mánudagur, mars 31, 2003
Úff maður reynir nú ekki að útskýra veðrir hér á Fróni fyrir nokkrum manni. Það er alla vega ljóst! Annars hefur ekkert gerst í mínu miður atburðuaríka lífi. Horfði á videó og borðaði nammi á föstudags- og laugardagskvöldið :) Það var nú bara ágætt!!! Annars finnst mér hálffyndið að Júlía skuli vera að fara á leikskóla, mér finnst hún vera fædd í gær :)))
Ég kannast við þessar netferðir þegar maður á að vera að læra :) Það er svo miklu þægilegra að skoða eitthvað rugl á netinu en að sitja sveittur yfir einhverri bók!
Jæja best að fara að lesa! Bókin er farin að senda mér illt augnaráð!!!!!
Ranted at 5:31 e.h.♥
sunnudagur, mars 30, 2003
Hey stelpur, hvað er í gangi með veðrið???
það kom bara vetur á einni nóttu, við þurftum meira að segja að moka pallinn heima því það voru komnir skaflar þar :)
samt ágætt að vera inni að læra þegar veðrið er svona, skárra en ef það væri sól og sumar úti!!
Ranted at 3:27 e.h.♥
laugardagur, mars 29, 2003
Hún getur byrjað strax, ég hringdi bara og athugaði hvað kostar og hún sagði mér að það væri að losna pláss sem ég mætti fá. Alveg rosalega almennileg kona sem ég talaði við, svona ekta amma. Hún meira að segja óskaði mér góðs gengis í prófunum og bauð mér að halda plássinu fyrir mig þangað til ég væri búin að ákveða :)
Hver veit nema ég taki mér 1klst pásu í næstu viku og kíki í heimsókn í leikskólann og sjái svo til. Mér líst allavega alveg svaka vel á, og systir hennar Maríu er á þessum sama leikskóla og ég hringdi í mömmu hennar og spurði hana hvort hún væri ánægð með hann. Og hún sagðist vera mjög ánægð og mælti alveg eindregið með honum. Gott að vita af einhverjum sem hefur verið þarna!
jæja, verð að halda áfram að læra.
....fyndið hvað maður fer oft á netið einmitt þegar maður á að vera að læra :):)
Ranted at 4:12 e.h.♥
Hvenær byrjar hún þá á leikskólanum?
Á að vera að læra frumulíffræði núna..........buhuhuhu :( Er komin á netið, segir sitt um skemmtilegheitin!
Á að vera að læra frumulíffræði núna..........buhuhuhu :( Er komin á netið, segir sitt um skemmtilegheitin!
Ranted at 12:05 e.h.♥
föstudagur, mars 28, 2003
Já sama hér, læra og læra um helgina. En ég var að fá góðar fréttir áðan, það er laust pláss á listaleikskólanum Listakot fyrir Júlíu, þó að ég sé ekki beint hrifin af því að henda börnum strax á leikskóla þá er þessi ofboðslega fínn. Lítill leikskóli og hann er einkarekinn, og börnin læra að lesa og fara meira að segja í tónmennt, pælið í því. Þannig að mér líst alveg svaka vel á þetta og hugsa bara að ég skelli henni þangað, held að hún myndi hafa gaman að því að hitta eldri börn sem hún getur tuskast í :)
En hef alveg tvær vikur til að pæla í þessu meðan ég er í prófum.
Jæja, fjármálabókin bíður, nóg búin að slóra á netinu í bili.
Ranted at 4:12 e.h.♥
miðvikudagur, mars 26, 2003
Úff helgarplönin mín eru læra, læra, læra, keppa og svo læra meira. Veit ekki hvernig til tekst, en ég held ég taki nokkrar video spólur líka :) Annars hefur röddin ákveðið að heiðra mig með nærveru sinni á ný! Enda kominn tími til að ég hljómi ekki eins og sextug kona eftir 40 ára fyllerí!!! En ég fer ekki í neinar fermingar á þessu ári :( Það er alltaf svo gaman að fara að fá kökurnar, en nei ekki í ár, held það sé ein á næsta ári.
Kominn tími til að snúa sér að eðlisfræðinni! Juhúúú!!!
Ranted at 5:50 e.h.♥
Var að koma úr verklegri efnafræði, þetta er nú það tímafrekasta sem ég veit um. Hita, sjóða, fella út, endurkristalla, kanna bræðslumark, títra o.s.frv. o.s.frv. Maður er alveg uppgefinn eftir þetta og ég þarf að taka mér gott hlé fyrir framan sjónvarpið til að losna við pirringinn sem safnast upp! En svona er þetta bara.
Svo er ég að fara á skyndihjálparnámskeið í kvöld, það verður vonandi skemmtilegra :) Eru annars einhver plön hjá ykkur fyrir helgina? Prófin nálgast náttúrulega óðfluga svo ég ætla ekki að gera neitt þessa helgi....nema fara í fermingu á sunnudaginn....jeiii :/
Svo er ég að fara á skyndihjálparnámskeið í kvöld, það verður vonandi skemmtilegra :) Eru annars einhver plön hjá ykkur fyrir helgina? Prófin nálgast náttúrulega óðfluga svo ég ætla ekki að gera neitt þessa helgi....nema fara í fermingu á sunnudaginn....jeiii :/
Ranted at 12:45 e.h.♥
fimmtudagur, mars 20, 2003
Heyr heyr, Gyða!!!
Já svo er ég að byrja í prófum eftir rúma viku og þá verð ég ekkert á bloggernum, verðum nú samt að fara að pebba þetta upp fljótlega
Gaman að heyra í þér á msn áðan Hrefna, langt síðan við höfum spjallað :)
jæja, best að setja svo bara spólu í tækið, er orðin þreytt á að sjá bara eitthvað um Írak í sjónvarpinu
Ranted at 11:54 e.h.♥
miðvikudagur, mars 19, 2003
Hvað er að gerast hér??? Nákvæmlega ekki neitt!
Annars held ég að það sé að koma stríð og ég verð bara að vera sammála vinkonu minni að best væri ef Bush og vinir hans hoppuðu í görn, og þá helst görnina á Saddam sjálfum!!! Fyrst að Bin Laden gerði þá að fíflum, hvernig dettur þeim þá í hug að SH geri það ekki bara líka!!! Ég meina það!!!
Ranted at 5:03 e.h.♥
miðvikudagur, mars 12, 2003
Ok bloggerinn er eitthvað skrítinn hérna megin!!! vona að þetta lagist fljótt! Hlakka til að hitta ykkur annað kvöld.
Ranted at 11:41 e.h.♥
sunnudagur, mars 09, 2003
Hallo gellur...
oh vildi eg gaeti farid og verslad alveg aerlega....
Buin ad vera i Spring Break nuna thessa vikuna og buin ad gera slatta. Fullt af russibonum en eitthvad litid af afengi. Adrenalin betra en etanol!!!
Uff nu hefst vinnan otrulega stutt i profin thannig bokasafnid verdur mitt heimili naestu vikur.
Hvad er svo annars ad fretta... eg vil heyra sludur!!!
Ranted at 9:50 e.h.♥
föstudagur, mars 07, 2003
já ég verð að taka undir þetta með ykkur, einhver bloggeralægð í gangi. En er ekki veðrið bara að hafa áhrif á allt og alla. Mér finnst nánast önnur hver manneskja þjást af skammdegisþunglyndi þessa dagana. En ekki ég!!!, fór og keypti mér 3 peysur í dag, sem kostuðu miklu minna en gallabuxurna hennar Gyðu bara 5000kall samtals, og ég er í einni núna...liggaliggalái.
Svo reynum við bara allar í sameiningu að peppa upp bloggerinn og setja bara inn allt sem okkur dettur í hug, eins og Gyða hefur alltaf verið svo dugleg að gera. Any ways kentucky bíður. Cya
Ranted at 8:26 e.h.♥
Já ég held að bloggerinn sé bara í mikilli lægð! Nýjustu fréttir af mér er að ég keypti mér gallabuxur á 9000 kall í dag, það eru reyndar einu fréttirnar af mér og þær þíða líka ekkert djamm á næstu dögum vegna eyðslu!!! Skítt með það!
Jæja verð að fara að sækja pizzuna.
Hasta la vista babes!
Jæja verð að fara að sækja pizzuna.
Hasta la vista babes!
Ranted at 6:36 e.h.♥
Er bloggerinn okkar orðinn eitthvað slappur? Það líða alveg margir margir margir dagar á milli blogga! Getur það verið að við eigum allar svona eymdarlegt líf að við höfum ekki frá neinu að segja? Mitt líf snýst alla vega ekki um mikið annað þessa dagana en skólann ....... og djammið :/ Er á leiðinni núna í vísó og svo í afmæli á morgun. Nóg að gera. Og svo á vegum læknadeildar á Háskólakynninguna á sunnudaginn að kynna þessa yndislegu deild fyrir nýgræðingunum í menntó. Svaka stuð :)
Ranted at 4:13 e.h.♥
miðvikudagur, mars 05, 2003
Hmmm ég væri alveg til í að fara til London! Verst að maður á hvorki pening né tíma aflögu :(
Hlakka til saumó!
Ranted at 9:12 f.h.♥
