Þakkarkveðja..... Vildi bara rétt skella inn kveðju og takk fyrir síðast, magnaður saumaklúbbur og alltaf gaman að kjafta. Frekar fyndið við getum nánast ekki slitið okkur frá hvort annarri. Ég og Telma blöðruðum svo mikið um allt og ekkert þegar við vorum komnar út hjá Önnu Láru að við náðum ekki að slíta okkur úr Blesugrófinni fyrr en um hálf fjögur. Anna Lára takk æðislega fyrir mig.......og stelpur get ekki beðið eftir 19.febrúar, ÁRSHÁTÍÐ DÍSANNA því það er kominn tími til að við tjúttum og tröllum einhvað saman. Endilega gerið einhvað krassandi og skemmtilegt af ykkur á áramótunum svo hægt sé að treysta á almennilegt slúður í næsta saumó. Ég lofa ég skal gera einhvað ;o) GLEÐILEGT ÁR OG TAKK ÆÐISLEGA FYRIR ÞAU GÖMLU...... ÁRAMÓTAKVEÐJA Sella ,,slúðurgella" |
Saumó á morgun.... Hlakka til að heyra allt slúður og fréttir.
Ég las færsluna frá Helgu og tók sérstaklega eftir því sem hún sagði um að maður mætti borða eins mikið og maður vildi yfir jólin ......og þar sem ég að fer náttulega eftir öllu sem Helga segir þá er ég búin að borða, borða og borða (missti rétt í þessu laufabrauð niður á milli takkana á lyklaborðinu) og svo er ég líka aðeins búin að borða. Í alvöru, ég var að hugsa um það um daginn hvað væri nú mest spennandi yfir hátírnar og niðurstaðan var Góður matur. Hversu gamall er maður orðinn? Pakkarnir ekki einu sinni spennó lengur!! ...nei bara plat, mér finnst þeir alltaf soldið spennó:) En ég er allaveganna á góðri leið með að breytast í veglega jólakúlu. Ææi ég verð bara dugleg að fara út að labba eftir jól....
Jæja hafið það nú gott elskurnar mínar, jólahugvekju Sunnu er lokið:o)
Tek undir með Helgu... ég sendi engin jólakort og segi hér með GLEÐILEG JÓL og vonandi hafiði það sem allra best um hátíðirnar. Sjáumst hressar og oftar á nýju ári.
Ég var að heyra að það verði jafnvel saumó milli jóla og nýárs hjá Önnu Láru. Ég vona að það verði þannig maður sjái ykkur flestar.
Nú styttist líka í árshátíð en ég býst við að hún verði haldin í febrúar að venju. Ég og Anna Lára erum búnar að sitja sveittar að skipuleggja....yeah right. En nokkrar hugmyndir eru komnar og við sjáum hvernig þetta fer allt saman.
Enn og aftur gleðilega hátíð!!!!
Sælar dísir. Sökum annríkis (ehemm) varð eitthvað lítið úr jólakortasendingum þetta árið (eins og áður :) þannig að hér með sendi ég ykkur og ykkar mínar bestu jólakveðjur með ósk um farsælt komandi ár. Þetta er búið að vera frábært hjá okkur í ár og stendur sumarferðin okkar uppúr að mínu mati. Það er eins gott að standa sig í sumar því maður er víst í nefndinni :)
Annars er það að frétta að við erum búin að eignast okkar fyrsta heimili í Furugerði 7 og þið eruð að sjálfsögðu velkomnar í heimsókn hvenær sem er. En jæja best að halda áfram að taka til því kallinn á víst afmæli í dag og er von á einhverju fólki í kvöld.
Hafiði það gott yfir hátíðirnar, hver ein og einasta ykkar og muniði að á jólunum má maður borða eins mikið og maður vill :)
Kveðja, Helga Sjöfn
jáhá loksins hef ég sest niður og sett myndirnar inn.... bara hálfu ári seinna....ENJOY
En mér líst vel á að Anna Lára ætli að halda saumó milli jóla og nýárs því þá missi ég ekki af honum. Ég verð hins vegar farin aftur út þegar Gyða heldur saumó, því miður, en get verið sæl með að það var akkúrat saumó á meðan ég kom heim í október :) Hver hélt annars saumó í nóvember?
Annars bara allt gott að frétta úr Danaveldi, ég er á fullu í skólanum að rækta bakteríur og dúllast eitthvað með þær, athuga hvernig þær bregðast við hinu og þessu áreiti. Verst hvað þær lykta illa þessar elskur.
Hlakka til að lesa næsta blogg hjá frá Hrefnu og Sellu, ég kíki aftur á síðuna eftir klukkutíma!!!
Ég held að Anna Lára eigi desember og að hún ætli að hafa saumó milli jóla og nýárs!!! Svo er ég í janúar held ég alveg örugglega. Er þetta ekki rétt hjá mér? Þannig að þú verður bara að lifa við saumó (aka slúður) svelti í "örfáa" daga í viðbót. Hvaða slúður kom Sella annars með, svona þýðir ekkert að tala bara um slúðrið það verður að slúðra!!!
Ég verð að segja það er alveg kominn tími á saumó. Ég hitti Sellu um daginn og ég fékk bara slúður og frétta óverdóse. Að vísu hef ég nú eiginlega alltaf fengið slíkt sjokk þegar ég hef talað við Sellu, því hún er endalaus uppspretta fróðleiks (um hitt og þetta fólk). Ég er orðin ansi slúðurþurfi þar sem ég á heima nú orðið í vinnunni og hitti fólk sjaldan. hehehe
En ég legg til að haldinn verði saumó þegar sem flestar verða búnar í prófum. Og ó já hver er næst í röðinni?
