föstudagur, desember 30, 2005
Takk fyrir mig.....Langaði til að þakka kærlega fyrir frábæran saumaklúbb hjá Önnu Láru á mánudaginn, æði gæði að hitta ykkur svona margar og ekki slæmt að fá að sjá nýjasta meðlim Dísanna - Bára ekkert smá sæt skvís.
Annars er ég svo sannarlega í tjúttgírnum og ætla að bregða mér í bæinn og láta lausum hala á föstudagskvöldið og væri nú svaka gaman að rekast á bossan á ykkur skvísum.... en þangað til næst, kossar og knús
Anna Lára mín, takk æðislega fyrir frábærar veitingar og þið allar fyrir langt og gott spjall - Tinna fær hrós fyrir að mæta með saumadót ;o)
Ranted at 3:05 f.h.♥
föstudagur, desember 09, 2005
Halló halló hallóGuðrún var að segja mér að María hefði eignast litla stelpu í gær :):):)
Ég vil bara óska Óla og Mæja innilega til hamingju með stúlkuna! Frábærar fréttir í annars grámyglulegur prófum :)
Ranted at 2:19 e.h.♥
