<xmp> <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3238927?origin\x3dhttp://rotturnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script> </xmp>
miðvikudagur, maí 23, 2007
Blessaðar dömur :)

ég er nú stödd hjá Guðrúnu og Styrmi í Stokkhólmi, fer reyndar til baka til Köben eftir 3 tíma. Guðrún og ég vorum að tala saman og við verðum báðar heima í lok júlí og viljum þess vegna endilega benda á að þetta sé alveg ideal tími fyrir sumarhátíðina!!! Hvað segiði Íslandsdísir, ekki stemning fyrir því? Guðrún verður auðvitað "há"ólétt svo hún óskar kannski ekkert sérstaklega eftir að gista í tjaldi, en það verður amk eitthvað að vera gert þegar við erum flestar á Fróninu :) Endilega kommentið hvernig ykkur líst á þetta.

Kveðja frá Gyðu og Guðrúnu í Stokkhólmi :)
Ranted at 12:08 e.h.♥

|


fimmtudagur, maí 10, 2007


Alltaf gaman að bjóða í partý og líka þegar þetta er EUROVISION er komin fílingurinn í liðið?

Sella kveður í kosningahug ;o)

Ranted at 12:51 e.h.♥

|


þriðjudagur, maí 08, 2007
Gleðilegar kosningar :)

Já svona eru stjónmálin í hnotskurn :o)) Nonni litli var aðeins farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni og einn daginnfór hann til pabba síns og spurði hann: "Hvað eru stjórnmál?" Pabbi hans svaraði: "Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á þennanhátt: Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla mig Auðmagnið.Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldunum og þess vegna skulum við kalla hanaStjórnvöld. Við erum til þess að sinna þörfum þínum svo við skulum kalla þig Fólkið.Við getum síðan haldið áfram og kallað barnfóstruna Öreiga. Litla bróður þinn skulumvið kalla Framtíðina. Farðu nú og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og saman.

Þannig að Nonni litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem pabbi hans sagð ihonum. Um nóttina vaknar hann upp við grátinn í bróður sínum. þegar hann kemur inn í herbergi hans finnur hann fljótt að bleian hans er blaut og mikil fýla af henni. Hann fer inn í svefnherbergi foreldra sinna og finnur mömmu sína sofandi. þá fer hann að herbergi barnfóstrunnar og finnur að hurðin er læst. Hann kíkir inn um skráargatið og sér föður sinn í rúminu með barnfóstrunni.

Að lokum gafst Nonni litli upp og fór aftur í herbergi sitt og sofnaði. Næsta morgun segir hann við föður sinn. "Pabbi, ég held núna að ég skilji hvaðstjórnmál ganga út á." Gott segir faðirinn, segðu okkur frá því. þá sagði Nonnilitli: " Jú sjáðu til, á meðan Auðmagnið riðlast á Öreigunum er Ríkisstjórnin steinsofandi. Fólkið er hundsað og Framtíðin er í djúpum skít...
Ranted at 8:53 e.h.♥

|


föstudagur, maí 04, 2007

Ranted at 12:47 f.h.♥

|