miðvikudagur, október 26, 2005
Halló dísir,ég er búin að henda inn mínum myndum frá sumarhátíðinni 2004 :)
Njótið!
Annað mál, þá erum við Sunna í árshátíðarnefnd en þar sem ég er að fara út til Sverige í janúar þá get ég því miður ekki sinnt mínu starfi sem árshátíðarskipuleggjandi, því miður :( Þannig að við þurfum að finna einhvern til að taka við af mér og vera með Sunnu í þessu. Við Sunna leggjum kannski höfuðið í bleyti og finnum það út :)
Ég var síðan eitthvað að hlera Katrínu og ég held að hún ætli að halda saumó í byrjun nóv, er það ekki Katrin?
Anyway, við Styrmir erum byrjuð með blogg sem þið getið séð hér , svona fyrir ykkur til að fylgjast með Svíþjóðar ævintýrinu :)
Hlakka síðan til að hitta ykkur í saumó fljótlega.
Ranted at 10:18 e.h.♥
miðvikudagur, október 19, 2005
Hæ skvísur,Viljið þið vita hvort einhver hafi eytt ykkur útaf msn-inu hjá sér?
ef svo er, smellið þá hér
Hjá mér voru fjórir, þrír gamlir skólaverkefnisfélagar og ég held að ég hafi eytt þeim út um leið og verkefnin voru búin sjálf og svo ein hér í saumaklúbbi dísanna! verð nú bara að viðurkenna að ég er pínu móðguð.....ha!
Ranted at 10:51 e.h.♥
miðvikudagur, október 12, 2005
Hellú, ég er búin að henda inn mínum myndum frá sumarhátíðinni inná myndasíðuna okkar, bara í sömu möppu og Gyða bjó til!Enjoy!
ég ætla síðan að grafa eftir myndunum mínum frá sumarhátíðinni sem var í fyrra, á einhverjar myndir frá því
Ranted at 9:19 e.h.♥
mánudagur, október 10, 2005
Halló skvísudísir,Mér finnst alltaf svo mikil dramatík hjá okkur varðandi hvenær næsti saumó verði og hver eigi að halda og bara allir alltaf að tapa sér. Ég veit ekki betur en að það sé rétt um mánuður síðan hún Helgan okkar hélt þennan svaka fína saumó sem ekki allir sáu sér fært að mæta í en samt var góðmennt ;) er ekki bara spurning að mæta þegar saumó er og hætta svo þessu röfli???....neinei segi bara svona.
En var ekki hugmyndin að hafa þetta bara í stafrósröð og hér erum við allar í einmitt stafrósröð;
Anna Jóna
Anna Lára
Benný
Guðrún
Gyða
Helga Sjöfn
Hrefna
Katrín
Laufey
María Ósk
Marín
Ragna
Sella
Sunna
Telma
Tinna
....og þar sem Helga hélt síðast þá væri komið að Hrefnu, en þar sem hún er í útlandinu er þá ekki bara Katrín næst?? Hvað segir Katrín um það??? og svo þurfum við bara að ákveða áður en allar fara úr saumó hver haldi næst.
Vona að þetta falli vel í kramið hjá ykkur og ég sakna ykkar allra líka, vildi helst hafa saumó vikulega..... :)
Anyway, er ekki allt gott að frétta af öllum?
Ranted at 10:27 e.h.♥
mánudagur, október 03, 2005
Jæja, nú fer fram skráning í hina árlegu haustferð Naglanna, sem er nemendafélag um-og bygg.verkfræðinema, sem er nú ekki í frásögu færandi nema hvað ég rak augun í þetta í listanum:
Alveg magnað!!!
Gaman að þessu :):):)
Ranted at 4:49 e.h.♥

