<xmp> <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3238927?origin\x3dhttp://rotturnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script> </xmp>
þriðjudagur, júlí 24, 2007
Sælar dísirnar mínar!

Mig langar til þess að þakka kærlega fyrir mig Sella mín. Þetta var æðislega fínt og gaman að sjá hvað margar gátu komið.

Annað mál á dagskrá. Reunion. Við vorum að velta fyrir okkur dagsetningunni 24 ágúst. Allt í einu finnst mér voðalega stutt í það eitthvað og erfitt að mixa allt fyrir þann tíma.

Hvernig finnst ykkur að hafa það bara eftir áramót? Þá var ég að spá í kannski 4 janúar sem er föstudagur. Haldiði að allir séu kannski bara búnir eftir jólin þá?

Mig langar frekar til þess að gera þetta almennilega í stað þess að vera að þessu á einhverjum hlaupum.

Hvað segið þið um þetta Dísir? Endilega tjáið skoðanir ykkar á þessu málefni!! :)
Ranted at 9:12 f.h.♥

|


föstudagur, júlí 20, 2007
Ótrúlega gaman að hitta ykkur allar í gær. Leiðinlegt hvað ég gat samt verið stutt. En komu einhverjar fréttir eða djúsí slúðursögur eftir ég var farin?

Í haust er svo skyldumæting í heimsókn til Köben og munið þið getið alltaf gist hjá mér og Sellu.... er þaggi annars Sella? Takk kærlega fyrir mig og stóóóórt hrós til Sellu að hafa smellt þessu saman!
Ranted at 12:55 e.h.♥

|


mánudagur, júlí 09, 2007
Saumaklúbbur....

Ég verð að játa að ég er mjög sammála síðustu ræðumönnum hér á síðunni að það gangi ekki hvað er langt síðan við hittumst....því hef ég ákveðið að bæta úr því!!

Fimmtudaginn 19. júlí langar mig til að bjóða ykkur stúlkum heim til mín í Fossvoginn. Heppilegt væri ef þið myndum mæta um kl. 20:00.

Ég mun vera með eitthvað góðgæti á boðstólnum en ef einhver vill vera svo góður og veita mér hjálparhönd þá er það meira en vel þegið.

Hlakka annars til að sjá ykkur hressar og kátar og endilega látið mig vita hvort að þið komist.... svona áður en að ég flyt á landi brott og verð hluti af Norðurlandahluta Dísanna ;o)

PS! Anna Lára innilega til hamingju með 26 ára afmælið í dag, njóttu Spánar blíðunnar ;)

Ranted at 11:09 e.h.♥

|


föstudagur, júlí 06, 2007
Jæja stelpur koma svo!!! Ok Marín er sú eina sem verður ekki á landinu í þessa nokkra daga þarna. Ef enginn getur boðið heim hvað með að hittast á einhverju kaffihúsi eða fara út að borða saman.... bara hittast og slúðra aðeins! Ég er farin að sakna ykkar.

Hvaða dagur/kvöld hentar ykkur? Ég er nokk laus milli 19. og 25. júlí...
Ranted at 4:06 e.h.♥

|