fimmtudagur, júní 24, 2004
Jæja nú sit ég hérna með vasadiskó og hvað kemur annað en Nylon á FM957! Mér finnst mjög sárt að viðurkenna, þar sem ég er ógurlega mikið á móti svona samsettum böndum, að lagið "Einhversstaðar einhverntíma aftur" eða hvað það heitir er bara ágætt hjá þeim. Samt hlusta ég ógurlega gagnrýnin og býð eftir falskri nótu eða einhverju slæmu, en þá fatta ég, nei auðvitað er bara búið að laga raddirnar í tölvu! Haha þannig að í raun hefði ég alveg getað sungið þetta sjálf, látið laga í tölvunni og verið bara ánægð! Þannig að ég held bara áfram að vera á móti Nylon. Svo eru þættirnir á Skjá einum líka hörmung!!!
Ranted at 2:52 e.h.♥
sunnudagur, júní 20, 2004
Hæ skvísur.
Jæja, þá er skipulagning sumarhátíðarinnar komin á fullt skrið. Dagsetningin hefur verið ákveðin:
17. júlí
Taka daginn frá ;) Okkur langar, áður en skipulagningu lýkur, að bera undir ykkur hvort hátíðin megi vera barnlaus? Við fengum nefnilega snilldarhugmynd en því miður krefst framkvæmd hennar þess að aðeins Dísir ásamt mökum verði með :/ Hvað segja mæður um þetta?
Hlökkum til að heyra frá ykkur :)
Dr. T og Dr. G (string)
Ranted at 8:08 e.h.♥
sunnudagur, júní 13, 2004
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag.....
Vildi bara nýta tækifærið og óska henni Hrebbnu minni innilega til hamingju með afmælið í dag, og vona að hún hafi notið dagsins í botn!!
En annars er ekkert að frétta af mér, bara vinna, vinna vinna og audda nær maður djammi um helgar!
Var að spá hvenær á að halda sumarhátíðina og hver er með næsta saumó
MISS YOU GIRLS.....
Ranted at 11:37 e.h.♥
fimmtudagur, júní 10, 2004
Eru ekki allir úti að njóta góða veðursins???? Mér finnst ótrúlega mikil synd að sitja inni í vinnunni í svona veðri.
Ranted at 5:41 e.h.♥
miðvikudagur, júní 09, 2004
OK Telma linkurinn kominn. Smá tregða í gangi hérna í hausnum ;)
Ranted at 8:48 f.h.♥
þriðjudagur, júní 08, 2004
Breytingar
Jæja stelpur, fyrst að Anna Jóna kvartaði þá er ég búin að gera smávægilegar breytingar neðst hægra megin á síðunni. Tékk it át! Hvernig finnst ykkur að hafa svona? Kannski að hafa þetta eitthvað ofar. Ætla aðeins að melta þetta, endilega commentið :)
Ranted at 3:09 e.h.♥
föstudagur, júní 04, 2004
Jæja dömur, á ekki að tjútta um helgina? Ég ætla amk út og jafnvel að maður fari niður í bæ að æfa dansfimina ;) Þetta verður vonandi fyrsta alvöru svona sumardjammið þar sem það er hlýtt alla nóttina og bjart :)
Ranted at 1:22 e.h.♥
fimmtudagur, júní 03, 2004
Til hamingju með afmælið Guðrún...
Mesta törnin í vinnunni er loksins búin hjá mér þannig nú get ég farið að eiga mér eitthvað líf utan vinnunnar á ný. Sumarskapið er alveg komið... sérstaklega þegar maður horfir út á Austurvöll og sér allt fólkið flatmaga í sólinni með bjór við hönd.
Jæja hvenær á sumarhátíðin að vera?
Ranted at 11:39 f.h.♥
miðvikudagur, júní 02, 2004
Jæja þá er maður komin frá London, svakalega gaman. Eyddum mestum pening í að fara út að borða og drekka. Jóhannes og Olla vinir okkar komu síðan til okkar á Laugardaginn og við framlengdum ferðinni til mánudags, það var svakalega gaman:)
Verslaði ekki mikið enda er London ein dýrasta borg í heimi núna, kíkti samt í H&M og verslaði þar mikið á mig og Júlíu og ég keypti einn stóran poka af fötum og borgaði kannski 10-12 þús kall fyrir allt saman. Afhverju er ekki H&M á Íslandi??? En nóg um það, eru ekki allar komnar í sumar fíling? enda komið sumar !
Ranted at 4:43 e.h.♥
