föstudagur, nóvember 26, 2004
Haldið þið ekki að mín hafi bara keypt sér bíl í gær og það bleikan í þokkabót!!!
Já við Styrmir fjárfestum í bíl handa mér í gær, enda tímin komin til, endalaust skutl útum allan bæ alveg að drepa mann. En við fundum þennan líka sæta bleika bíl, árgerð '95 af Polo W og hann er mesta krúttubíll sem ég hef séð. Minnir að mamma hennar Tinnu hafi átt svona alveg eins bíl einu sinni!!...getur það ekki verið?
Allavega þá á ég núna minn fyrsta bíl, og er ekkert smá ánægð með hann. Alveg eins og nýr og bara tveir eigendur af honum - tvær konur á aldur við mömmu og við vitum nú allar hvað þær keyra bílana sína vel. Hann er ekki ekinn nema tæp 90.000 og ég borgaði 210.000kr. fyrir hanna.....Trúið þið því!!!
Alveg toppkaup !
Versta er að bílgreyið þarf að sitja í bílaplaninu hjá skólanum næstu vikuna enda ég í miðjum próflestri, en svo verður tekinn rúntur um bæinn eftir prófin.
Hvernig gengur annars hjá ykkur dísum í prófunum eða próflestrinu?
Ranted at 2:11 e.h.♥
þriðjudagur, nóvember 23, 2004
Langt síðan ég sagði HÆ....
Rosalega er langt síðan ég hef bloggað hér. Mikið búið að vera að gera, var á ráðstefnu í Finnlandi og Eistlandi og á heimleiðinni kíkti ég í heimsókn til hennar Telmu okkar. rosa kósí og gaman að kíkja á hana í Kóngsins Köben.
Annar er ekkert að frétt af mér nema bara jólaundirbúningur, prófin, lærdómur, vinna og SOFA SOFA. Er búin að föndra jólakort á fullu og hlakka nú rosalega til sunnudagsins..... aha aðventukvöldið í Bústaðakirkju þetta er bara einhvað sem maður má ekki missa af. Vonandi sé ég ykkur sem flestar..... en öruggt að ég mæti.
Allavegana gangi ykkur vel í prófunum og öllu.
Hlakka til að sjá ykkur ;o)
Já og Sunna, Guðrún, Helga Sjöfn, Katrín innilega til hamingju með nýju íbúðirnar ykkar, hlakka til að kíkja í heimsókn einn daginn ;)
Ranted at 5:10 e.h.♥
laugardagur, nóvember 20, 2004
Til hamingju með afmælið Anna Jóna mín!!!!!
afmælisgjöfin er á leiðinni, pantaði hana á netinu....ehemm kemur e. 4-6 vikur....ehemm....nei bara djók.
ein spurning: hafi þið lent í því að hnerra undir stýri? það er stórhættulegt, ég var næstum því búin að klessa á áðan því ég fékk hnerrkast í bílnum....úff.
....það eru komnar nýjar myndir af Júlíu inná síðunni hennar!! :)
Ranted at 1:06 e.h.♥
föstudagur, nóvember 19, 2004
Sælar skvísur!
Shit það er einungis rúmur mánuður til jóla.... ég skil ekki hvað varð um allann tímann minn? Í gær var sumar að byrja á morgun eru jólin... hvar var ég?
Life happens when you are busy making plans!
En er ekki alveg örugglega saumó um jólin þegar allar dísirnar koma heim frá úglöndum?
Ranted at 1:10 e.h.♥
fimmtudagur, nóvember 18, 2004
Jæja maður verður að blogga líka :) Þýðir ekkert að sitja á kantinum!
Högni litli bara að fara í fyrstu útlandaferðina sína! Það er bara ekkert annað.
Annars er það að frétta af mér að ég er að fara til Montréal um helgina. Þar á að vera svaðaleg barmenning. Hlakka til að upplifa það :) Ætli maður dragi nú ekki líka upp budduna og reyni að versla eitthvað ;) Annars hef ég ekki enn verslað nein föt, tja nema úlpuna og eina sandala. Ekki það að maður þurfi neina úlpu hér! Miklu heitara en allir sögðu! Alla vega verð ég að versla mér eitthvað frekar fínt þar sem Þórey, hin íslenska stelpan sem er hér, hitti einhvern íslenskan dúdda sem verður líka á "ceremóníunni" sem okkur var boðið á og þar verður víst jakkafatastemmning! Gott að hafa afsökun til að versla ;) hehe
Ranted at 1:25 f.h.♥
miðvikudagur, nóvember 17, 2004
Halló halló!!!
Já loksins er fólk farið að blogga hérna aðeins.
En Guðrún ég er einmitt sama sinnir mig hlakkar líka til að fara að moka snjóinn en hins vegar þegar ég ætla að fara að moka þá finn ég mér samt e-h betra gera eins og t.d. að leggja mig ;)
En tíminn flýgur áfram og fyrsta prófið eftir 3 vikur allamalllaskítaralla, og ég er langt frá því að vera undirbúin en jæja það væri nú heldur ekki fyrsta skiptið og örugglega ekki það síðasta. Ég er einmitt búin 21 des og svo verð ég að vinna á fullut þessa 2 daga sem ég hef þannig að það er eins gott að maður verður búin að kaupa gjafirnar.
Og svo er að styttast í ykkur sem eruð erlendis jíbíi.... Ég veit að þið getið ekki beðið eftir að hitta mig ;)
En verður e-h saumó fyrir prófi????
Hlakka allavena til að hitta ykkur næst
kv. Bennsla brennsla
Ranted at 1:55 e.h.♥
þriðjudagur, nóvember 16, 2004
Shææt er verið að grínast með snjóinn hér á Fróni núna, það er bara allt á kafi. Mín er búin að sitja yfir bókunum í dag og stend svo upp og kíki út og það bara allt á kafi. Ógó jóló samt og mjög kósý að sitja inní hlýjunni þegar svona veður er úti.
Vona bara og óska að það verði hvít jól........krosslegg fingur.
fyndið hvað manni langar síðan alltaf til að gera eitthvað annað en að læra. Mig langar geðveikt til að fara út og moka tröppurnar svo Styrmir og Júlía geti labbað þær upp án þess að klofa snjóinn .....pælið í því "út að moka" mig langar virkilega til þess að fara út og moka snjó....ekki í lagi með mann. Held ég haldi bara áfram að lesa spænsku
¡Hasta luego!
Ranted at 5:41 e.h.♥
sunnudagur, nóvember 14, 2004
hæhó
ég er bara á kafi í bókum. Prófin eiginlega byrjuð, eða svona á næsta leyti. Er allavega byrjuð að lesa fullt fyrir þau og mikil vinna framundan. En ég er búin 4 des. þannig að ég kvarta ekki. Ætla þá að vinna aðeins í 66°Norður svona fram að jólum og reyna svo að eiga alveg frí yfir jólin :)
þetta stefnir allavega í góð jól á mínum bæ, ætla að njóta þess að vera í skóla og vera í fríi eins og ég get. Enda síðasta árið.....!!
Endilega samt reynum að poppa þetta upp hérna, ég held að við séum versti blogghópur í sögunni. Aldrei neitt slúður....common.
Ég kann samt ekkert slúður, gerist ekkert spennandi hérna í skólanum þar sem ég er allan daginn. En Júlía er komin á leikskóla í Hlíðunum, það eru fréttir.
jæja aftur í bækurnar......lesaleslesles.
bæjó
Ranted at 4:58 e.h.♥
föstudagur, nóvember 12, 2004
Stúlkur mínar vá þið samkjaftið ekki..... manni verður bara illt í eyrunum á öllu þessu blaðri og slúðri....
Ég vildi að þetta væri raunin en halllooooo það hefur enginn látið í sér kveða í mjög langan tíma. Humm af mér er að frétta að það er verið að setja lög á kennara þannig helgarfríið mitt sem var planað verður eytt í vinnunni að bölva þessu rugli.
DJ-amm annað kveld... að sjálfsögðu!
Hvað eruð þið Dísir að bralla?
Ranted at 7:10 e.h.♥
fimmtudagur, nóvember 04, 2004
http://www.b2.is/?sida=tengill&id=77736 hversu fyndið er þetta - næstum því eins gaman og í alvörunni.....hehehe - mér leiðist greinilega
Ranted at 1:04 e.h.♥
mánudagur, nóvember 01, 2004
Jójójó girlys. Er að skrifa inná í fyrsta skipti, bara tékka hvort þetta virkar ekki örugglega:) Fyrir þá sem ekki vita þá vorum ég og Róbert að kaupa okkur fyrstu íbúðina okkar, og ekki á slæmum stað heldur erum við komin á gamlar heimaslóðir í Furugerði 7. Við fáum hana 1. des. sem passar fínt því þá er maður búinn í prófum og svona. Jæja hef ekki meira að segja í bili.
Peace out...
Ranted at 3:23 e.h.♥
