<xmp> <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3238927?origin\x3dhttp://rotturnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script> </xmp>
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
Hehehe... það væri ferlega fyndið að vera með svona link :) Góðar! Ég gruna samt ennþá nokkrar púkadísir og bíð eftir að þær láti ljós sitt skína ;)
Ranted at 9:59 e.h.♥

|


Ég er allaveg saklaus, þú átt örugglega í alvörunni aðdáanda...úllalla. Svona sæt stelpa eins og þú ættir bara að vera með klúbb..híhíhí.
Gyða þú reddar því snöggvast, setur link inná síðuna okkur "aðdáendaklúbbur dísanna sem dönsuðu út úr Réttó forðum daga" - algjört möst.

Annars er ég bara á kafi í prófum, eitt búið 4 to go. Svo fer ég að vinna 13 des. í 66°N í Lækjargötu, þannig að þið eruð allar velkomnar þangað ef ykkur langar að gefa einhverju flíspeysu eða flíshúfu í jólagjöf. - eða bara líta inn til að segja hæ..:)

bless í bili.
Ranted at 6:05 e.h.♥

|


þriðjudagur, nóvember 25, 2003
Ekki ég aldrei svo vant!!!

Hvað stóð í essu bréfi (ég er forvitin)????
Ranted at 2:50 f.h.♥

|


mánudagur, nóvember 24, 2003
Ókei, ókei, hver ykkar er húmoristinn núna? Var að fá bréf í svipuðum dúr og það sem húmoristarnir hérna sendu okkur forðum daga af leynduraddaandi@hotmail.com (minnir mig). En núna af öðru netfangi. Step forward funny gals ;)
Ranted at 8:49 e.h.♥

|


föstudagur, nóvember 21, 2003
Helllú, sko ég er að vinna í þessu með myndirnar.... ég komst að því að ég er ekki þetta tölvunörd sem ég vildi geta sagst vera og hvað þá síður þegar að stafræn myndavél er komin inn í dæmið líka. Svo fór skólinn allt í einu að segja mér að skila verkefnum og neyða mig til að læra fyrir próf þannig að ég setti tölvunördið á hóld í smá tíma. En ég lofa samt að redda þessu um leið og tækifæri gefst, ég hélt að það væri ekkert mál að senda þær bara svona sem viðhengi í möppu, en það var víst til of mikils ætlast......
Annars vona ég bara að þið séuð duglegar að læra og hlusta á jólalögin á meðan, með jólaöl í annarri og piparköku í hinni! :o)

Ranted at 8:56 e.h.♥

|


Til hamingju með afmælið í gær Anna J.

ég vona að ykkur muni öllum ganga vel í prófum. En því miður hef ég engar myndir fengið sendar þannig að ég get ekki búið til neina síðu með engum myndum því það er ekkert skemmtilegt!
Ranted at 4:22 e.h.♥

|


Já til hamingju með afmælið Anna Jóna - í gær.
Ég er byrjuð í próflestri þannig að ég veit hvorki hvort það sé nótt eða dagur eða janúar eða júní. Hvað þá hvort það sé laugardagur eða mánudagur - núna rennur þetta bara í eina kássu og ég veit bara hvort það séu 2 dagar í próf eða 4 dagar í próf. En semsagt núna eru 4 dagar í næsta próf sem er erfiðasta prófið sem ég fer í og ég sit alveg sveitt uppí skóla.

jæja verð að halda áfram með smjörið.

Óskið mér góðs gengis - og sömuleiðis til ykkar allra sem eru á leiðinni í próf...:/
Ranted at 11:38 f.h.♥

|


fimmtudagur, nóvember 20, 2003
Til hamingju með afmælið Anna Jóna!!!
Ranted at 6:12 e.h.♥

|


miðvikudagur, nóvember 19, 2003
Hola chicas!

Hvað segist?? Fyllerísmyndirnar af Telmu komu barasta fram á batman.is!!!!

Oh ég nenni ekki að læra...komin með nett ógeð! Samt alveg að koma próf. Thanksgiving er eftir viku og þá er frí og þá er gaman! Já takk einn bjór! Una cervesa por favor! One beer please! Un biere si´l vous plait! Eine grosse biere danke schon! En öl tak skal du har!

Gyðilíus: ef þú ætlar að búa til myndasíðu þá er instantlogic með bestu fríkeypis síðurnar! Getur farið á síðuna mína og séð myndaalbúmið mitt.... og þaðan er linkur! ÉG vil Sjá MYNDIR!!!
Ranted at 4:23 e.h.♥

|


laugardagur, nóvember 15, 2003
Júlía er orðin "celeb" ....;)

Kíkið á þessa slóð og veljið Idol stjörnuleit og veljið svo dags 31/10 -30/10 og skrollið svo soldið langt niður og þar er mynd af Júlíu og Jóhannesi...:)
Ranted at 11:18 f.h.♥

|


föstudagur, nóvember 14, 2003
Já ég vil sjá myndir frá því við vorum hjá Tinnu!!!

En hvar er Anna Jóna, er hún ekkert að tjá sig hérna lengur, ég vil vita hvernig bumbubúa líður :)
Ranted at 9:41 f.h.♥

|


miðvikudagur, nóvember 12, 2003
Já endilega að senda mér myndirnar, þá get ég búið til svona síðu, eða amk reynt það :) Gaman að skoða myndir :)
Ranted at 1:22 e.h.♥

|


Telma hefur alveg farið á kostum! :) En ég myndi endilega vilja sjá myndirnar frá því að við vorum heima hjá mér, það væri gaman að geta skoðað þær ;)
Ranted at 12:51 e.h.♥

|


þriðjudagur, nóvember 11, 2003
já sætar myndir Telma, næst þegar að einhver okkar hittir Telmu fulla þá er skilda að tilkynna hinum, ég er nefnilega ekki svo heppin að hafa hitt hana í þessu ástandi ennþá!! :o) ....en talandi um myndir á ég þá að senda þér, Gyða, myndirnar úr partýinu hjá Tinnu? eða hvað, viljið þið kannski ekki hafa þær hér inná?
Ranted at 2:42 e.h.♥

|


mánudagur, nóvember 10, 2003
Ja hérna hér Telma! Maður bara roðnar ;) Hvað fengu margir að dást að tungu þinni þetta kvöld? Hahaha :)))
Ranted at 4:08 e.h.♥

|


Hehehe best að kíkja á þessar myndir :) Verst að maður er með svo asskoti lélega tengingu hérna heima, en örugglega þess virði að bíða smá!

Ég fékk þetta template á www.blogskins.com, þar er fullt af skemmtilegum templateum en það er soldið vesen að leita! En maður er nú forfallið nörd!
Ranted at 3:58 e.h.♥

|


Ég hitti Telmu i fyrsta skipti fulla á föstudaginn var.......úllalla það var ekkert smá gaman og gaman hjá henni híhíhí.

Smellið hér myndir til að sjá myndir af henni hehehe

En forsetinn og Dorrit mættu líka og voru ekkert smá hress og svo voru Sveppi og Auddi veislustjórar og þeir voru alveg í svaka stuði.

En endilega kíkið á Telmu í góðum gír. hehehehehe hún var í bláum bol sem hjálpar ykkur að finna myndirnar af henni og þið þurfið að fara doldið aftarlega í myndunum til að finna fyndnustu myndirna af henni (semsagt eftir því sem liður á kvöldið).
Ranted at 12:20 e.h.♥

|


fimmtudagur, nóvember 06, 2003
En vá Gyða, síðan er rosalega flott ;) Hvar náðirðu í svona flottan bakgrunn?
Ranted at 9:00 e.h.♥

|




já það er ein svona pínu klám (porno) síða sem þú mátt setja link inná -- hehehe djók
Ranted at 11:47 f.h.♥

|


miðvikudagur, nóvember 05, 2003
Jæja komnir linkar, ég fann enga síðu á Sunnevu Lind og enga á Adam. En ef einhver veit að það er til endilega segið mér slóðina :)
Asskoti gaman að vera svona smá tölvunördi :)))
Ranted at 10:49 f.h.♥

|


Jú endilega ég bæti bara við linkum endalaust, það er ekkert mál. Góð hugmynd að setja inn linka á barnasíðurnar :)
Endilega látið mig vita ef þið hafið séróskir um linka!!!
Ranted at 10:39 f.h.♥

|


þriðjudagur, nóvember 04, 2003
Já nýja síðan er ekkert smá flott....:)
En þú mátt setja link inná HR (www.ru.is) og fyrst börnunum í hópnum fer fjölgandi er þá ekki tilvalið að setja link inná síðurnar á barnalandi. Ég held meira að segja að Katrín sé með síðu fyrir Sunnevu en ég man það samt ekki alveg. Linkurinn á síðuna hennar Júlíu er www.barnaland.is/barn/9144.

annars bara keep up the good work Gyða tölvunörd hehehehe
Ranted at 11:20 e.h.♥

|


Vóóóó
Nýja síðan svaka flott!! nú þarf ég endilega að fara að breyta mínum síðum!
Ranted at 10:41 e.h.♥

|


mánudagur, nóvember 03, 2003
Ok þetta er að skána, nema hvað ein siða (www.weatherpixie.com ) sem ég ætlaði að nota til að setja veðurspá hingað liggur niðri. Oh well! Ég þarf samt að fiffa aðeins þetta efst á síðunni. Ætla að reyna að betrumbæta þetta á næstu dögum, eða vikum eða eitthvað!
Ranted at 3:51 e.h.♥

|


Ok ég er nú ekki alveg sátt, en ég ætla að halda áfram að fikta! Ég hata að þessi auglýsing þarna efst sé að bögga mig :(
Ranted at 3:13 e.h.♥

|


Oh mæ god, þetta blogg hlýðir mér ekki >( Er að vinna í þessu, þið verðið bara að lifa við það að síðan er ljót þessa dagana!
Ranted at 11:55 f.h.♥

|


Takk fyrir síðast stúlkur :)
Ég skemmti mér konunglega og maturinn var æði. Frábært að fá fréttir um nýja erfingja og svona. Nú hlakka ég bara til að krílið komi í heiminn. Fóru einhverjar í bæinn? Ég fór bara heim að sofa og var sofnuð um kl 2 og steinsvaf í rúma 10 tíma, það var obboslega gott :) Já og Guðrún fær þrefalt húrra fyrir góða músík :) Fátt er betra en r&b píkupopp með köldum bjór!

En nú er skólinn að fara að ganga að manni dauðum fyrir alvöru. Það eru bara skýrslur, verklegt og Rekstrarfræðiverkefni auk venjulegra heima - og tímadæma! Fólk eitthvað ekki að fatta að maður hefur nú ekki endalausan tíma. Svo þarf ég að skrifa undir þagnareið fyrir Osta- og smjörsöluna svo að þeir geti farið í mál við mig ef ég fer óvart að blaðra um peningamál þeirra, eins gott að halda sér saman! En rekstrarfræðiverkefnið okkar er sko fyrir OSS. Fengum rosa girnó bæklinga frá þeim, maður verður bara svangur á fundum með þeim! Býst nú reyndar við að allir hafi í nógu að snúast þessa dagana og svei mér þá ef ég hlakka ekki bara til jólanna! Og þá helst frísins sem því fylgir einmitt :)
Ranted at 8:20 f.h.♥

|