<xmp> <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3238927?origin\x3dhttp://rotturnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script> </xmp>
laugardagur, janúar 28, 2006
Sælar búin að fikta aðeins í síðunni! Það á að vera mynd af öllum í bannernum uppi, nema Marínu þar sem ég á enga mynd af henni. Ef þið eigið þá megiði senda mér og ég bæti henni við. Eins er listinn hérna hægra megin ekki tæmandi upptalning á dísunum, þetta eru bara þær sem voru búnar að senda mér meil um sig. Endilega allar að gera það svo ég geti sett svona upp um okkur allar. Á enn eftir að setja upp linka og svona fleira, þetta kemur allt. Svo setti ég líka inn myndirnar frá árshátíðinni 2004 inn á myndasíðuna! Vona að allar séu sáttar við þetta, annars eruð þið bara ýkt óheppnar (hehe). Vona að enginn sé svo ósáttur að ég setti mynd og örstutta línu hægra megin um þær sem svöruðu meilinu, megið endilega koma með hugmyndir að endurbætum á því. Endilega þær sem eiga eftir að senda mér meil sendi upplýsingar sem innihalda helst netföng (sem verður haldið prívat að vísu), símanúmer, heimasíður og svona það helsta!

Tölvunördið kveður
Ranted at 2:43 f.h.♥

|


föstudagur, janúar 27, 2006
AFSAKIÐ HLÉ!
Ranted at 8:58 f.h.♥

|


mánudagur, janúar 23, 2006
Hvernig var aftur slagorðið okkar frá sumarhátíðinni 2004? Man það einhver? Ætla að láta það standa hér fyrir ofan!
Ranted at 11:11 f.h.♥

|


Sælar Dísir :)

Nú skuluð þið sko halda niðri í ykkur andanum!!! Áður en ég fór til Kanada í hittifyrra hafði ég farið með myndir í framköllun en ekki náð að sækja áður en ég fór. Mín elskulega móðir lagði leið sína í Hans Petersen og sótti diskinn, haldiði að ég sé ekki með myndir frá árshátíðinni 2004! Hahaha. Ætla að smella þeim inn á myndasíðuna við fyrsta tækifæri :) Spenntar???

Ætla líka að benda ykkur á myndir frá jólasaumónum hjá önnu Láru á myndasíðunni hennar Hrebbnu :)
Ranted at 10:15 f.h.♥

|


sunnudagur, janúar 08, 2006

Gleðilegt ár elsku dísir

2006 að ganga í garð og næstum 9 ár síðan við kláruðum Réttó. Hver man annars hvenær við byrjðum með saumóinn? hvað verður saumóinn semsagt gamall í ár?

Allavega gleðilegt ár allar saman og takk fyrir þau gömlu. Fyndið og skemmtilegt að hugsa til þess að margar okkar hafa þekkst síðan á leikskóla :)

Annars eru bara 6 dagar þangað til við fjölskyldan yfirgefum landið til Sverige. Held að ég hafi náð að kveðja ykkur allar, nokkrar sem komust ekki til Önnu Láru sem ég hef ekki kvatt. En ég kem nú oft í heimsókn til landsins og læt vita með góðum fyrirvara til að hægt sé að smella saman í saumó :)

Annars á ég eftir að sakna ykkar og saumósins mikið enda við ekkert smá duglegar að hittast. Vonandi helst það áfram og dvínar ekkert með árunum.
Ranted at 6:22 e.h.♥

|