mánudagur, ágúst 21, 2006
SAUMÓ 6. SEPTEMBER KL. 20:00 Á KAFFIHÚSINU B5, BANKASTRÆTIEr ekki kominn tími til að breyta aðeins til? :) Það er löngu komið að mér að halda saumó, ég dauðskammast mín, er alltaf að bíða eftir að stigagangurinn verði gerður upp, hann er eiginlega ekki mönnum bjóðandi eins og er! Þannig að ég sting upp á kaffihúsahittingi til tilbreytingar!
Vonandi komast sem flestar :)
Ranted at 12:20 e.h.♥
þriðjudagur, ágúst 15, 2006
24.ágúst - 11.sept.................!!Jæja Dísir,
núna eru bara 9 dagar þangað til ég kem á klakann (já ég tel niður) og væri ekki tilvalið að negla niður saumó dagsetningu??? Hver er annars næstur í röðinni eða hvern langar að halda?
Hlakka allavega rosalega til að hitta ykkur og það væri fínt að fá einhverja dagsetningu á saumó!
Er líka alveg þvílíkt spennt að fá að heyra slúður og endilega finnið eitthvað skemmtilegt slúður áður en þið mætið í saumó - eða bara einhver að drífa sig að verða ólétt!! það er svo skemmtilegt. En ekki Anna Jóna samt, komið gott í bili hjá henni.....hahahaha
Sí jú sún görlís
hälsningar från Sverige
Ranted at 11:24 f.h.♥
þriðjudagur, ágúst 08, 2006
Obbobobb!!!Eins gott að búa ekki á Bretlandseyjum!!! Sjá hér.
Ranted at 3:28 e.h.♥
miðvikudagur, ágúst 02, 2006
Daddddarrrraaaaaaaaaaaaaa!!!Tinna snillingur reddaði mér og skellti inn frásögn frá Sumarhátíðinni, ég ætla að paste-a hana hingað inn, gjöriði svo veeeel:
"SUMARHÁTÍÐ 2006
Við hittumst heima hjá Benný um hádegi þar
sem við fengum úthlutað bolum og nafnspjaldi. Bakgrunnur nafnspjaldsins var NB með mynd af skipuleggjendum hátíðarinnar, mjög smart. Þá var haldið í miklu úrhelli niður að tjörn þar sem endurnar fengu enga magafylli en mávarnir tróðu sig út. Bætt var fyrir dræma mætingu með uppblásna félaganum Hans sem Gyða og Benný hafa leikið sér mikið með í sumar.Nú var ferðinni heitið út úr bænum, nánar tiltekið á Indriðastaði
í Skorradal. Var þar boðið upp á dýrindis heimalagað nesti í hlöðu sem búið er að breyta í veislusal. Til að hjálpa meltingunni fórum við í snúsnú á eftir og voru vel valdir taktar sýndir þar. Ótrúleg færni sem sumar... en ekki aðrar... búa enn yfir á þessu sviði. Gyða og Benný sköruðu sérstaklega fram úr en greinilegt þótti að þær höfðu æft stíft sl. vikur. Síðan fórum við í svimaboðhlaup, taktarnir voru ekki síðri á því sviði eins og myndirnar hjá AJ sýna vel.Frá Indriðastöðum héldum við að Hvanneyri. Hafði nú stytt upp og glitti í sól. Á Hvanneyri fórum við í skoðunarferð um staðinn, í kirkjuna, ullarhúsið, búvélasafnið og fjósið. Og hér erum við ekki að tala um neitt venjulegt fjós heldur einstaklega tæknilegt fjós þar sem kýrnar eru í spa allan daginn. Mjólkin alveg hreint dásamleg!
Og þá tók við hápunktur dagsins: Bændafitness 2006! Tveir og tveir kepptu í einu í ýmsum þrautum, m.a. átti að raða kartöflum í bakka, negla krækjur, rúlla
dekki, henda sér yfir rúllubagga, teikna húsdýr og blása upp blöðru. Eins furðulegt og það kann að hljóma unnu Gyða og Benný þessa keppni. Sem fyrr, greinilegt að þær höfðu æft stíft sl. vikur. Löðrandi sveittar héldum við úr fitness í sund í Hreppslauginni í Skorradal. Síðan var haldið í bæinn, beint í grillveislu heima hjá Benný. Var þar borinn fram lystilega framreiddur matur sem bragðaðist með eindæmum vel. Við sem erum í engu formi fórum heim um miðnætti en það fréttist af nokkrum Dísum upp á borðum á Vegamótum snemma á sunnudagsmorgninum! Sem sagt: Frábærlega vel heppnuð sumarhátíð sem mun lifa lengi í Dísa minnum."
Ég vil þakka Tinnu fyrir frábæra frásögn :) og eins og lesa má þá sannast hér málshátturinn: Æfingin skapar meistarann - enda ég og Benný að fara að keppa fyrir Íslands hönd í snú snú og Sveitafitness á Nýja Sjálandi í október! :):):) Annars fannst mér bara ekkert smá gaman og myndirnar mínar eru hérna: http://public.fotki.com/Gyda/sumarht_dsanna_2006/
Annars er það að frétta af mér að ég byrja í mastersnáminu í DTU núna í september og flyt því til Köben núna í kringum 25. ágúst. Svo eru allir bara velkomnir í heimsókn til mín þegar ég hef fengið íbúð :)
Ranted at 9:48 e.h.♥
