<xmp> <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3238927?origin\x3dhttp://rotturnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script> </xmp>
fimmtudagur, apríl 27, 2006
Halló Dísir.

Það er svo rólegt hérna að maður mætti halda að við værum gömlu konu saumó. Hvað segiði nú gott skvísur, er ekkert að gerast. Engin ólétt eða neitt??? svona fyrir utan Önnu Jónu sem ég vona að líði vel, bara rúmur mánuður eftir...:)

Hér er vorblíða og maður farin að taka fram sumarfötin og aðeins missa sig í H&M á hana Júlíu. Búðin er opnuð og gengur framar vonum, sumt meira að segja orðið uppselt í nokkrum stærðum. Það verður síðan opnunarpartý í næstu viku sem verður svaka gaman, David Reiss ætlar sjálfur að mæta. Erum að fá nokkra frá Íslandi sem ætla að koma í partýið þannig að það verður mjög gaman. Verðum meira að segja eiginlega með fullt hús af fólki :)

Látið nú heyra eitthvað í ykkur skvísur:)

Hej då
Ranted at 3:43 e.h.♥

|


fimmtudagur, apríl 20, 2006
GLEÐILEGT SUMAR!!!
Þegar ég vaknaði í morgun voru þessir gæjar að þrífa bílinn minn svo ég smellti af þeim einni mynd í tilefni sumarsins!



Ranted at 12:47 e.h.♥

|


laugardagur, apríl 15, 2006
Gleðilega páska!!!

Vonandi eru þið allar búnar að hafa það notalegt í páskafríinu. Hér er stefnt á mikið páskaeggja át á morgun, en ég keypt þrjú Nóa Síríus egg í ferðinni til Íslands um daginn og er búin að fela þau hér vel og vandlega...hehehe

kv. frá Sverige
Ranted at 2:07 e.h.♥

|


þriðjudagur, apríl 11, 2006
Halló Dísir!

Ég er búin að flytja bloggið mitt yfir á Blogspot og þar með feta í fótspor Sellu og náttúrulega Dísabloggsins. Bara miklu betri vefur og maður getur breytt og bætt eins og maður vill.....og eins og Gyða okkur hefur gert við þennan vef.

getið skoðað það hér www.gudrunogstyrmir.blogspot.com

og endilega kommenta.

Annars er bara vor í Svíþjóð, 7-10 stiga hita og blíða. Júlía byrjuð á leikskóla, loksins, og er alveg alsæl :)

Verið svo duglegar að setja eitthvað hérna inn, það var eitthvað svo mikið líf hérna í kringum árshátíðina og miklu skemmtilegra að kíkja hérna inn!
Ranted at 2:12 e.h.♥

|