<xmp> <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3238927?origin\x3dhttp://rotturnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script> </xmp>
miðvikudagur, september 20, 2006
Sökum þess að ekkert slúður hefur borist í lengri tíma höfum við AJ ákveðið að búa til okkar eigið:

Sella er ólétt og á von á frumburðinum með vorinu. Barnsfaðir hennar er Alþingismaðurinn Sigurður Kári Kristjánsson. Þau fundu hvort annað á fundi hjá Sjálfstæðisflokknum. Í fyrstu var þetta einungis vinskapur en svo þróaðist þeirra samband í eitthvað dýpra og sterkara. Þau hafa nú þegar gift sig í laumi.

Anna Jóna er ólétt enn á ný og á að þessu sinni von á þríburum.

Hrebbna vann í lóttóinu og hefur keypt sér fasteignir víðsvegar um Evrópu og Arabísku Furstadæmunum.

Telma og Hörður eru skilin. Telma er þó komin í annað samband og þá við fótboltakappann Freddie Ljunberg.

Marín hefur aldeilis náð að plumma sig í þýsku þjóðfélagi. Hún hefur nú gefið kost á sér í þingkosningar þar í landi fyrir flokk social demókrata.
Ranted at 12:35 e.h.♥

|


þriðjudagur, september 19, 2006
Hæ hó dísir!

Langaði bara að þakka fyrir síðast, það var fámennt en góðmennt. Við hittumst samtals 6 úr hópnum á B5 og var sötrað smá vín og gæðuðu María, Tinna og Telma sér á matnum. Það var yndislegt að hitta ykkur en hefði gjarnan viljað sjá fleiri.

Ég veit að nokkra voru forfallaðar vegna skóla og vinnu og svoleiðis og auðvitað nokkrar í útlandinu en common stelpur!!! Það var 37,5% mæting (ef farið er útí tölur). Og það sem leiðinlegra er að það létu ekki næstum því allar vita af sér. Mér finnst það bara leiðinlegt fyrir þær sem mættu. Ég man þegar við ákváðum í den að allir ættu að láta vita hvort þeir kæmust eða ekki og þó þetta hafi ekki verið haldið í heimahúsi þá var samt boðað til hittings og alveg jafn huggulegt að láta vita.

Ég var líka farin að hlakka mikið til að hitta ykkur og leiðinlegt að hafa bara náð að sjá fallegu andlitin á sumum ykkar :(

Anyways, það var ekki mikið um slúður í saumóhittningum, en þó eitthvað of course! ;) En hvað er nú að frétta af dísunum? Er Gyða búin að næla í prinsinn?? Komið nú með eitthvað krassandi!

.......af mér er allt gott að frétta. Við þurftum að vísu að fara fyrr heim en áætlað var en vinnan kallaði og þannig er það bara. Hlökkum bara alveg rosalega til að koma aftur um jólin og aldrei að vita nema maður detti á einhvern netsmellinn í nóv :) Jaaaa ekki nema maður fari bara í heimsókn til Danmerkur - örugglega meiri möguleiki á að hitta einhverja dísir þar en á Íslandi!!! ....hehe smá grín.

Puss och kram
Guðrún

p.s. sú fyrsta sem póstar einhverju inn fær að vita smá slúður!!
Ranted at 3:03 e.h.♥

|