hérna inni tilgangslaus blogg sem skemmtilegt er að lesa, ákvað því að breyta því.
Var að spá upp á Sumarhátíð Dísanna hvaða dagur eða helgi hentar ykkur, svo ég geti platað Helgu Sjöfn til að koma og skipuleggja eitthvað krassandi fyrir okkur!!
Viljiði dagsferð, grill og/eða næturgistingu?
Endilega kommentið
Kv. Sella skipulagsglaða ;o)
Ranted at 5:22 e.h.♥
