miðvikudagur, júlí 31, 2002
Hah, ég hef séð hana! Svarthvít mynd um klikkaðan leikstjóra sem tókst aldrei að meika það!!!
Ranted at 11:22 f.h.♥
Ég reyndist vera Ed Wood! Ég man bara einfaldlega ekki eftir að hafa séð þá mynd....hmm....best að fara að bæta úr því sem fyrst!
Ranted at 10:15 f.h.♥
Já, ég fékk 51 stig í þessu testi og ég verð að segja eins og Tinna að ég kannast við þessar ákvarðanatökur mínar sem geta oft verið ekki svo sniðugar!
Já og Anna Jóna, mér finnst Don Juan sætari en Gilbert, enda segir nafnið nú margt ;) Ég verð reddí í Chocolate eftir helgi!!! Sorrý að ég lét ekki heyra í mér á sunnudag, ég var í dinner party.
Já og Anna Jóna, mér finnst Don Juan sætari en Gilbert, enda segir nafnið nú margt ;) Ég verð reddí í Chocolate eftir helgi!!! Sorrý að ég lét ekki heyra í mér á sunnudag, ég var í dinner party.
Ranted at 9:26 f.h.♥
![]() | You are Don Juan From "Don Juan De Marco." Woobaby! You are Don Juan - dark and handsome, and the world's greatest lover. Some people find you to be a bit insane (or is that insanely sexy?). While you may not be playing with all 52 cards, don't let that get you down - you're a true romantic at heart. |
Oh, stelpur, ég elska þennan mann, og ekki skemmir nú fyrir að ég er bara eins og Don Juan de Marco!!!
Ranted at 9:22 f.h.♥
Hæ skvísur og takk fyrir síðast, ég skemmti mér alveg rosalega vel. Þetta var mjög vel heppnaður kveðjukjaftaklúbbur hjá þér Hrefna, ég mun pottþétt nota þína „aðferð" við að matreiða pastasalat í framtíðinni. Og varðandi myndina, ég verð að viðurkenna að ég gleymdi henni sko :/ en eins og Gyða segir, hver veit nema að þú munir fá sendan óvæntan glaðning í útlandinu :) Og svo þegar við verðum ríkar þá komum við í heimsókn til þín og fáum ýtarlega leiðsögn um bjórsögu og bjórhús Bandaríkjanna :)
En Anna Jóna, ég fékk 55 stig í þessu Dr. Phil prófi. Var nú ekki að trúa þessu neitt sko en svo las ég þitt: „They see you as clever, gifted, or talented, but modest". Já, það er nú ýmislegt til í þessu. Svo las ég mitt og trú mín styrktist: „...who's quick to make decisions, though not always the right ones...". Jebb, eitthvað kannast ég nú við þetta. Hef lent í þessu all nokkrum sinnum :/
En þið hinar, í hvaða flokki lentuð þið?

Ranted at 8:49 f.h.♥
Þú geymir hana þá bara í svartholinu og ég kem á kaffitár og fæ ristretto og mynd!
Ranted at 8:36 f.h.♥
þriðjudagur, júlí 30, 2002
Neeeeeeee, ég er ekki skamm! Ég á örugglega eftir að koma þér svooooo á óvart þegar þú ert komin í útlandið!!!
Ranted at 8:45 f.h.♥
mánudagur, júlí 29, 2002
Stelpur TAKK Æðislega fyrir mig....pabbi er ástfanginn af bókinni...ég líka. Kaffið er ógó gott og bollinn er kominn ofan í tösku. Samt hef ég ekki ítrekað nóg með myndirnar. Því ég fékk bara þrjár....Telma, Sunna og Benný rokka. Þið hinar skamm!
Ranted at 10:29 e.h.♥
Hallú!!!
Helgin var nú bara fín hjá mér. Ég vil nú þakka Hrefnu fyrir frábæran saumó, ég var mjög södd og sæl þegar ég vaknaði á laugardaginn, en þá hélt ég í brúðkaupið og hélt áfram að borða :)
En stúlkur mínar ég vil vara ykkur við "horny" japönum sem ganga lausir í Reykjavík, ég varð fyrir barðinu á einum á laugardagsnóttina en mér tókst að komast undan af miklum fimleika!!! En sunnudagurinn var ekki alveg eins góður, hann var frekar þunnur. En við þunnyldin, a.k.a. ég og Ása, fórum í sund og bjargaði það gjörsamlega deginum!!!

Ranted at 2:50 e.h.♥
föstudagur, júlí 26, 2002
Víííí, sex klukkustundir í saumó........þá er ég hamingjusöm. Svo held ég að restin af helginni verði svipuð og hjá Gyðu fyrir utan djammið hennar....því það verður eintómt afslappelsi og vídeógláp alla helgina hjá mér. Fyrir utan þessar 34 klst. sem ég þarf að læra til að ná námsáætlunni sem ég setti mér fyrir sumarið :/ Var víst aðeins of vongóð þegar ég gerði hana.
Annars er ég í tómu tjóni núna! Algert vesen að reyna að láta samskatta sig á miðju ári! Og bara almennt vesen að láta samskatta sig því þá þarf maður að hafa verið í skráðri sambúð í eitt ár, vera giftur eða eiga barn með aðilanum. Ég er búin að vera í sambúð í tvö ár en ah...ekki skráðri. Þannig að ég þarf að láta skrá mig í sambúð aftur í tímann og til þess þarf ég að fá staðfestingar héðan og þaðan.....humpf......t.d. frá Landsímanum, ég er búin að fá hana og hún er ákaflega formleg...... eða þannig, handskrifuð nokkur orð á risablað....efast um að Hagstofan samþykki þetta sem gilt skjal í sínar bækur. En jæja, þetta verður bara að koma í ljós :)
Hvernig gengur undirbúningurinn Hrefna? ..... 14 dagar í brottför!
En hvað á að gera um verslunarmannahelgina stelpur?
Ranted at 3:12 e.h.♥
Ég þarf eiginlega að fara í kringluna til að kaupa rauðvínið sem mig langar í. Ætli maður fari ekki í bæjarferð til að geta sopið á þessum eðalvökva.
Ranted at 10:38 f.h.♥
Ég er syngjandi glöð og hamingjusöm því það er að koma helgi!
Búin að kaupa bjórinn svo nú er bara eftir að opna hann og drekka hann! Ætla að vísu að geyma það fram á laugardag og vera stillt og prúð í kvöld. Svo framarlega sem þið farið ekki að segja einhverjar dörtí sögur í kvöld þannig að maður fari að blygðast sín!!!
Jæja
sí jú túnæt görls!!!

fimmtudagur, júlí 25, 2002
Það er aldeilis! Villt djamm bara. Það var nú ekki alveg svona villt hjá mér, ég var komin heim kl 5 á laugardaginn. Annars er ég ógeðslega þreytt. Mig vantar svona 70 klukkustundir upp á svefn vikunnar! En ég bjarga því svo sannarlega um helgina. Eftir nett tjill hjá Hrefnu á föstudaginn mun ég fara heim og sofa og sofa og sooooooooooooooofa, alveg þar til ég fer í brúðkaupið. Svo eftir djamm á laugardaginn, bara svona nett, ætla ég að soooooooooooooofa meira. Djöfull verð ég hress í næstu viku :)
Ranted at 9:08 f.h.♥
Nohh! this blogg is coming to life!
Naumast djammstússið á Önnu Jónu! En Anna Jóna átti ekki að vera hummus og bjór kvöld hjá þér og sigga á laugardag? Me need Betty Crocker to come to my house on friday! Ekki enn buin að ákveða hvað ég ætla að hafa.
Gyða og ég erum að fara í kvikmyndahús í kvöld að sjá hina kynngimögnuðu mynd Karlar í svörtu.
Ú nóg að gera og ég hlakka bara til!

Ranted at 8:52 f.h.♥
miðvikudagur, júlí 24, 2002
Lalalalalalala!
Tinna tilkynnti í morgun að það væru 60 klst í saumó, þá er væntanlega eitthvað minna núna! Ég er nú bara farin að hlakka til, langt síðan ég hef komið í saumó!!!
Ranted at 1:46 e.h.♥
þriðjudagur, júlí 23, 2002

what sexual performer are you?
Hehe ég er ekki eins mikill pervert og Gyðilíus!
Ranted at 3:27 e.h.♥
Vó, nú eru bara 16 dagar þar til Hrefna fer!!! Það eru rétt svo 2 vikur!!!!! Annars finnst mér mjög fyndið að herbergisfélaginn skuli heita Promise, aldrei myndi ég skíra barnið mitt Loforð :) En hvað ætli að v-ið standi fyrir, hmmm, I wonder!!!
Annars horfði ég á The Others í gær, sem er ekki í frásögu færandi, nema þar sem videótækið gaf frá sér eitthvað ýkt creepy hljóð. Fyrst hélt ég að einhver af draugunum væri að humma á bakvið, en nei, það var videótækinu sem leiddist og vantaði athygli!!! Gerði samt mjög dulmagnaða spennu í myndina þetta óvænta, ógeðslega hljóð!!!

Ranted at 9:28 f.h.♥
Andleg slökun er eitthvað sem ég þarf virkilega á að halda eftir þessa viku! Allt allt of mikið að gera. En vá vikan líður og það styttist í brottför mína. Undirbúningur gengur allt í læ. Er að reyna að redda sem flestu í dag, svo þarf ég að klára pakka bókunum mínum. Ég fer með heilt bókasafn með mér. Stingurinn í maganum á mér er ekkert að fara. Í gær fékk ég að vita hvað herbergisfélaginn minn heitir en hún heitir Promise V Hutton og er frá Miami. Gvuuuuð einhver þvílíkur Kani!
Ranted at 8:42 f.h.♥
mánudagur, júlí 22, 2002
Æi, grey Hrefna, við skulum allar koma með svona bækur um andlega innri hugarró í saumó :) Hvernig gengur annars hjá þér að undirbúa.....nú eru 17 dagar í brottför! It's the final countdown....durúrurú.....ú je!
Ranted at 4:15 e.h.♥
Sko ég skal uppljóstra leyndarmáli súkkulaðikökunnar frægu á föstudag svo Gyða þurfi ekki að líða skort.... en annars ætli hún verði barasta ekki á boðstólum í saumó. Tinna ég myndi nú ekki taka svo til orða að helgin mín hafi verið róleg og góð....ég var að vinna alla helgina og erindast fullt. Jæja best að drulla sér í leiðinlegu vinnuna! Ímyndið ykkur leiðinlegri en það sem ég er að gera núna!!!! Ég HATA að skúra! Mig langar aldrei þá meina ég ALDREI að vinna við þetta aftur.
Ranted at 3:57 e.h.♥
Já, ég verð greinilega að koma aftur á kaffihús næstu helgi og éta mig fullsadda af súkkulaðiköku fyrir næstu 6 - 8 árin! Úff, eins gott að byggja vel upp!!!
En hér er auðvitað allt fljótandi í verkjastillum svo maður er bara í gúddí fíling eins og venjulega :)
Annars hef ég ekki hitt Johnny Depp nýlega og er eiginlega bara farin að sakna hans. Komnar 2 vikur síðan ég sá hann í From Hell! Verð að fara að leigja Chocolate svo ég fari ekki að líða hinn hrikalega Depp-skort ;)

Ranted at 1:35 e.h.♥
Hellú skvísur.
Það hefur greinilega verið villt helgi hjá sumum.....en Gyða mín, það ætti að vera nóg af verkjastillandi "meðölum" þarna við hliðina á þér svo þetta bjargast :)
En ég gerði það sama og Hrefna, þetta var ákaflega róleg og góð helgi, horfði á FIMM bíómyndir og mæli með þeim öllum, þó sérstaklega Vanilla Sky, þrátt fyrir allan óraunveruleikann fannst mér hún mjöööög góð. Þetta var sem sagt "legið-upp-í-sófa" helgi and I loved it :) Reyndar var ég að vinna laugardeginum og ætlaði svo eftir vinnu að kíkja á Önnu Jónu á Kaffitár....en neibb, engin Anna Jóna, bara eitt (einn) mega krútt að puðast. Vonandi sé ég Önnu Jónu bara næst. Samt gott Sviss Mokka.
En Hrefna, verður þessa umtalaða súkkulaðikaka sörveruð í saumó á föstudaginn?.....því hún hljómar alla vega mjög girnilega

Ranted at 11:44 f.h.♥
ég hef ekki getað sofið síðan á föstudag....vegna hræðslu eftir blessuðu myndina.
Hvað varðar djamm...þá var þetta algerlega djammlaus helgi....telst nokkuð hálft rauðvínsglas með kvöldmatnum sem djamm?
Súkkulaðikaka og kók serverað af Hrebbnu fæst nú í skamman tíma....einungis næstu helgi svo ekki meir.

Ranted at 9:17 f.h.♥
Jæja helgin búin og ég þurfti að mæta í vinnuna kl 7 í morgun! Það er ekki kristilegt að gera manni þetta á mánudagsmorgni í júlí!!!! Geeeisp, ég verð að fara að æfa mig í því að sofa með opin augu.
Annars var villt djamm um helgina að venju, hægri ristin mín er blá, rauð og fjólublá eftir að einhver fíll trampaði á mér og á vinstri ristinni er mjög smekklegur pinnahælslaga marblettur. Svo er hægra lærið mitt marið. Sem sagt mjög skemmtilegt og þægilegt útlit! Annars mæli ég svo sannarlega með Tapas barnum, það er alveg eðalmatur þar, sérstaklega þegar maður er svona "ríkur" eins og ég ;)
Hins vegar mæli ég ekki með því að horft sé á What Lies Beneath á föstudagskvöldi. Hrebbna, ég varð fyrir miklu tilfinningalegu tjóni eftir það! En ég vil þakka fyrir góða súkkulaðiköku og gríðargott kók í gær.

föstudagur, júlí 19, 2002
Jæja, fólk hópast greinilega hingað á bloggerinn :) NOT
Annars hlakka ég bara til að hitta ykkur á kaffihúsi á eftir, það mun verða eðalrólegheit og afslöppun!
Sjáumst hressar!
Ranted at 11:24 f.h.♥
fimmtudagur, júlí 18, 2002
Nei sko Anna Jóna!
Einhver annar en ég og Gyða að skrifa....við nebblilega tölum svo hrikalega lítið saman....ég og gyða sko.
Hvað er annars að frétta?
Ranted at 8:15 f.h.♥
miðvikudagur, júlí 17, 2002
Já fara í apótek segiru....en þá náttúrulega myndi ég kaupa frá mínum vinnuveitanda þeas Pharmaco! Ég nenni ekki að vinna mér finnst fólk leiðinlegt sem hringir hingað!
Ranted at 1:49 e.h.♥
Það er sama sagan, viljiði plís fara að kaupa ykkur eitthvað úr apótekunum svo að þeir þurfi að fylla á!!!
Mér leiðist!
Mér leiðist!
Ranted at 12:29 e.h.♥
þriðjudagur, júlí 16, 2002
Óóóóó hver tilveran er föööl og grááá!!!
Alla vega leiðist mér ógeðslega mikið hérna í vinnunni!!!
Ranted at 4:52 e.h.♥
Já sko eins og MSN sé ekki nóg eða eitthvað....samt líta aðrir örsjaldan hingað inn.
ég vona að sem flestar mæti í saumó þannig ég nái nú að kveðja!
ég vona að sem flestar mæti í saumó þannig ég nái nú að kveðja!
Ranted at 2:19 e.h.♥
Já elsku krúttið mitt! Ekki viljum við að þú þurfir að gráta þig í svefn á hverju kvöldi. Það er nokkuð ljóst að þú verður að hafa mynd af mér meðferðis.
En hefurðu tekið eftir því Hrefna að við erum alltaf bara 2 að skrifa hérna!!?
En hefurðu tekið eftir því Hrefna að við erum alltaf bara 2 að skrifa hérna!!?
Ranted at 11:56 f.h.♥
Saumó hjá Hrebbnu föstudaginn 26.júlí! Klukkan eitthvað humm eigum við ekki bara að segja milli 8 og 9. Allir að koma að kveðja mig!
Svo ein fáranleg bón....gætuð þið komið með myndir af ykkur sem ykkur langar að gefa mér???
Svo ein fáranleg bón....gætuð þið komið með myndir af ykkur sem ykkur langar að gefa mér???
Ranted at 10:07 f.h.♥
föstudagur, júlí 12, 2002
Ööööö.... þú ert að flytja svo það er ekki nema von að það sé "eins" og þú sérst að flytja!!!
En, ég er svo glöð að það sé komin helgi eftir eina klukkustund og 27 mínútur, nei 26 :) Þetta er magnað. Jæja, ég ætla að drekka bjór og Passoa um helgina, þið finnið mig á Hverfisbarnum eða í íbúðarhúsi við Ráðhúsið ef þið þurfið að tala við mig. A.m.k. er það mjög líklegt eins og staðan er í dag! Svo fékk ég líka súkkulaði í dag svo ég er himinglöð, jæja
Góða helgi dömur!
Ranted at 3:34 e.h.♥
Búhúhú.....
Herbergið mitt er eins og ég sé að flytja....kassar út um allt. Mér finnst þetta sorgleg sjón að sjá. Sérstaklega vegna þess að ég mun aldrei búa þarna aftur, audda kem ég í heimsókn en etta verður ekki MITT herbergi.

Ranted at 1:41 e.h.♥
miðvikudagur, júlí 10, 2002
Mér líst gríðarlega vel á og ég mun mæta, ekki spurning! Hlakka nú bara til :)
En hvar fær maður góða, ódýra línuskauta? Svar óskast!
Ranted at 9:15 f.h.♥
Hvenær er liðið laust í smá saumó hjá mér? Var að spæla í lok júlí...... tell me what you think!
Ranted at 9:04 f.h.♥
mánudagur, júlí 08, 2002
Það er aldeilis!
Þetta var nú líka yndisleg helgi hjá mér, enda var veðrið svo gott og það sem meira er...
... það var ekki hávaðarok á Snæfellsnesinu! Merkilegt en satt! Svo er ég bara búin að vera í því að éta alla helgina, eiginlega hálfógeðslegt, en það verður bara tekið á í vikunni og þessu reddað!
Eina sem hefur verið planað hjá mér fyrir næstu helgi er að drekka bjór og vinna upp missinn sem ég varð fyrir þessa helgi, þ.e. missir á bjórdrykkju og svefni!
Ranted at 10:46 f.h.♥
Ummm....yndisleg helgi. Fórum upp í bústað á laugardaginn og vorum eina nótt. Byrjuðum á að grilla dýrindis mat og fengum svo grillaða banana fyllta með piparmyntusúkkulaði í eftirrétt. Svo var tekið til við drykkju og Trivial og Actionary spilað fram á nótt. Mjööög gaman. Ætluðum síðan að horfa á boxið en urðum öll rotuð í 1. lotu....annað heldur en Prinsinn og þessi hinn karl, sem rotuðust bara alls ekki neitt allar tólf loturnar (lásum sko textavarpið daginn eftir). Svo lágum við sólbaði í gær.....afskaplega notó : )
Og nú tekur bara við biðin eftir næstu helgi. Maður er jú að sjálfsögðu löngu búinn að plana hana, það er Akureyri aðfararnótt föstudags og Þjórsárdalur aðfararnótt laugardags. Hörkustuð framundan!
Og nú tekur bara við biðin eftir næstu helgi. Maður er jú að sjálfsögðu löngu búinn að plana hana, það er Akureyri aðfararnótt föstudags og Þjórsárdalur aðfararnótt laugardags. Hörkustuð framundan!
Ranted at 9:21 f.h.♥
föstudagur, júlí 05, 2002
Idiot, ég skil idda bara iggi!!!
Mér þykir ég nú frekar skemmtileg og gáfuð, fyrir utan mikið útlitslýti á vinstra auga eins og er! Maður er nú bara móðgaður ;)
hehe
Jæja, nú er bara að bíða eftir að læknavaktin opni kl 5, það vill enginn læknir tala við mig og helmingur allra augnlæknar höfuðborgarsvæðisins hætta að vinna á hádegi á föstudögum og hinn helmingurinn er í fríi! Aumingja ég!!! :(
Ranted at 2:53 e.h.♥
Ha hva meinaru er ég idiot???? ég er bara saklaus ung stúlka að reyna að koma sér áfram í lífinu. Kannski ekki gáfaðasta né fallegasta manneskjan á svæðinu but I get by!
Ranted at 12:29 e.h.♥
Hrefna mín, nú eigum við eitthvað sameiginlegt, ég reyndist nefnilega líka vera auga.
En þetta Disney prinsessu próf.........hahahahaha.............reyndist nefnilega vera þessi Belle, sem ég veit ekkert hver er, en fannst hins vegar partur úr lýsingunni eiga ákaflega vel við mig :-/ „Your good looks can attract the town jerks, but you manage to ignore them most of the time. Sometimes you feel like you're surrounded by idiots. Svona líður mér þegar ég er að tala við Gyðu og Hrefnu á msn ;-)
Oó, held ég hafi startað styrjöld.......f**k!
En jæja, helgin framundan, verður reyndar róleg og góð, sumarbústaðarferð og svona.
Heyrumst.

Ranted at 9:00 f.h.♥
Loksins föstudagur!
Ættarmótið títtnefnda er svo um helgina, en ég er komin með einhverja sýkingu í augað, svo ættingjarnir sem ég hef aldrei hitt verða örugglega alveg: Bíddu, erum við skyld einhverri fílakonu??? Tja þeir um það, en mér er amk illt :(
Frábært, ég hlakka til að vera í leikjum alla helgina með krökkunum og syngja á kvöldin!!!

Ranted at 8:57 f.h.♥
fimmtudagur, júlí 04, 2002
Ég er auga! Síðan er ég teiknimyndapersónan Belle, síðan er ég virkilega klofin persónuleiki því ég er dick dastertly, cruella deville og kjartan úr strumpunum. Humm....voru það einhver fleiri próf?
Ranted at 8:34 f.h.♥
miðvikudagur, júlí 03, 2002
Bíddu skil ekki alveg. Ertu þá bara haus? Án allra skilningarvita!!!? Undarlegt.
En ég er hjartað, kemur nú engum á óvart! Svo var ég fremur asnalegt illmenni, ég var vonda konan úr 101 Dalmatíuhundi! Eða frekar svona, fremur misheppnað illmenni. En það er líka allt í lagi.
Lalalalala, helgin er alveg að koma!
Ranted at 2:53 e.h.♥
Sko, ég var að taka þetta teiknimyndavondukallapróf og reyndist vera geðklofi! Makes you think...doesn't it? Var sem sagt Kjartan úr strumpunum, stóð að ég væri svona obsessive vondur kall :( Og svo líka einhver Dick Dasterdly, hef ekki hugmynd um hver það er. En það var samt mjög fínt að vera hann því hann reynir og reynir að vera vondur en er bara ekki mjög duglegur í að vera vondur. Svo ég held að ég sé bara í góðum gír :)
Ranted at 9:37 f.h.♥
Það sem ég hef eftir helgina er feitasta samviskubit og eftir að lamið sjálfa mig í hausinn fyrir heimskupör helgarinnar er ég komin með kúlu. Þýðir ekki að gráta það sem maður getur ekki breytt!
Jæja hvað er planið fyrir næstu helgi?
Jæja hvað er planið fyrir næstu helgi?
Ranted at 8:31 f.h.♥
mánudagur, júlí 01, 2002
Úff, helgin liðin og ég er komin með kúlu á ennið og lítinn skurð á kúlunni! En þetta er einmitt inn í dag, þið getið fengið þetta líka gegn vægu verði á Hverfisbarnum!
Ég hef nú auk þess gert nokkuð merka uppgötvun (þ.e. ég gerði hana í gær), en hún er sú að maður hreyfir soldið mikið ennið þegar maður er að tala. T.d. þegar maður er að segja eitthvað merkilegt eða fyndið! En þetta getur einmitt orðið manni til trafala þegar maður er með kúlu á enninu, og að ég tali nú ekki um þegar maður er jafnfyndinn og ég og segir jafnmikið af merkum hlutum!!!
Hah, þá vitiði það!
Ranted at 4:44 e.h.♥