sunnudagur, apríl 24, 2005
Jæja stúlkukindur, það er bara allt of langt síðan ég hef skrifað síðast.En ég ætlaði bara að óska ykkur gleðislegs sumar. Sumarið tekur okkur greinilega opnum örmum með sól og blíðu og ég er hérna í vinnunni, sem betur fer ekki með glugga til að sjá hversu yndislegt veðrið er.
En þetta var frábær saumó síðast og hlakka rosalega til næsta.
En í tilefni sumarsins ætla ég að semja ljóð fyrir ykkur.
Halló réttó rotturnar mína,
þið eruð allar svo helvíti fínar.
Í sumar við drekkum saman,
og þá verður helvíti gaman.
Kjaftasögur er alltaf gaman að heyra,
og talað við getum meira.
Ég er svo djúp en já ég er farin að semja ljóð og ég veit þið munuð ekki trúa því að ég er innan við hálfa mínútu að semja hvert ljóð eins djúp og mikil þessi ljóð eru. En ég mun einhverntímann verða rík á þessu, örugglea samt ekki fyrr en ég er dauð ;)
svona verð ég soldið skrýtin þegar ég er í prófum, eða svona meira skrýtin en vanalega.
En þangað til næst
kveðja
Bennsla brennsla
Ranted at 12:16 e.h.♥
fimmtudagur, apríl 21, 2005
Gleðilegt sumar Dísir!!!Eru ekki allir að fara í grillmat í kvöld til að fagna sumarkomunni? Það ætla ég amk að gera til þess að gleyma i smá stund skólaáhyggjunum :)
Ranted at 4:51 e.h.♥
mánudagur, apríl 18, 2005
Sælartakk fyrir í gærkvöldi. Vildi bara þakka Guðrúnu fyrir alveg glimmrandi veitingar! Missti ég af einhverju svaðalegu slúðri í gær eftir að ég fór? Annars var frekar lítið um slúður, verðum að fara að taka okkur á þar sko!!! ;)
Jæja
lærilærilærilæri
Ranted at 12:07 e.h.♥
fimmtudagur, apríl 14, 2005
Saumó á Sunnudaginn kl.20- bara minna ykkur á það og endilega heyrið í hvor annarri og minnið á.
Laufey kemur ekki, hún er að fara í fermingu og Telma kemur en ég er búin að lofa henni að henda henni út um leið og hún er búin að fá sér í gogginn svo hún geti haldið áfram að læra undir próf sem er á mánudaginn :)
Ranted at 9:19 e.h.♥
sunnudagur, apríl 10, 2005
Sælar Dísir,eru allar í prófum núna? Það er allavega lítið að gerast á þessari síðu okkar þessa dagana :)
hver er annars staðan á ykkur núna, er aðallega að pæla því að hún Tinna okkar er á landinu og verður það í allavega rúma viku í viðbót, eða eru það tvær vikur? og ég var svona að hugsa hvort við ættum að hafa einhvern hitting áður en hún fer, kannski svona semí - saumó eða bara klassískt kaffiboð. Ég get allavega alveg boðið ykkur í kaffi heim til mín í vikunni, er að klára síðasta prófið á morgun og þá tekur Bs ritgerðin við. Endilega segið hvað ykkur finnst, væri gaman fyrir Tinnu að hittast eitthvað smá.
Segjum bara að allar sem sjá sér fært að kíkja í smá stund í hitting segji það kommentunum!
bæ í bili
Guðrún
Ranted at 6:05 e.h.♥
laugardagur, apríl 02, 2005
Sælar píur,þar sem ég er á MILLJÓN í skólanum (eins og örugglega fleiri ykkar) í prófum, verkefnavinnu og rugli sé ég allavega ekki fram á að geta haldið saumó á næstunni, ekki fyrr en í byrjun júní (þegar ég kem heim frá NY vúhú!) En þá verður bara haldinn mega saumó í nýju íbúðinni okkar í Furugerðinu ;)en núna er heimilisfangið mitt í Ofanleiti þ.e.a.s. HR :) Við verðum bara að vera ofur duglegar að skrifa á bloggið.
Heyrumst skvísur ;)
kv. Helga Felga
Ranted at 1:37 f.h.♥
