<xmp> <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3238927?origin\x3dhttp://rotturnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script> </xmp>
þriðjudagur, ágúst 26, 2003
Undur og stórmerki! Konan í eldhúsinu er með reikning fyrir ávöxtum og þ.á.m. kiwi, en það er nefnt "loðber" á honum! Aldrei vitað annað eins! Síðan hvenær var kiwi ber?
Ranted at 10:14 f.h.♥

|


Jæja maður aftur kominn í vinnuna! Ég ætla að vinna út september, það verður mjög ánægjulegt, um mánaðamótin þ.e. :) Eru ekki bara allir að fara að byrja í skólanum? Ég byrja á morgun! Það verður örugglega mjög gaman! Hins vegar hefði ég mátt sofa betur í nótt, nú sit ég hérna í vinnunni og geispa eins og ég eigi lífið að leysa og svo er ég að tárast líka! Svona er maður nú skrítinn!!! Eins gott að fara snemma í háttin í kveld!

En þar sem Gyða hefur ekki bragðað öl og ekki einu sinni fundið ilminn af slíkum drykk síðan á laugardagskvöldið um verslunarmannahelgi þá mun verða hægt að finna hana á einhverju öldurhúsi "borgarinnar" um næstu helgi :) Það verður lovely!
Ranted at 9:08 f.h.♥

|


miðvikudagur, ágúst 20, 2003

Find your inner Smurf!


já einmitt, passar svosem alveg ......geiiiiisp
Ranted at 12:34 e.h.♥

|


þriðjudagur, ágúst 19, 2003

Find your inner Smurf!


Ókei, ókei, ég er nörd. Dí, ég get svo svarið það!
Ranted at 9:52 e.h.♥

|


fimmtudagur, ágúst 14, 2003
Já og svona bæ þe vei, fyrst rætt er um stundatöflur, þá er ég svo heppin að vera laus við mánudaga fyrir jól í vetur :) Það verður yndislegt að rembast við það alla önnina að vera duglegur á mánudagsmorgunum ;) ye right!!! OK verð núna að fara að læra!!!
Ranted at 9:58 e.h.♥

|


Fann þetta á síðunni hjá Önnu Jónu! Þetta er kannski hint um að ég eigi að snúa mér aftur að forrituninni og hætta að hangsa á netinu! Hmmm kannske!??


Find your inner Smurf!

Ranted at 9:55 e.h.♥

|


Jii, ég var líka þessi sami og þú Tinna úr prófinu.....ég þorði ekki að senda það á blogginn, thíhíhí. En ég var einmitt líka að skoða stundatöfluna mína og ég er í fríi á föstudögum....jibbý jey. Þannig að ég get annaðhvort sofið út þá eða unnið...kannski frekar sofið út...;)
En ég er farin að hlakka alveg svakalega til að byrja í skólanum. Það er eitt sem ég finn þegar ég er í skólanum að það er að maður er doldið frjálsari með tímann, þó maður þurfi að læra heima og svona þá getur maður samt pantað sér tíma hjá lækni eða farið í Ikea án þess að biðja um frí í vinnunni....ef þið vitið hvað ég meina. Samt alltaf á vorin þegar það fer að líða að því að maður fer að vinna þá hlakka ég alltaf svo til að losna undan lærdómnum á kvöldin og heimaverkefnum og tilheyrandi. Svona sníst þetta í hringi.

En við Styrmir erum búin að ákveða að halda official innflutningspartý á laugardagskvöldið og allir velkomnir, vinir og vandamenn líka. Við ákváðum að nota næstu helgi því þá ætla allir að gera eitthvað....menningarnótt og svoleiðis og fólk getur þá líka litið við hjá okkur áður en það fer niður í bæ. Fyrir þá sem vilja sést líka flugeldasýningin heiman frá okkur ........;) Endilega kíkið við þó það sé ekki nema stutt stopp.

Jæja best að þykjast fara að vinna ;)

Sjáumst hressar á laugardagskvöldið !!!
Ranted at 1:15 e.h.♥

|



mánudagur, ágúst 11, 2003
Fór einhver á Hinsegin daga???
Ranted at 3:05 e.h.♥

|


Hmmm undarlegt með linkinn!!!
En, jú ég er sammála með listann! Endilega að búa til nýjan til að þetta verði soldið reglulega. Það er svo frábært að hittast reglulega og kjafta og borða :)

Hins vegar hlakka ég til að byrja í skólanum og eins og staðan er í dag verð ég ekki í neinum tímum á mánudögum! Það verður alveg eðal. A.m.k. svo lengi sem þeir breyti ekki drögunum að stundartöflu! Vona ekki!!! Svo er svo gaman að byrja í nýjum fögum, nema hvað ljóminn af þeim er vanalega farinn eftir fyrstu vikuna, en það er allt í lagi, ég nota bara tímann núna til að hlakka til :) Þ.a. ég hef sætt mig við að sumarið er að verða búið, enda er Verslunarmannahelgin liðin!
Ranted at 9:00 f.h.♥

|


sunnudagur, ágúst 10, 2003
Já, þetta kemur mjög á óvart Gyða :) Annars ætlaði ég að prófa og smellti á linkinn en það kom bara eitthvað bull á skjáinn svo ég var fljót að loka aftur.

Hvernig leggst annars í ykkur að vera að byrja aftur í skólanum? Eða eruð þið kannski í afneitun og finnst vera mjög mikið eftir af sumrinu ;) Ég er alla vega að reyna að telja mér trú um það, að ég hafi nógan tíma til að gera alla hlutina sem ég á eftir að gera. Er síðan búin að ákveða að skella mér til Danmerkur síðustu dagana í ágúst og hanga með Heiðu minni í Köben. Þá verð ég örugglega meira tilbúin að byrja aftur í skólanum... vonandi alla vega :)

En varðandi næsta saumó, er ekki málið að gera aftur svona nafnalista og reyna að fylgja honum bara svo við missum þetta ekki niður? Þetta gekk svo ofsalega vel þegar listinn var notaður, þá hittumst við mun reglulegar og aldrei neitt vesen, fannst ykkur það ekki?
Ranted at 11:25 f.h.♥

|



Oh vá ég er svo sammála! Árni Johnsen fær titilinn fífl aldarinnar! Hann er svo mikill fáviti að halda sig ekki bara á mottunni meðan hann er í fangelsi og láta bara ekkert bera á sér. Það er ekki eins og hann sé að skapa sér vinsældir, síður en svo. Og ef hann heldur að fólkið í Eyjum hafi verið að klappa fyrir honum þá skjátlast honum hrapalega! Þetta fólk vissi ekkert hvað var að gerast og klappaði bara afþví að þeim finnst það skemmtilegt. Svo vorkenni ég honum ekki neitt! Ég spái honum ekki góðu gengi eftir að hann losnar úr fangelsinu!

Úff maður er bara að æsast upp! Hvað um það, en þá verð ég í París frá 10. sept til 14. sept svo ef þið vitið um gott hótel, ódýrt á góðum stað í París, endilega látið mig vita elskurnar :)
Ranted at 3:28 e.h.♥

|


Já skvísu takk fyrir síðast, og takk fyrir mig :)
ég verð nú að taka undir þetta hjá ykkur að þetta var einn slúðursnauðasti saumó EVER.....en kannski lagast þetta þegar við sem erum í skóla byrjum aftur í haust og maður fer að hitta allt þetta lið eftir sumarfrí. Við þurfum allavega að taka okkur allsvakalega á fyrir næsta saumó!!

hver á annars að halda næst?

.......og hvað er málið með Árna Johnsen?.....er hann bara hreinn klikkhaus...ég bara spyr?

jæja maður skilur bara ekki svona fólk....sorry, en fyrir mér má hann bara alveg flytja til tunglsins....og persónulega fyndist mér að þeir sem sitja í fangelsi mættu ekki einu sinni skrifa bréf í blöðin hvað þá annað. Eru þeir ekki teknir úr samfélaginu til að afplána sinn dóm, og hvers vegna mega þeir þá taka þátt í öllu sem þeim sýndist??

úff, þetta pakk..........;)
Ranted at 10:19 f.h.♥

|


föstudagur, ágúst 01, 2003
Gleðilega verslunarmannahelgi!
Ranted at 4:22 e.h.♥

|


Tja ég held að þetta hafi verið sá saumaklúbbur sem var hvað gjörsneyddastur slúðri, en það var nú gaman samt :) Og alltaf étur maður á sig gat :)))

Jæja stúlkur, gleðilega verslunarmannahelgi!!!
Ranted at 11:27 f.h.♥

|