<xmp> <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3238927?origin\x3dhttp://rotturnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script> </xmp>
fimmtudagur, ágúst 29, 2002
Hva, var þetta einhver massa gella sem var með þér í herbergi? Kannski svona trukkalessa sem hefur meiri áhuga á flugvélum ;) nei ég segi bara svona! Það verður svo spennandi að sjá í janúar hvort Tinna verði læknirinn okkar allra í framtíðinni. Þorum nottla ekki til hennar ef hún er ekki siðferðislega í lagi! Hvað sem það nú þýðir!!! Ég skal styrkja þig um 500 kr í mútusjóðnum ef til þess kemur Tinna ;)

Annars er ég að tryllast á heimadæmum í eðlisfræði, eitt dæmið er óleysanlegt og ég er að hugsa um að skila því bara sem svari, hehe. Annars lítið að frétta af mér, nema hvað nefið á mér er orðið samvaxið eðlis- og stærðfræðibókum, einkar fegrandi fyrir unga stúlku eins og mig :) Svo ætlaði ég að vera massa gella og skrá mig í fyrstu vísindaferðina í gær sem er á morgun, og hvað haldiði, bara skráningu lokið og Gyða þarf að bíða í heila viku og 2 daga til að komast í bjórinn! Þetta er nottla ekki hægt!!!

Og já ég keypti gleraugun í Linsunni. Búin að breyta um stíl, óvíst að þið munuð þekkja mig næst þegar við hittumst, hí hí. Ekkert róttækt samt.
Ranted at 9:24 e.h.♥

|


Ha! Hætti hún í skólanum til að fara í flugherinn?!? Góða gellan, smá óákveðin, gerir ekki mikið til ;)

Jæja, kynningarfundur læknadeildar nýafstaðin. Okkur var kynnt hið nýja hræðilega óttalega próf sem lagt verður fyrir í desember ásamt hinum sem alltaf eru. Þar á að prófa þinn innri mann sko! Einn hlutinn af prófinu á t.d. að reyna á úrlausn siðferðilegra vandamála. Þar áttu að skrifa stuttar ritgerðir. Sem þýðir að það þarf að finna einhvern mann sem er tilbúinn að fara yfir 200 próf, meta þau öll eins, og meta ÞAÐ HVORT ÉG SÉ SIÐFERÐILEGA Í LAGI. Hahahaha! Gaman að sjá hvað maður fær í þessu prófi. Og ef það munar aftur einhverjum 0,05 eins og síðast þá ætla ég að múta þessum gaur. Því það fer tölva yfir allt hitt, þýðir lítið að reyna mútur þar.

Svo er svona smá lukka í krukku. Núna á að hleypa 48 inn í stað 40 í fyrra. Ef þeir hefðu gert það einu ári fyrr hefði ég náð inn í fyrra. Prump! En það eru í staðinn bara betri líkur núna.....verður maður ekki að horfa á björtu hliðarnar? :/

Hvar keyptirðu gleraugu Gyða?
Ranted at 4:46 e.h.♥

|


þriðjudagur, ágúst 27, 2002
Saelt veri folkid!

Eg vaeri nu alveg til i ad skreppa til Parisar. ekki malid! Annars haetti Promise i skolanum og gekk i flugherinn. Hun flutti ut i morgun. Nei thetta var ekki mer ad kenna thvi ad eg taladi varla vid hana thvi eg hitti hana bara 3 sinnum. En thetta er agaett tha hef herbergid ein allavega i bili.
Ranted at 6:17 e.h.♥

|


Halló halló!
Fyrsti dagurinn í skólanum í dag. Rosa stemmning, þetta verður örugglega fínt. Er einmitt komin með fyrstu heimadæmin í hendurnar og á að skila þeim á föstudaginn, maður er greinilega byrjaður!!! Svo er bara allt brjálað að gera í því núna að prenta út glósur!!!

Ohhh, þegar maður heyrir svona um París langar mann eitthvað annað en að vera hér í grámanum!!! En það þýðir ekki að tuða, ég skal reyna að fara varlega í vetur og komast hjá öllum slysum :) Svo er ég líka að fara að kaupa ný gleraugu í dag, brjáluð pæja!!!

Jæja best að fara að gera eitthvað af viti, t.d. eyða mörg þúsund krónum í bækur!!!
Sí jú gæs
Ranted at 2:08 e.h.♥

|


mánudagur, ágúst 26, 2002
Hæ skvísur. Jæja, við bara allar að byrja í skólanum :) Svaka stemmning. Verðum að vera duglegar að koma inn á bloggerinn til að halda andlegu heilbrigði ;) Hvernig er annars hjá þér Hrefna? Hvernig líkar þér við Promise?

Ég kom heim á föstudaginn eftir vikuferð til Parísar. Þetta var frábær ferð, við Atli vorum algjörir japanskir túristar, fórum á alla helstu staðina og tókum hátt í 100 myndir! Verí næs. Fórum upp í Eiffel og Sigurbogann (nýja og gamla), löbbuðum niður Champs Elysée, skoðuðum dánarstað Díönu prinsessu, sigldum niður Signu, fórum upp í Montmartre og skoðuðum Sacre Cæur, fórum inn í Notre Dame, gengum um Latínuhverfið, fórum á Louvre og sáum Monu Lisu o.s.frv. o.s.frv. Algjör snilld þessi borg. Mér fannst samt oft eins og ég væri frekar stödd í leikmynd fyrir einhverja bíómynd, stundum var það svo óraunverulegt að vera á sumum stöðunum, t.d. standandi við hliðina á Sigurboganum.

Svo í dag er fyrsti dagurinn á Þjóðarbókhlöðunni, staður þagnar og volæðis. Ég fékk þvílíka gæsahúð þegar ég labbaði hingað inn og mér er búið að vera óglatt alveg síðan. Mæli ekki með þessu. Er að hugsa um að vera bara góð við sjálfa mig og hafa daginn stuttan.

Jæja, gangi ykkur vel í skólanum. Og farðu varlega Gyða mín, þú ert búin að lenda í svo mörgum slysum í sumar að ég held þú megir ekki við meiru.
Ranted at 11:41 f.h.♥

|


föstudagur, ágúst 23, 2002
hi gellur! loksins ordin netvaedd a heimavistinnni. Halleluja!
Ranted at 2:36 e.h.♥

|


þriðjudagur, ágúst 20, 2002
Jæja síðasti dagurinn í vinnunni! Svo tekur við lestur á Lord of the Rings í viku, svo skólinn. Nóg að gera greinilega ;)
Ég hlakka mjög til að liggja í leti og gera ekki neitt! Nema hvað ég er búin að skemma >fyrsta í sofa út< með því að fara til augnlæknis á morgun kl. 8.20, en jæja, það er kannski betra að sjá eitthvað!!!
Svo var ég að fá bókalistann minn og þeir eru ekki búnir að setja inn nærri allar bækurnar svo maður heldur að maður sé að fara að sleppa billega, a.m.k. þar til annað kemur í ljós!
Ranted at 3:00 e.h.♥

|


mánudagur, ágúst 19, 2002
Halló halló!
Gaman að heyra að Hrefna er að fara að koma sér fyrir, en ekki eins gott að heyra að það hafi bara kviknað í hjá Tinnu!!! 112 og læti! Annars hafði ég það mjög fínt fyrir austan, eðalafslöppun og fullt af góðum mat. En menningarnóttinni eyddi ég meðal annars í það að borða gillaðar pulsur með fjölskyldunni, án þess að það kviknaði í grillinu ;) Svo fór ég á hestbak í gær, það var mjög skemmtilegt, nema hvað hesturinn minn hnaut og missti undan sér báðar framlappirnar og ég skaust af baki og rétt slapp við að enda undir honum. Fór svo í kollhnís á mölinni og er nú með bólgna öxl, marin hné og bak og bólgur og sár á báðum höndum. Einkar skemmtilegt, en ég vippaði mér að sjálfsögðu aftur á bak og nú er mér líka illt í rassinum!
En núna á ég bara eftir að vinna í 2 daga! Þ.e. í dag og á morgun :) Jibbý, svo er það bara tæp viku afslöppun! Það verður fínt!!!
Ranted at 9:53 f.h.♥

|


fimmtudagur, ágúst 15, 2002
Sjúff! Ég hætti að vinna í gær. Brjálað að gera við að koma verkefnunum af mér o.s.frv. og svo endaði vinnudagurinn í svaðalegu kveðjukaffi þar sem ég át yfir mig af kökum. Svo héldum við Atli grillpartý í gær fyrir nokkra krakka. Ætluðum nú að vera svakalega myndarleg og setja kartöflurnar á grillið tímanlega svo allt yrði ready þegar þau kæmu. Svo Atli fer út að kveikja á grillinu og ég er eitthvað að þrífa inn á baði. Svo allt í einu heyri ég alveg hrikalegan hvell og Atli kemur öskrandi inn "Tinna, það er kviknað í, það er kviknað í"!!!! Ég kíki út á svalir og ég er að segja ykkur það stelpur, það stóð allt í ljósum logum þarna úti. Og við hringjum í 112 og hlaupum fram á gang og náum í slökkvitækið. Svo með hetjulegum töktum slökktum við í grillinu og umhverfi þess og náðum að skrúfa fyrir gasið.

Þá rann upp fyrir okkur báðum í einu atriðið úr Something about Mary þegar hann renndi rennilásnum í tippið á sér sem var ekkert tiltökumál nema hvað að samt fylltist allt af slökkviðliðsbílum og sjúkrabílum. Heimfært á Tryggvagötu 6 þá sáum við fyrir okkur að götunni yrði lokað og allt fyllast af liði svo við hringdum aftur í 112 og afturkölluðum SOS beiðnina sem við höfðum öskrað í tólið nokkrum sekúndum áður! Og svo sit ég núna og bíð eftir einhverjum gaur frá Eld.....eitthvað til að koma og fylla á slökkvitækið :/ Þetta var nú aldeilis lífsreynsla út af fyrir sig. Og hei.... það er sápulykt af þessari froðu sem kemur út úr svona tækjum, aldrei hefði mér dottið það í hug!

En áfram með söguna. Nú var þetta fína grill bráðnað = ónýtt. Og þá voru góð ráð dýr. Fullt af fólki á leiðinni. Ég henti hlussukartöflunum inn í ofn og Atli náði í svona pínulítið grill sem við eigum, líkist helst ferðagrilli. Svo rúmlega klukkutíma eftir að fólkið kom voru kartöflurnar loksins tilbúnar og með undraverðum hætti tókst að steikja kjöt ofan í alla. Þannig að ég held að kvöldið hafi bara heppnast ágætlega eftir allt saman.

En jæja, hvað á að gera á menningarnótt?
Ranted at 1:22 e.h.♥

|


miðvikudagur, ágúst 14, 2002
heimasida Hrebbnu Er enn a ibudarhoteli en flyt a sunnudag. Tha byrja eg ad koma mer fyrir.
Ranted at 10:35 e.h.♥

|


Jæja fer til Egilsstaða á eftir, mun því ekki rita eitt einasta orð hér í næstum því í viku!!! Þ.e. ekki fyrr en á mánudaginn! En ég er svo sem ekkert hrædd um að missa af neinu hér þar sem allt gerist mjööög hægt!!! Verð hlaupandi uppá hóla á Austurlandi og í snú-snú og barbí með ákveðnum aðilum þess á milli. Annars varð ég mér úti um alla Lord of the Rings svo ég verð örugglega með nefið mikið ofaní henni stóran hluta ferðarinnar :)

Heyrumst síðar görls!
Ranted at 1:53 e.h.♥

|


Jæja, Hrefna í útlöndunum! Við bíðum spenntar eftir fréttum!!!
Annars vil ég þakka Önnu Jónu fyrir vel heppnað Johnny Depp kvöld. Djöfull er þetta getnaðarlegur maður ;)
Ranted at 9:05 f.h.♥

|


mánudagur, ágúst 12, 2002
hae gellur! komin heil og holdnu til florida. Skrifa meira seinna
Ranted at 4:42 e.h.♥

|


Yndisleg helgi liðin! Eftir afslöppun og saumaklúbb með MR stúlkunum á föstudag, vaknaði ég eldhress fyrir 9 og hélt í stærðfræðitíma. Svo fór ég á Gay Pride hátíðina ásamt Benný, vinkonum hennar og Ásu. Hvað haldiði annað en að við vorum auðvitað undir skýlinu sem hrundi, sem betur fer fengum við það samt ekki í hausinn! Eftir þetta mikla áfall ;) fór ég heim og lá uppi í sófa og horfði á sjónvarpið allt kvöldið! Svo í gær horfði ég á mikið augnakonfekt ásamt pabba, eða Ocean Eleven! Mjög góð mynd og einkar skemmtileg áhorfs :)
Ranted at 9:03 f.h.♥

|


miðvikudagur, ágúst 07, 2002
Hann var að reyna að fá mig til að dansa, en ég neitaði því ég var að drekka bjórinn minn. Þá beitti þessi tveggja metra hái "maður" mig þessu ofbeldi!!!
Ranted at 1:34 e.h.♥

|


Gyða mín. Hvað var vinur þinn eiginlega að reyna þegar hann setti þig á hvolf?
Ranted at 12:54 e.h.♥

|


þriðjudagur, ágúst 06, 2002
Eftir hífandi rok og rigningu í Eyjum er ég að deeeeeeyja úr þreytu. En það var ógeðslega gaman!!! Maður smellti sér nottla bara í regngallann, flíspeysurnar tvær, gammosíurnar, termobolinn, jogginbuxurnar, ullarsokkana og stígvélin og var í góðum gír ;) Þrátt fyrir smááföll eins og að vera sett á hvolf og svo sleppt á steinsteypuna og raddleysi var þetta ógeðslega gaman. Eftir flugferðina á hausinn var ég með svo stóra kúlu á enninu og risa sár að það gekk upp að mér lögreglumaður og spurði mjööög alvarlegur: "Hver gerði þér þetta?", ég þurfti þá að svara eins og fífl: "Vinur minn!". Löggan hélt ég væri fífl!
Úff ég sit hérna í eftirköstum þynnkunnar og bíð eftir að klukkan verði 5! Vona að helvítis klukkan fari nú að ganga soldið hraðar!!!
Ranted at 3:24 e.h.♥

|


föstudagur, ágúst 02, 2002
Ég er að fara til Eyja ligga ligga lái. Ég held að það þurfi ekki að óttast annað en að ég muni skemmta mér vel. Annars var kallinn að hringja frá Bakka og segja okkur að koma bara sem fyrst því veðrið gæti versnað með kvöldinu og þá verður erfiðara að fljúga, hmmm hvað svo sem það þýðir!!! Vona bara að ég komist lífs af.
Jæja heilar og sælar að sinni dúllur!!!
Ranted at 3:18 e.h.♥

|


Ég er í fríi en ekki að fara neitt. Mongó skrítið að vera ekki að fara til eyja. En allavega skemmtið ykkur geðveikt um helgina.
Ranted at 12:56 f.h.♥

|


fimmtudagur, ágúst 01, 2002
Styttist í helgina, samt mesta svindlið að fullt af fólki er bara í fríi á morgun! En ekki ég, ég verð hér að strita og púla áfram!!!
Ranted at 3:07 e.h.♥

|


Svarthvít mynd um klikkaðan leikstjóra sem tókst aldrei að meika það!!! Æi....ég held að ég sé hætt að taka þessi próf! Reyndar finnst mér þetta Dr. Phil próf alger snilld, finnst lýsingin passa frekar vel við hvern og einn, alla vega það sem ég hef séð.
Ranted at 11:48 f.h.♥

|


41 TO 50 POINTS:

Others see you as fresh, lively, charming, amusing,

practical, and always interesting; someone who's constantly

in the center of attention, but sufficiently well-balanced

not to let it go to their head. They also see you as kind,

considerate, and understanding; someone who'll always cheer

them up and help them out.

Þetta er það sem ég fékk í Dr. Phil prófinu

Ranted at 11:45 f.h.♥

|