<xmp> <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3238927?origin\x3dhttp://rotturnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script> </xmp>
sunnudagur, apríl 27, 2003
Til hamingju Gudrun! Eg fer i fyrsta profid a morgun.....hlakka ekki til. nohh TInna vantar ekki dagskranna. Eg kemst svona nokkurn vegin hvenaer sem er eftir 8.mai...svo lengi sem thad er sma fyrirvari.
Ranted at 5:15 e.h.♥

|


Jú, það er víst, er búin langseinust af öllum :( Það átti meira að segja að færa prófið til 26. maí en þá mótmæltum við og fengum þeirri breytingu aflýst, ég meina, maður verður nú að fá að horfa á Eurovision og njóta þess! ;) En til hamingju Guðrún með að hafa náð öllu :) Mig langar ofsalega mikið að við höldum saumó sem fyrst en er samt hrædd um að komast ekki sjálf fyrr en í júní því ég er alla vega að fara í tvö Eurovision partý þarna um kvöldið, svo fer ég út kl. 8 á sunnudagsmorgninum, kem heim á föstudeginum eftir og fer í sumarbústað með bekknum daginn eftir það. Simmsalabimm! Nóg að gera!
Ranted at 4:23 e.h.♥

|


Já ég tek undir það að læra ekki á laugardagskvöldi, ég hef aldrei getað það, ekki einu sinni í stúdentsprófunum. En ég er búin að fá úr prófunum og búin að ná öllu :) á þá bara eftir einn kúrs sem er bara verkefnavinna en við verðum að dag og nótt þangað til það er búið.
En hvernig er staðan á saumó, bíðum við ekki þangað til allar eru búnar í prófum?
Er ekki Tinna búin 24.maí? Eurovision night!!
Ranted at 11:05 f.h.♥

|


Er eg sem sagt langt leidd thar sem eg er ad laera a laugardagskvoldi? Ad visu buin ad naglalakka mig, sletta a mer harid, horfa sma a imbann, lesa Bridget Jones (i hundradasta skipti). Thad sem madur gerir ekki thegar madur a ad vera ad laera.
Ranted at 1:38 f.h.♥

|


laugardagur, apríl 26, 2003
Já það voru góður tímar :) En hins vegar fékk maður ekki eins mikið af ókeypis áfengi þá og núna! Annars er það bara próflestur þessa dagana, ég tjútta bara á Þjóðarbókhlöðunni! Svona á milli þess sem maður stelst á netið :) Að vísu lærir maður ekki á laugardagskvöldum, nenenei,maður erekki nógu langt leiddur ennþá!!!
Ranted at 7:15 e.h.♥

|


föstudagur, apríl 25, 2003
Ég er líka hnetusmjör, ohh ég vildi vera bjór!

En gleðilegt sumar stelpur, gerðu þið eitthvað sumarlegt í gær? Ég var bara þunn, Styrmir hélt nefnilega uppá 25 ára afmælið sitt á miðvikudaginn og það var tjúttað smá. En svo tók raunveruleikinn við daginn eftir :/

.....ég man þegar maður gat drunkið endalaust og var ekkert þunnur, maður vissi ekki einu sinni hvað þynnka var!!!
Ranted at 12:05 e.h.♥

|


fimmtudagur, apríl 24, 2003
Ég er hnetusmjör! Af hverju er ég hnetusmjör? Mig langar ekki að vera hnetusmjör :(
Ranted at 4:25 f.h.♥

|


miðvikudagur, apríl 23, 2003
Undarlegt!!!
Ranted at 3:14 e.h.♥

|



What Flavour Are You? I tashte like Alcohol.I tashte like Alcohol.


Heh. Heh. I taste like beer. I like beer. Buy me a beer. I'm not drunk, I can drink plenty without... What was I saying? Beer. What Flavour Are You?
Ranted at 3:14 e.h.♥

|


mánudagur, apríl 21, 2003
Jaeja er buin i profum 1.mai og hef i hyggju ad koma a Fronid.... getum vid ekki haft saumo thegar allir eru bunir i profum?
Ranted at 3:00 e.h.♥

|


fimmtudagur, apríl 17, 2003
Vá það er bara frábært veður úti!!! Fór út að hlaupa áðan og endaði svo bara á sólbaði úti í garði! Svona á þetta að vera, nema hvað maður á að vera að lesa fyrir próf, en hver getur það í svona eðalveðri!!!?
Æ svo horfði ég á Litlu lirfuna ljótu í gær! Hún er algjört æði! Mæli með henni fyrir þá sem ekki eru búnir að sjá hana! :) Horfði líka á Ísöld, hún er líka mjög skemmtileg :)
Ég er bara farin að hlakka rosalega til að háma í mig páskaeggið!

Gleðilega páska!!!
Ranted at 4:59 e.h.♥

|


sunnudagur, apríl 13, 2003
Jæja gaman að sjá hvað það er komið mikið líf í bloggerinn núna :)
Ég er annars búin með prófin og lokaverkefnið framundan, alveg fram í maí. Ég ætla samt að reyna að vera dugleg með það og reyna að byrja að vinna 2.maí. Það væri alveg æðislegt að fá pening strax mánaðmótin maí/júní, orðin þreytt á að vera blankur námsmaður:(

En Júlía byrjar 1.maí á leikskólanum og ég hlakka alveg svakalega til, ég held að hún eigi eftir að hafa gaman að því að hitta fleiri börn og fá að fara út að leika og alles. Svo er þetta líka lítill leikskóli sem gerir hann meira aðlaðandi.

ég ætla að vera svo bara róleg yfir páskana og liggja í leti og njóta þess að vera í smá fríi, þannig að ég segi bara gleðilega páska stelpur og borðið nú nóg af páskaeggjum, eini árstíminn sem er tileinkaður súkkulaði :)
Ranted at 8:01 e.h.♥

|


laugardagur, apríl 12, 2003
Vó þessi aðalfundur sem ég fór á í gær endaði skuggalega, enda opinn bar! Hann var meira að segja svo opinn að menn voru bara að afgreiða sig sjálfir og endaði það svona misjafnlega hjá fólki! Sérstaklega endaði það illa hjá einum stráknum, en hann var á hækjum! Eini staðurinn sem hækjurnar gátu borið hann á var barinn! Annars varð að hjálpa honum að komast á milli staða! Nokkuð fyndið það :) Hins vegar varð ekkert úr sumarbústaðalæriferðinni og er ég því byrjuð að hangsa á netinu þegar ég ætti að vera að læra!!! Ekki nógu gott.
Ranted at 2:07 e.h.♥

|


þriðjudagur, apríl 08, 2003
Jæja, nú er bara ekkert að gerast! Kortið mitt í Hreyfingu er að renna út, veðrið er undarlegt og prófin að koma! En fyrst verður smá partý á föstudagskvöldið þar sem boðið er uppá frítt áfengi og pizzur. Ég, fátækur námsmaðurinn læt mér ekki þetta tækifæri renna úr greipum! Þetta er það besta við háskólann, maður hefur bara aldrei eytt eins litlum peningum í alkóhól :) að vísu virðist að sama skapi að maður er afspyrnu latur að læra! Hrumpf! Afhverju skyldi það vera? Kannski einhver fylgni þarna á milli???

Annars er planið að fara úr bænum á laugardaginn, upp í sumarbústað og vera eitthvað fram í næstu viku bara að læra. Það hlýtur að verða eitthvað úr því, sérstaklega þar sem í sumarbústaðnum er ekki sjónvarp! Oh ég hlakka til að sofa uppi í sveit! Mér finnst það best! Vakna og það eina sem maður heyrir í er einhver lítill fugl, nema að veðrið verði eins og síðustu daga og það eina sem maður á eftir að heyra í eru gargandi fuglar að reyna að lifa af veðurofsann! En við skulum nú vona ekki!!!
Ranted at 7:27 e.h.♥

|


miðvikudagur, apríl 02, 2003
Netid er minn besti vinur thessa dagana!

What?! Julia ad fara a leikskola? biddu nu vid hun faeddist nu bara fyrir nokkrum dogum.

Omurlegt eg fae ekki paskafri... eg fekk springbreak um daginn en hallo gaman ad sitja i 3 tima vedurfraedi tima a fostudaginn langa.

Nuna er lidid mitt ad reyna ad selja timarit til styrktar lidinu... etta er bara leidinlegt og i thokkabot er eg su sem a ad stjorna essu! Eg enga aettingja og vini herna (fyrir utan Afa) sem haegt er ad vaela i og selja hluti sem thau tharfnast ekki... (hver man ekki eftir ollum theim skiptum sem vid vorum ad selja klosettpappir) Ars askriftir ad fullt af blodum... arg og eg a ad selja fimm askriftir. humpf! O well kannski eg fari bara og selji sjalfa mig a einhverju gotuhorni og gef askriftirnar i kaupbaeti.
Ranted at 10:10 e.h.♥

|


Páskafrí að nálgast, en þar með nálgast prófin óðfluga!!! Oóóó
Ranted at 3:41 e.h.♥

|