föstudagur, janúar 31, 2003
En fyndið , þú ert þá Hrefna frænka. hehehehe. Já Ísland er svo lítið og við erum öll skyld í 7-9 ættlið. Það er hægt að fara inná Íslendingabók.is og fá aðgang þar inn og þar er hægt að sjá hverjum þú ert skyld...ekkert smá sniðugt. Þar getur stimplað inn nafn eða kennitölu á hvaða íslending sem er og sjá hvað mikið þið erum skyld. En hvaða systir Esterar ertu að tala um, því hún einhverjar 7 systur.
En girls ég held þá bara að það sé ákveðið með að fara til mín eftir matinn, það er ef Önnu Jónu er sama.
Sjáumst hressar á morgun, (eða kannski hittast einhverjar í mjólkurbúðinni)
Ranted at 12:47 e.h.♥
fimmtudagur, janúar 30, 2003
Oh eg hefdi ekkert a moti thvi ad vera ad fara med ykkur!
Heyrru Gudrun: eg er vist soldid mikid skyld Juliu og Styrmi. Mamma var ad tala vid fraenku okkar (systir Esterar) og hun for eitthvad ad lysa slysinu og mamma sagdi (dohh) ja sama skedi fyrir dottur vinkonu Hrefnu. Fattadi svo adeins seinna sama manneskjan.
Skemmtid ykkur otrulega vel a Arshatidinni!!!
Ranted at 11:57 e.h.♥
FRÁBÆRT allir sáttir þá!! En það var að koma upp að Styrmir er að fara til Englands núna um helgina á fótboltaleik með pabba sínum og þeir fara á morgun. Þá var ég að hugsa hvort það væri ekki alveg eins sniðugt að koma heim til mín eftir matinn því þá er styttra að labba yfir á Nasa þegar við förum þangað (by the way við erum komnar á gestalista þar sem þýðir frítt inn og fram fyrir röðina...veivei). Júlía verður nefnilega í pössum hjá m&p yfir nóttina þannig að við getum tjúttað fullt og þurfum ekkert að hafa áhyggjur af hávaða...engir nágrannar til að kvarta hehehe.
Þær sem ég hef talað við um þetta líst svaka vel á þetta og segið mér bara hvað ykkur finnst, þá pikkum við þig Anna Jóna bara upp þegar við förum frá Rauðará, þær sem verða á bíl hafa líka fullt af bílastæðum til að leggja hér hjá mér.
Allaveganna látið mig bara vita, bæ í bili!
Þær sem ég hef talað við um þetta líst svaka vel á þetta og segið mér bara hvað ykkur finnst, þá pikkum við þig Anna Jóna bara upp þegar við förum frá Rauðará, þær sem verða á bíl hafa líka fullt af bílastæðum til að leggja hér hjá mér.
Allaveganna látið mig bara vita, bæ í bili!
Ranted at 3:40 e.h.♥
Hæ hæ, þá er komið að því að ég sé komin hingað aftur eftir langt hlé. Sorry ég bara gleymdi þessu.
Það sem mér finnst nú allveg leiðinlegast að heyra að hún Anna Jóna okkar ætli ekki að koma með okkur á árshátíðina, þá vil ég bara ekki að það gerist. Anna Jóna mín þú verður nú að koma að DJAMMA með okkur er þaggi........ c",)
Gerðu það, Það yrði ekkert eins gaman en ef að við gætum verið saman allar. Ég var að tala við Hrebbnu áðan og hún bað að heilsa. Hún bað mig einmitt að taka fullt fullt af myndum af þessu kvöldi sem ég er svo búin að lofa að senda henni. Og ekki myndi það skemma fyrir ef að við værum allar saman. En ekki meira í bili er farin að sofa. Sjáumst hressar á laugardaginn (ALLAR :o)
Það sem mér finnst nú allveg leiðinlegast að heyra að hún Anna Jóna okkar ætli ekki að koma með okkur á árshátíðina, þá vil ég bara ekki að það gerist. Anna Jóna mín þú verður nú að koma að DJAMMA með okkur er þaggi........ c",)
Gerðu það, Það yrði ekkert eins gaman en ef að við gætum verið saman allar. Ég var að tala við Hrebbnu áðan og hún bað að heilsa. Hún bað mig einmitt að taka fullt fullt af myndum af þessu kvöldi sem ég er svo búin að lofa að senda henni. Og ekki myndi það skemma fyrir ef að við værum allar saman. En ekki meira í bili er farin að sofa. Sjáumst hressar á laugardaginn (ALLAR :o)
Ranted at 12:33 f.h.♥
þriðjudagur, janúar 28, 2003
Hvaða hvaða! Ekki gaman ef það koma ekki allir með :( En Anna Jóna mín þú kemur amk með okkur að jamma á eftir, er þaggi :)
Annars á ég að vera að læra stærðfr.greiningu núna, en í baráttu minni við svefninn ákvað ég að kíkja aðeins í tölvuverið! Voðalega er þreytandi að vera í skóla, það virðist vera að maður geti sofið í 18 tíma á dag og bara vakið í 6 og þá er maður alveg uppgefinn! Þetta er allt hið undarlegasta mál. Spurning um að fara að kaupa sér Rautt Eðalgingsen!
Ranted at 1:36 e.h.♥
mánudagur, janúar 27, 2003
Hey girls, ég hef ekki verið að tölvunördast neitt í langan tíma og hef því ekkert kíkt á littlu rotturnar í alltof langan tíma.
Ég sé að þið eruð að tala um þýsku....! ég er víst stúdent í þýsku líka og díses ég gæti ekki bjargað mér þótt ég ætti lífið að leysa:) Ég held meira að segja að ég hafi útskrifast með 6.5 í þýsku og ég var með þeim hæstu í bekknum hehehe.
En Anna Jóna mín við erum allar álíka fátækar en þetta þarf sko aldeilis ekki að kosta svona mikið. Ég t.d. þekki gæjann sem á Nasa og ætla að reyna að díla við hann um að fá ódýrara inn eða jafnvel ókeypis fyrir okkur (ég brosi bara og lyfti upp pilsinu...nei djók:) og svo ætla ég að eyða sem minnstu í vín niðri í bæ bara eins og ég geri alltaf. Ef við förum heim til þín eftir matinn í smá partý eins og stóð til að gera (hélt ég) þá getur maður alveg hellt í sig þar bjór sem maður kaupir í ríkinu á 5 sinnum ódýrara verði en á barnum ;):) Svo er líka svo gaman að fara einstaka sinnum út að borða á fínan stað og fá þriggja rétta máltíð. Ég hef ekki gert það síðan á árshátíð í Verzló, ég fer líka alveg reglulega á Hornið og splæsi á mig pizzu. Mér finnst líka svo gaman að eyða peningu í eitthvað svona skemmtilegt hvort sem ég á þá eða ekki. Díses ég er meira í mínus en plús á bankareikningum.
En ég hélt reyndar að Telma hafi ætlað að tjékka á því fyrir þig Anna hvort þú mættir fá þér eitthvað annað að borða sem er ódýrara en þetta sem við erum að fá. Þannig þarftu ekki að eyða öllum peningunum þínum í matinn og gætir kannski fengið þér einn kokteil líka ;)
Þetta reddast allavega einhvernveginn, ekki afskrifa þetta alveg strax, og þó að þig langar alls ekki að borða með okkur útaf peningaleysi þá getur þú alveg samt komið með okkur á djammiðl...er það ekki.
jæja núna ætla ég að fara að læra eða kannski bara tölvunördast eitthvað meira.
Ranted at 9:14 f.h.♥
sunnudagur, janúar 26, 2003
Thorvaldsen var fínn, ákveðið hefur verið að fara á Rauðará þann 1. febrúar :) Nammi namm!!! Já og hvað varðar þýskuna þá er ég víst stúdent í henni en kann ekkert! Mér finnst samt magnað að frakkarnir segja bara "pass" þegar þeir skilja ekki! hehehe Eina sem ég veit og er nauðsynlegt að vita á þýsku er að byðja um "Ein mas Bier", en þá fær maður heilan líter í stóru glasi :)
Svo fór ég í alveg eðal vísindaferð á föstudaginn, ógrynni af bjór og nesti með í rútuna niður í bæ :) Svona á þetta að vera!!! Nema að þetta var ekki eins skemmtilegt þegar ég vaknaði í gær :( Hins vegar eignaðist ég nýjan frænda á föstudagskvöldið, en ég og einn verkfræðingurinn frá VSÓ erum víst náskyld! Stundum er alveg magnað hvað kemur út úr því að fá svona málæði eins og ég fæ einstaka sinnum, maður eignast bara frændfólk og alles, ég skal segja ykkur það...
Ranted at 9:46 e.h.♥
Hey hvernig var Thorvaldsens og keep me updated with arshatidarinfo (sjaid hvad eg er ordin amerisk get ekki einu sinni talad islensku). Eg verd med ykkur i anda. OH!
Anna Jona: eg tok sko fronsku alveg upp i 403 og nadi en kann ekki bofs i fronsku. Nema parlez vous francais?(talid ther fronsku) og Je ne sais pas (eg veit ekki). Thu att alveg eftir ad meika etta.
Anna Jona: eg tok sko fronsku alveg upp i 403 og nadi en kann ekki bofs i fronsku. Nema parlez vous francais?(talid ther fronsku) og Je ne sais pas (eg veit ekki). Thu att alveg eftir ad meika etta.
Ranted at 2:47 f.h.♥
mánudagur, janúar 20, 2003
Jæja, við þurfum ekki að veltast lengur í vafa Anna Jóna mín, það verður líklega allt á hreinu með árshátíðina eftir fundinn annað kvöld á Thorvaldsens :) Mig langar alveg rosalega að mæta en það er skyndihjálparæfing hjá okkur á sama tíma :( Það er nefnilega hópslysaæfing á laugardaginn hjá læknanemum, við á 1. ári leikum reyndar bara sjúklingana og þurfum líklega ekki að beita skyndihjálpinni mikið en samt gott að fara á svona námskeið. Æfingin fer fram á Paintball vellinum í Kópavoginum. Það verður sett upp stríð og það er komin sending frá Nato, fullt af felulitabúningum og tækjum sem sprauta blóði og gervisárum o.fl. Spennandi!
Ranted at 9:06 e.h.♥
sunnudagur, janúar 19, 2003
Nei, ekki ég heldur. Það er samt alveg nett mikið sem hægt er að læra þannig að ætli maður verði ekki að reyna. Búin að gera allt annað en það um helgina. Á föstudaginn var móttaka fyrir okkur nýnemana hjá deildarforseta læknadeildar. Hófum djammið þar því hann tók svo skemmtilega til orða: "Við ætlum okkur að koma ykkur út á lífið í kvöld svo endilega fáið ykkur af veigunum sem í boði eru". Hehe, við létum ekki á okkur standa og kláruðum það sem í boði var :/ Svo fórum við á 67 og fengum okkur smá að borða og svo var partý með 2. árs nemum á Kaffi Reykjavík (aðal pleisið). Vorum þar til miðnættis og þá var stefnan tekin á Astró þar sem við dönsuðum fram á rauða. Svo í gær fórum við Atli út að borða og í leikhús, fórum að sjá Sól og Máni (leikritið með Sálinni hans Jóns míns). Vorum búin að heyra mjööööög slæma dóma áður en við fórum og vorum því nett svartsýn. En svo var líka bara svoooooo gaman! Kannski því við gerðum okkur engar vonir.....en ég mæli með þessu!
Eru ekki annars allar geim fyrir árshátíðina? Ég er farin að hlakka rosalega til :)
Ranted at 8:29 e.h.♥
miðvikudagur, janúar 15, 2003
woohoo go Gyda!!! Pliiiiis ekki thid lika byrja ad vera ofurtruud og bidja fyrir allt og ollu. Megi gud fylgja ther er eitthvad sem eg heyri a hverjum degi! Sko og eg er manneskjan sem truir ekki einu sinni a thetta bull.
Ranted at 6:44 e.h.♥
þriðjudagur, janúar 14, 2003
Ég er búin að endurbjóða þeim sem ekki eru enn komnir á bloggið með fallegri kveðju sem hér fylgir á eftir:
"Jæja þetta er í síðasta sinn sem ég nenni að senda eftirlegukindunum invite á bloggið, komið núna eða þið getið átt ykkur!
Kv. Gyða"
Það er nebbla það
Ranted at 10:53 e.h.♥
Vott is heppening!!?? Vissuð þið að stærsta orkufyrirtæki Noregs heitir Tussa!!! Þetta er gjörsamlega magnað.
Ranted at 10:42 e.h.♥
Hvurslags! Er Hexadentið að svíkja!!! Ég bara trúi þessu ekki, þú ert þá örugglega með eitthvað munnangur dauðans. Maður verður bara að fara að biðja fyrir þér og biðja þig vel að lifa! Annars hef ég verið að velta fyrir mér hvers vegna peningarnir vaxi ekki bara á trjánum, það væri svo miklu auðveldara. Eða þá að maður myndi bara skíta þeim, þá myndi maður keppast við að háma í sig lakkrís til að fá svo niðurgang! Bara smá svona pæling!
Ranted at 10:34 e.h.♥
mánudagur, janúar 13, 2003
Hehe, kannski að Indverska prinsessan verði sett í formalín einhvern daginn :) Það er amk líklegra en að hún komist á vaxmyndasafn. Muhahahahaha
En ég er líka í ógislega skemmtilegu fagi, er í fríhendis teikningu og fæ bara að sitja og spjalla, teikna og lita! Mjög gaman!
Varðandi munnangrið skaltu fara út í apótek og kaupa Hexadent, það er vont á bragðið en svínvirkar!!! Kostar svona 400 kall. Svo er stærðfræðigreiningareinkunnin mín ekki enn komin! Held að það sé verið að reyna að drepa mann!!! Ég meina það.
Jæja best að fara að hoppa í heita og góða sturtu! Ahhhhhh
Ranted at 7:20 e.h.♥
laugardagur, janúar 11, 2003
Hæ skvísur. En gaman hvað bloggerinn okkar er aftur orðinn líflegur :) Við gleymdum samt í síðasta saumó að minna allar á síðuna...var það ekki annars? Kannski missti ég bara af því :/ En Anna Jóna, ég man eftir tveim tvíeykjum í augnablikinu, Tommi og Jenni og svo Tímon og Púmba úr Lion King. Annars var einn vinur hans Atla sem tók að sér að passa tvo ketti fyrir vinkonu sína sem flutti til útlanda í nokkra mánuði. Hann var búinn að gleyma nöfnunum á þeim um leið og stelpan var farin svo hann kallaði þá bara köttur 1 og köttur 2 allan tímann! Hvenær á annars að kynna okkur fyrir honum Herði? Við verðum nú að fara að fá að vita eitthvað aðeins meira um þennan dreng ;)
En ég er komin á fullt í líffærafræði og fleiri skemmtilegum greinum. Vorum t.d. í verklegri líffærafræði á föstudagsmorgun. Þurftum að fara úr að ofan og vorum síðan að þreifa á hverju öðru, finna útlínur beina og horfa á hvernig þau hreyfast. Afskaplega skemmtilegt! Svo fengum við bein í hendurnar svona til að sjá þetta betur og guess what! Öll beinin þarna eru úr Indverjum!!! Mætti halda að Indverjar væru eitthvað forðabúr fyrir raunvísindadeildir Vesturheimsins!!! Svo þegar líður á önnina förum við að skoða líffæri og útlimi sem eru búin að liggja í formalíni í fleiri fleiri ár. ÍÍÍÍÍhaaaa :) Þetta verður gaman :)
Heyrðu Gyða, við sjáumst kannski í bænum í kvöld c", )
Ranted at 6:51 e.h.♥
föstudagur, janúar 10, 2003
Hey ég er með svona skrúfur Anna Jóna, meira að segja tvær! Og til þess að svala forvitni Hrefnu þá hef ég komist í gegnum þessi málmleitarhlið á flugvöllum ;) híhí
Hvernig stendur annars á því að stundartaflan mín er eins og sigti? Það er bara tími, gat, tími, gat... Gjörsamlega óþolandi og svo eru kennararnir bara að setja fyrirlestra í þessari viku í dæmatímum sem eiga ekki að byrja fyrr en í næstu viku!!! Algjört svindl! En hvað um það, helgin byrjar eftir 2 kennslustundir og kíkt mun verða á djammlíf borgarinnar í kveld og annað kveld. Annars verð ég nú að segja ykkur eitt stórskrítið, véla- og iðnaðarverkfr. skorin fer í kvöld í vísindaferð á Astró!!! Mjög undarlegt, skil ekki hvernig það verður. Hér er barinn, það seljum við bjórinn, leiðin til að verða alvöru astró"tjokkó", og hér er fatahengið... ég meina það, þetta er stórundarlegt.
Já og Anna Jóna ég skal mæta í útskriftarveisluna þína, vona samt að hún verði aðeins fyrr en eftir 13 ár :) Og til hamingju með fiskana þína, greyin litlu að búa í kúlu! Ég var nebbla að læra það um daginn að úr kúlu sjá fiskarnir veröldina utan kúlunnar mjög spooky, betra er að hafa þá í ferköntuðu búri. Ég skal bara segja ykkur það...
Ranted at 12:23 e.h.♥
fimmtudagur, janúar 09, 2003
TIL HAMINGJU TINNA MIN!!!! Eg sagdi ther ad thu myndir komast inn.... eg er sko skyggn! Nu geturu laeknad mig thegar eg er buin ad fa taugaafall eftir onnina. Ok eg svoldid god med mig ad skra mig i 4 visindakursa og einn bokmennta-ritgerdarkurs...
Dr. Brynhildur Tinna Birgisdottir.... hljomar vel!
Anna Jona hvernig er tha med svona malmleitartaeki??? Tharftu tha ad hafa skrufjarn med ther.... heheheehe
Ranted at 6:50 e.h.♥
Þúsund hamingjuóskir til Tinnu!!!!! Þetta hlýtur að vera æðisleg tilfinning :)
Ég á enn eftir að fá eina einkunn, hún hlýtur að koma á morgun!
Já og Hrefna bara verði þér að góðu með jólakortið, undarlegt hvað þessi póstur er alltaf seinn!!!
Best að fara að læra!
Ég á enn eftir að fá eina einkunn, hún hlýtur að koma á morgun!
Já og Hrefna bara verði þér að góðu með jólakortið, undarlegt hvað þessi póstur er alltaf seinn!!!
Best að fara að læra!
Ranted at 1:40 e.h.♥
Vúúúúúhúúúúú :) Ég komst inn í læknadeild. Hamingja út í eitt. Kennslan hefst strax í dag kl.11 :)
Ranted at 8:56 f.h.♥
þriðjudagur, janúar 07, 2003
Eg thakka jolakortid Gyda min... fekk thad i dag!
Eg er lika byrjud i skolanum nett stud... erfidir timar en samt aldrei of snemma a morgnanna.
Ranted at 10:34 e.h.♥
Gleðilegt ár!!!
Jæja þá er maður kominn aftur í skólann! Ekki svo skemmtilegt að fá ekki að sofa út í morgun. Auk þess er ég í eyðu, það er hörmulegt að koma á fyrsta degi og fara í einn tíma og svo í eyðu! Þá veit maður hvernig allt stefnir þennan veturinn :( Svo er maður auðvitað ekki með neinar bækur eða neitt, þannig að maður verður bara að hangsa á netinu, gríðarleg stemmning!!!
Jæja þá er maður kominn aftur í skólann! Ekki svo skemmtilegt að fá ekki að sofa út í morgun. Auk þess er ég í eyðu, það er hörmulegt að koma á fyrsta degi og fara í einn tíma og svo í eyðu! Þá veit maður hvernig allt stefnir þennan veturinn :( Svo er maður auðvitað ekki með neinar bækur eða neitt, þannig að maður verður bara að hangsa á netinu, gríðarleg stemmning!!!
Ranted at 10:19 f.h.♥
laugardagur, janúar 04, 2003
Gledilegt Ar stelpur...
Ja takk fyrir mig Benny, verst ad thurfa ad flyta ser svona en eg var natturulega ad kvedja allt lidid mitt. For i ansi margar heimsoknir etta kvold. Annars komin til Florida voda anaegd ad sja hann Jon minn. :)
Ranted at 12:13 f.h.♥
föstudagur, janúar 03, 2003
Hæ gellur...GLEÐILEGT ÁR...og takk fyrir síðast! Skemmti mér mjög vel, þetta var t.d. alveg rosalega skemmtilegt spil sem við spiluðum. Ég var náttúrulega svona í þreyttari kantinum þegar ég vaknaði kl. 5 morguninn eftir til að fara í vinnuna en hvað með það, kvöldið var frábært :) Hver er næst til að halda saumó?
Ranted at 9:23 e.h.♥
