þriðjudagur, september 21, 2004
Þá er komið að því............ Í tilefni þess að ég sé að verða 23 ára gamalmenni langar mig að bjóða ykkur gellunum í saumaklúbb til mín, Álfalandi 5 næstkomandi mánudag.... þann 27.september kl.20:30. Hlakka til að sjá ykkur allar hressar og kátar en endilega ef þið komist ekki viljið þið þá láta mig vita í emaili sesselg@hi.is eða í símann minn....... you know the number!!! P.S Guðrún busy moment hjá þér..... því það er Versló saumaklúbbur hjá mér svo miðvikudaginn 29.sept kl.20:30. Sjáumst hressar og kátar í slúðurgír!!!! |
Ranted at 2:57 f.h.♥
sunnudagur, september 19, 2004
Sælar stúlkur... farin að hlakka til að komast í saumó!
Til hamingju Sunna og Guðrún með íbúðirnar. Nú er maður að verða síðust til að fara að komast í eigið húsnæði sérstaklega þar sem sumir eru á íbúð númer 2 og 3 jafnvel meira.
Er ekki annars gott að frétta af öllum? Eitthvað slúður???
Ranted at 4:35 e.h.♥
miðvikudagur, september 15, 2004
Hæ skvísur,
á einhver ykkar spænska orðabók? má vera spænsk ensk eða spænsk íslensk - breytir engu. Er til í að kaupa gegn vægu verði eða fá lánað í vetur :) Ef einhver lumar á einni slíkri þá endilega láta mig vita og ég get kannski fengið hana í næsta saumó.
Er Sellan annars búin að ákveða tíma ???
Ranted at 7:58 e.h.♥
föstudagur, september 10, 2004
Halló halló. Langt síðan maður hefur skrifað inn á bloggið að ég var næstum því búin að gleyma aðgangsorðinu mínu hvusslass hvusslass.
Ég get hins vegar glatt ykkur með því að ég er að fara að kaupa mér tölvu og þá mun ég vera óþreytandi við að skrifa e-h á bloggið.
En ég var að kíkja á síðasta saumólista og þar stóð að Sella væri með næsta saumó, en þar sem ég veit að Sella er MJÖG upptekin næstu mánuði þætti mér hún vera undrabarn ef hún gæti haldið saumaklúbb. En hlakka allavena til að sjá ykkur í næsta saumó þrátt fyrir að það muni vanta margar kjaftaglaðar kellingar í hópinn ;) að þá skal ég bæta það upp.
Ranted at 10:12 e.h.♥
Gleðifréttir, ég og Styrmir vorum að kaupa okkur nýja íbúð!!! Hún er staðsett í Barmahlíð, númer 54 (minnir mig). En við erum semsagt að bætast í hóp þeirra saumaklúbbskvenna sem búa í Hlíðunum.
Íbúðin er um 112fm og það eru 2 svefnherbergi, "walk in" closet, risastórt og rosalega flott eldhús - hlakka ekkert smá til að elda þar inni. Svo er stór og fín stofa og svalir með tveim inngöngum, frá stofunni og eldhúsinu og last but not least; sérinngangur og bílskúr! Við fáum hana afhenda 1.okt ef allt gengur eftir og Karlotta systir Styrmis ætlar að kaupa íbúðina okkar á Laugarásveginum.
Við erum rosa spennt að flytja og það er allt meira og minna nýtt inní íbúðinni þannig að við þurfum ekkert að gera nema flytja inn.
Vildi bara deila þessu með ykkur, loksins eitthvað gleðilegt að gerast hjá okkur.
og Sunna innilegar hamingjuóskir með íbúðina þína, held að ég hafi ekki vitað til þess að þú værir að kaupa....(eða þið:)
Íbúðin er um 112fm og það eru 2 svefnherbergi, "walk in" closet, risastórt og rosalega flott eldhús - hlakka ekkert smá til að elda þar inni. Svo er stór og fín stofa og svalir með tveim inngöngum, frá stofunni og eldhúsinu og last but not least; sérinngangur og bílskúr! Við fáum hana afhenda 1.okt ef allt gengur eftir og Karlotta systir Styrmis ætlar að kaupa íbúðina okkar á Laugarásveginum.
Við erum rosa spennt að flytja og það er allt meira og minna nýtt inní íbúðinni þannig að við þurfum ekkert að gera nema flytja inn.
Vildi bara deila þessu með ykkur, loksins eitthvað gleðilegt að gerast hjá okkur.
og Sunna innilegar hamingjuóskir með íbúðina þína, held að ég hafi ekki vitað til þess að þú værir að kaupa....(eða þið:)
Ranted at 8:22 e.h.♥
miðvikudagur, september 08, 2004
Nei þetta blogg skal sko ekki deyja!
En hræðilegt þetta með manninn í húsinu þínu Guðrún! Ætli sé nokkuð sniðugt að reyna að komast að því hvað gekk á þarna í íbúðinni bara að reyna að gleyma þessu sem fyrst. Vonandi verður næsti nágranni bara svona venjuleg manneskja segi ég nú bara fyrir þína hönd!
Annars er voða lítið að frétta af mér, er bara að skólast fyrir hádegi og vinna eftir hádegi. Ég er semsagt að vinna við að hjálpa litlu krökkunum í Snælandsskóla með heimalærdóminn, föndra með þeim og ýmislegt fleira í 4 tíma á dag. Mjög þægilegt þar sem ég get labbað í vinnuna en guð minn góður eftir fjóra tíma með þessum elskum verð ég stundum eins og ég hafi verið að vinna 8-10 tíma vinnudag.
Svo er ég að fara að fá íbúðina mína afhenta á föstudaginn (hún er semsagt á Álfhólsvegi 63 fyrir þá sem ekki vita) þannig að ég og Ikea bæklingurinn erum mjög náin þessa dagana. Ég er búin að hlakka svo mikið til að fá þessa blessuðu íbúð að ég held ég eigi bara eftir að missa mig þegar ég kemst inn fyrir dyrnar.
Jæja best að fara að koma sér í tíma, vonandi hafið þið það allar gott og endilega verum duglegri að skrifa!
Ranted at 9:12 f.h.♥
mánudagur, september 06, 2004
Hæ skvísur,
jæja er þetta blogg okkar orðið dáið eða bara í einni stærstu lægð ever?!!
En fyrst ég sagði ykkur alla söguna um fyllibyttuna sem býr hérna í húsinu þá ákvað ég líka að segja ykkur frá þessu. Ég er ekki fyrr komin heim úr skólanum í dag og er að opna útidyrahurðina þá koma nokkrar löggur og tveir sjúkraflutningamenn hlaupandi að mér og rjúka inn og inní íbúðina hjá Ívari (byttunni). Ég náttúrulega hleyp á eftir þeim og spyr hvað sé í gangi og þeir segjast ekki alveg vita það og þá koma sjúkraflutningamennirnir aftur útúr íbúðinni og hrista hausinn og segja að þetta sé búið. Ég spyr þá hvað sé búið og þá er hann víst dáinn á gólfinu inni hjá sér og búinn að vera það í einhvern tíma. Mér varð óglatt og mig svimaði og ég var eiginlega ekki viss um hvað væri að gerast. Þá kemur systir Ívars upp stiginn og hún hafði þá víst hringd í lögguna og sagt þeim að hún hefði ekki heyrt frá bróður sínum lengi og að henni grunaði að eitthvað væri að. Þeir sögðu henni að hann væri látinn og ráðlögðu henni að fara ekki inn til að kíkja á hann....úff þá gjörsamlega panikkaði ég og vissi eiginlega ekki hvort ég ætti að standa þarna áfram eða fara inn til mín og endaði á að hugga systur hans og svara spurningum frá löggunni um hvort ég hefði heyrt einhvern hávaða í gær ofl ofl. Ég fór síðan inn til mín og eiginlega sat bara og vissi ekkert hvað ég átti að gera af mér. Ég fylgist með löggubílunum og tæknibílunum og öllu liðinu út frá svölunum hjá mér og veit í raun ekkert hvað hafi gerst né hvernig maðurinn dó. En það bendir víst allt til þess að hann hafi ekki bara dottið niður dauður. Það er víst einhverjir áverkar á honum sem bendir til áfloga og ég veit ekki hvað. Ég trúi því bara ekki að í húsinu sem ég bý í sé maður sem er dáinn inni hjá sér og það bendir margt til þess að hann hafi verið drepinn!!!!!
Æi stelpur sorry ef ykkur finnst þetta ekki viðeigandi hérna inná bloggið en ég varð bara að koma þessu frá mér og það er hvort sem er enginn að skrifa neitt hérna þessa dagana.
Ætla bara að fylgjast með fréttunum í kvöld, hvort það komi eitthvað fram um þetta þar eða hvort þetta hafi bara verið fyllibytta sem var bara kominn á tíma!!
Ranted at 2:30 e.h.♥
