þriðjudagur, apríl 30, 2002
Vá langt síðan ég hef komið hingað inn!
Nei hjá Gyðu litlu öðling verður ekkert djamm í kveld, heldur aðeins dönnuð bíóferð með Ingu. Stefnan er tekin á 2 fyrir 1 tilboð á Fallegan hug, með Gladiator í aðalhlutverki. Svo er aldrei að vita hvað ber við hjá okkur, hvert við förum eftir bíóið. Kannski á bar með fallegu mönnunum tveimur sem verða í bíó eða aleinar heim að sofa ;) (Ömmmm, hvort er líklegra???).
Alla vega þá skiptir það ekki máli, ég held að þetta sé soldil grátimynd svo ég verð að koma við í apóteki á leiðinni heim að kaupa Kleenex! Ég ætla sko að grenja!
JÆja, góðar stundir kæru vinkonur
Ranted at 1:14 e.h.♥
mánudagur, apríl 29, 2002
Æ fyrirgefðu Gyða mín,
ég varð að rjúka út í MK að tala við áfangastjórann en þurfti svo að bíða eftir henni í rúmlega klukkutíma og þá var ég næstum því alveg búin að vinna þannig ég tók mér bara frí og fór á kaffihús áður en ég fór á kaffihúsið að vinna. hehe. I need help.
annars skemmtilegt að segja frá því að ég sat inni á þessu kaffihúsi í smá tíma segjum rúmlega hálftíma en sólbrann á þessum stutta tíma. í andliti og á bringu. Fáranlegt. Ég er að spæla í að stelast í einn krabbameinsbekk á morgun. Ná smá lit. Mér er sama þótt það verði rauður allt skárra en að vera grá.
Ranted at 12:22 e.h.♥
föstudagur, apríl 26, 2002
Sko maður kemur aftur og þá eru bara allir farnir burt af msn og maður situr eftir snippur og snauður með engar útskýringar!!!
Frekar fúllt sko.
Ranted at 3:34 e.h.♥
Happy summer! Gleðilegt sumar! Glædileg somer! Bonne etier! og kann held ég ekki meira. Nú hefst djammið í alvöru vetrardjammið hefur einungis verið æfing á það sem koma skal.
Ranted at 9:26 f.h.♥
miðvikudagur, apríl 24, 2002
OH! Ég nenni ekki að vera hérna, mig langar heim! Eða að vísu verð ég að fara að kaupa mér eitthvað að borða, vegna gríðarlegs hungurs ( ath. hungurs, ekki svengdar) og svo beint í Kringluna að kaupa gjöf handa Kollu. Mig langar ógeðslega mikið í Kókómjólk og það er Hrebbnu að kenna! Já og ég vil þakka fyrir súpuna sem þú sendir mér, hún mun án efa koma sér vel á föstudaginn.
Þrátt fyrir að hafa gjörsamlega ekkert að gera þessa stundina i vinnunni þá fæ ég bara ekki andann yfir mig og verður því staka um Önnu Jónu að bíða enn um sinn. Því miður! mér dettur ekkert gott rím og engin svona skemmtileg saga í hug.
Think, think...
Ranted at 4:28 e.h.♥
Alltaf gaman að fá póst. Gyða fær sér örugglega súpu í hádeginu tíhíhí. Anna Jóna þú fékkst atkvæði í spurningalistunum sem lélegasti drykkjumaður Díonýsusar og það frá Fúsa.
Oh akkuru eru ekki komin mánaðarmót þannig ég væri þá búin að fá útborgað!?! Minns er blankur.
Oh akkuru eru ekki komin mánaðarmót þannig ég væri þá búin að fá útborgað!?! Minns er blankur.
Ranted at 12:24 e.h.♥
þriðjudagur, apríl 23, 2002
Jæja, samkvæmt heimildarmönnum mínum er stakan nú komin í réttar hendur og get ég því birt hana hér í heild sinni:
Hrebbna drekkur mikið öl
en áfengið getur verið böl.
Það sást á laugardaginn
er fórum við í bæinn.
Þó að hún sé stelpa góð
af áfenginu verður óð.
Missir tönn og síma
tönnina þarf að líma.
Endilega látið mig vita ef þið viljið að ég yrki um ykkur!
Ranted at 4:20 e.h.♥
Djöfull er póstþjónustan í Hafnarfirði lélég! Ég sendi stökuna í pósti á föstudaginn fyrir hádegi og enn er hún ekki komin! Hvað er að gerast? Mér er bara spurn! Sko, og það er nú bara eins gott að það fari ekki einhverjir óviðkomandi að lesa stökuna. Ef hún verður ekki komin í hús í sumar (þ.e. á föstudaginn) þá birti ég hana hér og gef skít í póstþjónustuna!!!
Enn hefur mér ekki gefist tími til að semja neitt um Önnu Jónu, en það kemur.
Lifið heil!
Enn hefur mér ekki gefist tími til að semja neitt um Önnu Jónu, en það kemur.
Lifið heil!
Ranted at 3:51 e.h.♥
Ég hef enn ekki fengið stökuna og ég vona að enginn annar en ég lesi hana. En þetta hlýtur að reddast. hehe.
Ranted at 9:55 f.h.♥
mánudagur, apríl 22, 2002
Já, ég heyrði nú ræðuna! Hún var gríðarlega skemmtileg, eða það þótti mér amk kl 2.30 á laugardagsnóttina.
Mér fannst alla vega ógislega gaman á reunioninu! Hlakka nú bara til næst ;)
En ég gerðist nú ekki svo fræg að fara í bæinn, heldur keyrði Telma mig heim á vit pizzuafganga sem voru mjög kærkomnir þarna þegar klukkan var að verða 4.
En hérna, ertu búin að fá stökuna frá mér Hrebbna?
Annars bara takk kærlega fyrir laugardagsdkveldið!
Ranted at 2:52 e.h.♥
Verst að það er ekkert djúsí slúður eftir þetta reunion. En Anna jóna ég hélt ræðuna! þú hlýtur bara að hafa misst af henni.
Ranted at 10:59 f.h.♥
föstudagur, apríl 19, 2002
He he, góð saga! En réttur endir er sko: köttur útí mýri sett'uppá sig stýri og út er ævintýri!
En bíddu...
...um hvern er hún eiginlega ;)
Ranted at 4:14 e.h.♥
Einu sinni voru tvær ungar stúlkur sem unnu á sitthvorri skrifstofunni í sitthvoru bæjarfélagi. Þær höfðu voðalega fátt að gera því þær voru svo duglegar að klára allt jafnóðum. Þessi dugnaður kom þeim stundum í bobba því þá leiddist þeim alveg hrikalega. Þær voru búnar að skoða allt á netinu sem var til og gera allt til að finna nýja afþreyingu en ekkert virkaði. Einn dag kom töframaður og galdraði tvo gullfallega kærasta handa þeim og þá hætti þeim að leiðast og lifðu hamingjusöm til æviloka. Úti er ævintýri, köttur setti upp á sig stýri og you know the rest.
Ranted at 3:25 e.h.♥
Sko þessi hljómsveit er frekar ömurleg. Á akureyri öskraði fíflið viljið heyra Rokk og allir já bjuggumst við einhverju þvílíku nei maðurinn fer að syngja blink182 lag með píkuöskri! Algerlega misheppnaður!
En varðandi reunionið þá er næstum allt klappað og klárt nú er bara að mæta á staðinn og skemmta sér.
En varðandi reunionið þá er næstum allt klappað og klárt nú er bara að mæta á staðinn og skemmta sér.
Ranted at 10:43 f.h.♥
fimmtudagur, apríl 18, 2002
Ó mæ god!
ég var svona ekkert að gera og ákvað því að athuga hvaða hljómsveit, hljómsveitin Spútnik er (þ.e. hljómsveitin sem verður á Players á laugardaginn!). Þá kemur bara í ljós að það er einn piltur sem tók síðast þátt í Eurovision fyrir okkar hönd á síðasta ári sem er söngvari! Mér finnst hann svo fyndinn og hallærislegur að ég á pottþétt eftir að skemmta mér vel, t.d. bara við að horfa á hann og hlæja!
hahahaha
hlakka til!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ranted at 4:39 e.h.♥
Já, þá er ég búin að gera stöku um Hrebbnu sem hún mun fá senda innan skamms. Hún verður ekki birt hér á blogginu fyrr en Hrebbna er búin að fá hana sjálf í hendurnar! Kannski að ég smelli mér bara í það að semja um Önnu Jónu líka, og svo verða bara áhugasamir um að ég yrki um þá stöku að hafa samband í síma 5900200 á milli 8 og 17 en í 8655582 alla aðra tíma! Einnig er hægt að ná í mig á msn og gegnum emil.
Ranted at 4:24 e.h.♥
miðvikudagur, apríl 17, 2002
Já þetta verður spennandi að sjá! Ætlaði Sella ekki að tala við Verslókrakkana? Hún verður nú að gera það með meira en dags fyrirvara, er þaggi svona skemmtilegra. Það verður nottla að vera magnari og svona í svona stórum sal. En eitt skil ég bara ekki, eru engar græjur í þessum ljóta sal? Hvernig er það eiginlega? Ég veit ekki betur en að ég hafi farið á mitt eina bjórkvöld með MR í þessum sal og ég man ekki betur en að ég hafi dansað svo einhver hlýtur músíkin að hafa verið. Kannski einhverjar MR græjur! Maður veit iggi!
Jæja, hlakka til að heyra meira í ykkur hér á blogginu!
Já og Anna panna, hvenær er það svo Chocolate með fallegasta, yndislegasta og besta manni í heimi?
Ranted at 1:17 e.h.♥
Sko ég og sella og telma munum líklegast segja eitthvað en skemmtiatriði má hver og einn koma með ef hann vill. Við reynum að plata Óðinn Pétur til að segja eitthvað. hehe
ÉG þori að veðja að Haraldur vilji eitthvað tjá sig en þó veit ég það ekki fyrir víst. Ég hef aldrei skipulagt svona reunion þannig ég veit ekki hvernig þau fara fram. En bara svona for your info er ekki allt klappað og klárt. Við eigum eftir að búa til nafnspjöldin (hehe) og festa myndirnar upp og redda græjunum og tónlistinni skoða salinn og laga hann eftir okkar hentugleika. OG borga allt saman. Föstudagurinn og Laugardagurinn fara í allt þetta og ég býst við að það verður einkar áhugavert á laugardag.
ÉG þori að veðja að Haraldur vilji eitthvað tjá sig en þó veit ég það ekki fyrir víst. Ég hef aldrei skipulagt svona reunion þannig ég veit ekki hvernig þau fara fram. En bara svona for your info er ekki allt klappað og klárt. Við eigum eftir að búa til nafnspjöldin (hehe) og festa myndirnar upp og redda græjunum og tónlistinni skoða salinn og laga hann eftir okkar hentugleika. OG borga allt saman. Föstudagurinn og Laugardagurinn fara í allt þetta og ég býst við að það verður einkar áhugavert á laugardag.
Ranted at 8:46 f.h.♥
þriðjudagur, apríl 16, 2002
Sælar!
Jæja, þá fer reunionið að verða að veruleika. Fólkið búið að borga fyrir salinn og bara allt að verða klappað og klárt :)
Ég hlakka rosalega til að prófa hinn villta stað PLAYERS! Þann 20. apríl næstkomandi mun hljómsveitin Spútnik leika fyrir gleði og dansi (hverjir sem nú það eru!) samkvæmt upplýsingum frá www.djamm.is. Jamm, sem sagt bara 4 days to go and counting. Hmmm, hvernig ætli að þetta fólk sé í dag? Kemur í ljós, kannski eru bara allir eins og þá er ekkert gaman, eða amk ekki eins gaman. En ef Auður Arna kemur og er orðin mjó, þá mun það nægja mér takk!
Ranted at 2:59 e.h.♥
mánudagur, apríl 15, 2002
Anna Jóna múkki er fugl sem borðar með því að æla matnum og kingja og endurtekur þetta nokkrum sinnum.
Ranted at 4:39 e.h.♥
Jæja, erfiðri helgi lokið! Hrebbna með lausa tönn og símalaus og ég man ekki neitt! Ef ég hef gert eitthvað sem ég ætti að muna þá vinsamlegast látið mig vita. Annars var bara hörkugaman, frábært að dansa svona salsa, ööö...
...kann einhver salsa eftir þetta kvöld?
Annars fíla ég alltaf La cucaracha og guandalamera sko! Ég var nú bara búin að gleyma hvernig er að djamma með ykkur og það er bara svona gríðargaman! Alveg eins og í gamla daga :) Hlakka til reunionsins!!! Annars vil ég bara þakka fyrir frábært kvöld!
LUV
...kann einhver salsa eftir þetta kvöld?
Annars fíla ég alltaf La cucaracha og guandalamera sko! Ég var nú bara búin að gleyma hvernig er að djamma með ykkur og það er bara svona gríðargaman! Alveg eins og í gamla daga :) Hlakka til reunionsins!!! Annars vil ég bara þakka fyrir frábært kvöld!
LUV
Ranted at 1:39 e.h.♥
föstudagur, apríl 12, 2002
Hellú komin helgi enn einu sinni sem er náttúrulega bara snilld. Alltaf helgi og vissuð þið í næsta mánuði eru eintómir frídagar. Uppstigningardagur, Hvítasunnuhelgin, Sumardagurinn fyrsti, 1. maí bara schniiiillld. vúhú. Fjögurra daga vinnuvikur allt á launum. I love life.
Ranted at 1:04 e.h.♥
fimmtudagur, apríl 11, 2002
yo yo yo!
Gydas in the house!!!
Jamm svo er nú það! Annars er fátt að gerast í mínu lífi þessa dagana, eins og svo sem alla daga sko. Ég hlakka ýkt til að enda kvöldið á Players, ég held einfaldlega að þessi staður sé snilld. Kannski ég kíki á helgin.is og athugi hvað verður að gerast þar eftir viku!
Ranted at 9:37 f.h.♥
Ég er bara farin að hlakka svoldið til að reunion verði. 20. apríl verður án efa mjög athyglisverður dagur.
Ranted at 10:07 f.h.♥
mánudagur, apríl 08, 2002
Já einmitt. Takk fyrir að minnast á þessa ömurlegu staðreynd. Ennþá ömurlegri staðreynd er sú að það virðast ekki einu sinni vera til neinir nothæfir karlmenn á landinu! A.m.k. ekki þar sem ég held mig :(
Ranted at 4:53 e.h.♥
´Líka þar sem við eigum ekkert Lovelife þá nærumst við á sögum af vinkonum okkar!
Ranted at 2:47 e.h.♥
Já það verða ALLLLLLIR að fá að vita meira. Það er bannað að eiga leyndó nú til dags, allt sem gerist einhversstaðar fyrir einhvern verður að koma á netið!!! Svo Anna Jóna, keep on writing baby!
Ranted at 1:25 e.h.♥
Bíddu...
...vó er það netkærastinn? Hvernig er maðurinn? Sætur, skemmtilegur, venjulegur, myndarlegur, ljótur, hönk...? Endilega að deila þessu með okkur!!!
...vó er það netkærastinn? Hvernig er maðurinn? Sætur, skemmtilegur, venjulegur, myndarlegur, ljótur, hönk...? Endilega að deila þessu með okkur!!!
Ranted at 9:54 f.h.♥
föstudagur, apríl 05, 2002
Þetta er orðið skuggalegt mál!
Þær eru gjörsamlega horfnar af yfirborði jarðar!!! Ég held bara að ég ætli að hringja í FÍÁFFH (Félag Íslenskra áhugamanna um fljúgandi furðuhluti). Kannski geta þeir frætt okkur um einhverjar óvenjulegar flugferðir yfir Íslandi á síðustu dögum.
Já ég held ég hringi bara núna. Og síminn er .......
Ranted at 3:16 e.h.♥
Kannski skila þær þeim aldrei aftur. ÉG fór á Kofann í gær hélt að ég myndi kannski hitta Önnu Jónu en neeeiiii hún var ekki þar.
Ranted at 11:16 f.h.♥
fimmtudagur, apríl 04, 2002
Ó mæ god!!!
Fjólubláar! Það er verra. Vitiði ekki að fjólublár er litur homma! Ég vona að þeim verði ekki mjög illt í rassinum þegar þeim verður skilað niður...
...ef þeim verður skilað niður!!!
Ranted at 4:32 e.h.♥
Jú Hrebbna! You are all I need :)
Ég var bara að velta fyrir mér hvort það hefði nokkuð komið stór, græn geimvera og hrifsað þær af yfirborði jarðar.
Hmmm...
...hver veit???
Ég var bara að velta fyrir mér hvort það hefði nokkuð komið stór, græn geimvera og hrifsað þær af yfirborði jarðar.
Hmmm...
...hver veit???
Ranted at 11:43 f.h.♥
Ertu að segja að ég sé ekki nóg?!!! stundum sárnar manni þó það komi ekki tár.
En annars hvar er Anna jóna hún hefur ekki sést lengi. Og enn lengra síðan Sella hefur bloggað.
En annars hvar er Anna jóna hún hefur ekki sést lengi. Og enn lengra síðan Sella hefur bloggað.
Ranted at 11:30 f.h.♥
miðvikudagur, apríl 03, 2002
Ok mér leiðist :'-(
Svo hef ég eina spurningu til fjöldans: Hvar er Anna Jóna??? Hún hefur ekki skrifað stakt orða á bloggerinn í langan tíma! Að ég tali nú ekki um Sellu. Stelpur ég vil að þið bætið úr þessu.
LUV
Gyðan (uppsprettaótakmarkaðrarástar)
Ranted at 4:47 e.h.♥
Ok mér leiðist :'-(
Svo hef ég eina spurningu til fjöldans: Hvar er Anna Jóna??? Hún hefur ekki skrifað stakt orða á bloggerinn í langan tíma! Að ég tali nú ekki um Sellu. Stelpur ég vil að þið bætið úr þessu.
LUV
Gyðan (uppsprettaótakmarkaðrarástar)
Svo hef ég eina spurningu til fjöldans: Hvar er Anna Jóna??? Hún hefur ekki skrifað stakt orða á bloggerinn í langan tíma! Að ég tali nú ekki um Sellu. Stelpur ég vil að þið bætið úr þessu.
LUV
Gyðan (uppsprettaótakmarkaðrarástar)
Ranted at 4:47 e.h.♥
Já ég verð nú að segja að mig er farið að hlakka til helgarinnar. Ég lifi fyrir dagana sem sofa má út á. Svo hlakka ég ýkt til að sjá Píkusögur, ég næ nú kannski að kíkja eitthvað í afmælið hennar Bennýar. Það fer samt eftir því hvað á að gera eftir leikhúsið. Fyrst á nebbla að borða og svona og drekka öl, brölta svo í leikhúsið og veltast um af hlátri :) Svo förum við kannski í villt partý með 100 sexý, einhleypum karlmönnum, allt fyrir mig og Ingu því hinar eru giftar!!! Ha ha, 50 á mann.
Og talandi um að vera giftur, ég vildi bara segja ykkur (á kannski helst við um Hrebbnu) að hún Magga Ásgeris er búin að biðja Jónsa og hann sagði já, svo nú eru þau trúlofuð og okkur var bara sagt að bíða eftir boðskorti!!! Það er ekkert smá!
Jæja, nó mor fromm mí túdey
Og talandi um að vera giftur, ég vildi bara segja ykkur (á kannski helst við um Hrebbnu) að hún Magga Ásgeris er búin að biðja Jónsa og hann sagði já, svo nú eru þau trúlofuð og okkur var bara sagt að bíða eftir boðskorti!!! Það er ekkert smá!
Jæja, nó mor fromm mí túdey
Ranted at 9:00 f.h.♥
Jæja ég er þá að tjá mig í annað skipti (var búin að því áðan en ýtti á eitthvað bullshit og allt hvarf (þvílíkt bögg)).
Benný mun halda upp á afmæli sitt næstkomandi föstudag en hún átti einmitt afmæli fyrsta apríl. Ég mun ekki geta verið viðstödd sökum þess ég er að fara erlendis hehe til vestmannaeyja. Gyða er að fara í leikhús þannig hún getur ekki mætt en ég vona að einhvað af stelpunum mæti! ég átti mjög skemmtilega háska páska á Ísafirði. Hægt er að lesa um þá hér.. Pæliði í því það er alveg að koma helgi og helgin var að klárast. Where does the time go?
Benný mun halda upp á afmæli sitt næstkomandi föstudag en hún átti einmitt afmæli fyrsta apríl. Ég mun ekki geta verið viðstödd sökum þess ég er að fara erlendis hehe til vestmannaeyja. Gyða er að fara í leikhús þannig hún getur ekki mætt en ég vona að einhvað af stelpunum mæti! ég átti mjög skemmtilega háska páska á Ísafirði. Hægt er að lesa um þá hér.. Pæliði í því það er alveg að koma helgi og helgin var að klárast. Where does the time go?
Ranted at 8:20 f.h.♥
þriðjudagur, apríl 02, 2002
jæja, maður mætir hér eftir páskafrí og bara enginn búinn að tjá sig nema ÉG! Stelpur þið verðið að vera soldið vakandi og halda þessari síðu á lofti.
Annars er ekkert af mér að frétta annað en það að ég var uppi í sumarbústað frá laugardegi til mánudags, það var nú líka svona ljómandi :) Á sunnudaginn smelltum við okkur á gönguskíði á vatninu eftir að hafa horft á þátt um lyfjahneyksli Finnskra skíðagöngumanna í sjónvarpinu ( ég er ekki að djóka) og ég er ekki frá því að ég hafi bara verið betri en þau þrátt fyrir að Finnarnir væru búnir að stera sig upp! Það er ekkert smá gaman á gönguskíðum :) Næsta vetur mun ég verða ógislega dugleg að fara á gönguskíði í Heiðmörkinni og á Skorradalsvatni, það er nokkuð ljóst!
Ranted at 1:25 e.h.♥
