föstudagur, mars 30, 2007
Sælar skvísur…..það er komið að því –ÁRSHÁTÍÐ DÍSANNA ´07STAÐUR: Lækjarbrekka
STUND: laugardagurinn 7. apríl 2007
Undirbúningsnefnd hefur lagt sig alla fram við að finna dagsetningu sem að sem flestar geta mætt og er laugardaginn 7. apríl dagurinn…þvílíkt stuð.
Á boðstólnum er líka þessi dýrindismáltíð:
Forréttur: Innbakaður og grillsteiktur humar með spínati, sveppum og humarsósu
Aðalréttur: Koníaksleginn lambavöðvi með kryddjurtum og lambasoðgljáa
Eftirréttur: Créme Brulée Lækjabrekku
Verð kr: 5280.-
Maturinn hefst kl. 19:00 en fyrir þá sem vilja hittst í fordrykk á staðnum er mæting kl. 18:00. Pælingin er að hafa þetta kvöld eftirminnilegt, rólegt og kósý…góða viðbót við páskagleðina….því mun vera eilítið eftirpartý eftir Lækjabrekku….staðsetning þess verður tilkynnt síðar.
Vona að þessi lesning hafi verið notaleg og hlakka til að sjá ykkur sem flestar – kemst þú????
Fyrir hönd undirbúningsnefndar Laufeyjar og Maríu Óskar
Ritari: Sella
Ranted at 3:30 e.h.♥
fimmtudagur, mars 22, 2007

TagWorld Happy Birthday Comments
Gyða okkar átti afmæli 20.mars - til hamingju með afmælið skvísa, vonandi áttiru góðan afmælisdag :)
Svo voru Ragna og Katrín ári eldri 15.janúar, Telma 1.feb og Helga Sjöfn 10.febrúar og ég er pottþétt að gleyma einhverjum.
Til lukkum með dagana elsku dísir!
Ranted at 8:34 f.h.♥
fimmtudagur, mars 15, 2007
Orðsending nr.2 frá árshátíðarnefndinni....LÆKJABREKKA IT IS....
Laugardaginn 7. apríl munum við Dísirnar dansa dillandi inn á Lækjabrekku á hina árlegu árshátíð - gaman gaman. Ég var þess vegna beðin um að setja hér inn nokkur orð.
Hvað viljið þið borða??
1) kjötrétt
2) fiskrétt
3) grænmetisrétt
Endilega kommentið hér að neðan hvað þið viljið fá svo að Laufey og María geti haldið áfram að skipuleggja...þær ætla hins vegar að koma með ítarlegri upplýsingar þegar nær dregur.... því er bara um að gera að koma sér í gírinn og byrja að hlakka til.
PS. Veit einhver hvað er lengi opið í bænum þarna laugardaginn 7.apríl þar sem páskadagur er deginn eftir, kannski ekki vitlaust að tékka á því.... venlige hilsen - Sella
Ranted at 10:58 f.h.♥
mánudagur, mars 05, 2007
ORÐSENDING FRÁ ÁRSHÁTÍÐARNEFNDINNI....Ég var beðin um að koma orðsendingu á framfæri frá Maríu Ósk og Laufeyju, þar sem þær eru á fullu að undirbúa hina árlegu Árshátíð Dísanna - en komast því miður ekki hingað inn til að skrifa smá línu!!
Það eru vangaveltur um hvaða dagsetningar henta best fyrir gleðskap hjá okkur.... og að því tilefni eru þið beðnar um að láta vita hvenær þið komist. Dagsetningarnar sem verið er að pæla í eru eftirfarandi:
Laugardagurinn 14. apríl
Laugardagurinn 21. apríl.
Vinsamlegast látið vita hvaða dagar eru bestir fyrir þig svo að þær geti látið drauma sem flesta rætast..... KOMMENTA SVO
:o) GÓÐAR STUNDIR :o)
Ranted at 1:44 e.h.♥

