miðvikudagur, apríl 28, 2004
Ég er til hvenær sem er eftir að þingið er komið í sumarfrí! Lífið snýst um vinnustaðinn þessa dagana.
Ranted at 6:13 e.h.♥
Smá könnun í gangi....
Hvenær viljið þið hafa saumó í maí, svona upp á próf og annað??
Hvenær viljið þið hafa saumó í maí, svona upp á próf og annað??
Ranted at 3:15 e.h.♥
mánudagur, apríl 26, 2004
Myndir af Högna Alvari
Hæ hæ, hér eru nokkrir linkar á myndir af minnsta og krúttilegasta meðlimi saumaklúbbsins. NJÓTIÐ VEL OG LENGI ;O)
Högni 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10,
Ranted at 11:48 e.h.♥
Högni kominn í heiminn !!
eina mínútu í tólf....hehe semsagt 25.apríl
Til hamingju Anna Jóna mín
eina mínútu í tólf....hehe semsagt 25.apríl
Til hamingju Anna Jóna mín
Ranted at 9:33 f.h.♥
sunnudagur, apríl 25, 2004
Hæ hæ skvísur, jæja ég er komin með vinnu sem leiðbeinandi hjá Vinnuskólanum í sumar :)
Hlakka bara til. Byrja á námskeiði í byrjun í júní á launum og byrja svo að vinna held ég 6 júní og er svo búin 13 ágúst ....:) Þetta verður ofurkósý sumar hjá mér......hehe.
Hvað er annars að frétta af öllum ykkar...eru allar kannski í prófum og ógilega duglegar að lesa ;)
jæja, hlakka til þegar einhver hefur eitthvað merkilegt að segja og setur það hérna inn.
Hefur einhver frétt af Önnu Jónu???? er hún ennþá að springa.....hehe
Ranted at 2:20 e.h.♥
sunnudagur, apríl 18, 2004
Búin að láta inn nýjar myndir af Júlíu frá því við fórum um daginn út á róló...:)
Ranted at 5:53 e.h.♥
Jæja búin að bæta Guðrúnu inn í dálkinn hægra megin í sumarhátíðarnefndina :)
Ranted at 4:30 e.h.♥
miðvikudagur, apríl 14, 2004
ég er búin að sjálfskipa mig í sumarnefndina með Tinnu í sumar, þetta fór fyrir nefndarráði og var samþykkt einróma.......híhí
anyway leiðinlegt að hún þyrfti að vera ein að skipuleggja þetta :)
Ranted at 8:52 e.h.♥
þriðjudagur, apríl 13, 2004
hæ skvísur, vildi bara láta ykkur vita að ég er komin með nýtt e-mail sem er skvisa01@ru.is hinn mailinn minn var seldur til einhverja internetþrjóta og ég var farin að fá ca. 70 pósta á dag um viagra og lesbískt klám og fleira og fleira. Boy do they know what I want....hehehe
en allavega ég var líka að kaupa mér nýja tölvu og mig vantar e-mailin hjá ykkur öllum þannig að ein vinsamlegast sendi mér fjöldapóst sem fer til ykkar allra og þá get ég pikkað út e-mailin...:)
Ranted at 5:00 e.h.♥
laugardagur, apríl 10, 2004
Talandi um uppskriftir...
...þá fann ég þessa, einkar undarleg:
Uppskrift að hinu fullkomna kveldi:
Það sem til þarf er:
Einn holdakjúklingur
krydd ýmisskonar
ein kærasta/kærasti
fjötrar
þriðji aðili
Framkvæmd
Sveltið kærustuna/kærastann í þrjá til fjóra daga, þá heldur meira en minna. Þegar viðkomandi er á barmi sturlunar vegna hungurs skaltu stinga kjúklingi í ofninn, krydduðum með ýmsu vellyktandi góðgæti svo sem salvíu, dill, engifer, kóríander eða timian.
Þegar lyktin af grilluðu hænsninu er farin að æra ykkur, skuluð þið hringja í þriðja aðila og fá hann til að líta við. Þegar skíthopparinn er tilbúinn ber að taka hann úr ofninum og kæla hann niður í neyzluhitastig. Á meðan er upplagt að hreinsa vel og rækilega 1,2 fermetra gólfflöt hið minnsta.
Nú ætti þriðji aðili að vera kominn, leggðu kjúklinginn í heilu lagi á miðjan gólfflötinn ásamt girnilegu meðlæti. Bittu hendur þinnar heittelskuðu fyrir aftan bak og fáðu þriðja aðila til að gera slíkt hið sama við þig.
Þriðja aðila er nú þakkað fyrir veitta þjónustu og hann beðinn um að hypja sig hið snarasta.
Nú er ykkur skötuhjúunum ekkert að vanbúnaði með að eiga rómantískan kvöldverð og um að gera að ráðast á kræsingarnar, ekki er þó ráðlegt að hafa kerti á “borðinu”, og passið ykkur bara að detta ekki á trýnið.
Verði ykkur að góðu
Og ég vil koma því á framfæri að sá sem ritaði þetta á ekki kærustu! Undarlegt nokk.
Ranted at 5:15 e.h.♥
föstudagur, apríl 09, 2004
Vegna gífurlegrar eftirspurnar ákvað ég að pósta bara uppskriftina að kjúllanum sem þið fenguð í síðustu viku hjá mér. Þetta er upphaflega uppskriftin en þegar ég elda á ég yfirleitt mjög bágt með að fara eftir uppskriftum og þarf að gera allt eftir mínu höfði. Njótið vel!
Kjúklingur steiktur í kryddjurtum og raspi
Einfaldur réttur þar sem kryddjurtirnar og raspið gefa fína skorpu.
4 kjúklingabringur, skinnlausar
1 msk. Dijon sinnep
salt og grófmalaður pipar
2 msk steinselja
1-2 msk. Þurrkaðar kryddjurtir (basil, timian. Ofl)
2 dl. Brauðrasp
2 msk. Brætt smjör
Leggið bringurnar í smurt, eldfast fat, pensið með sinnepi, saltið og piprið. Hrærið brauðmylsnu og kryddjurtir saman og þekið kjúklingabringurnar með blöndunni. Hellið bræddu smjöri yfir og bakið við 180´C í 25 mínútur.
Ranted at 7:39 e.h.♥
fimmtudagur, apríl 08, 2004
Hæ, Anna Jóna segist vera að fara að eiga barn í maí og geti þar af leiðandi ekki haldið saumó þann mánuðinn.........hugmyndaflugið alltaf hjá henni!! Allt gert til að sleppa við saumó:o)
Nei að öllu gríni slepptu þá ætlar Telman mín að vera svo frábær að halda saumó með mér í maí. Þið getið bara byrjað að hlakka til strax:o) Kannski verður litla krílið komið út þá......
Ranted at 9:12 e.h.♥
miðvikudagur, apríl 07, 2004
EINHVAÐ DJAMM Á DÍSUNUM Í PÁSKAFRÍINU???
Var að spá hvort að þið ætluðu einhvað út á lífið í páskafríinu og hrista rassa? Planið er að kíkja einhvað út á morgun miðvikudag og skoða menninguna í 101 Reykjavík.... ef þið hugsið ykkur að líta þangað endilega látið mig vita......
GÓÐA NÓTT OG GLEÐILEGA PÁSKA
Ranted at 1:50 f.h.♥
SURPRISE SURPRISE ÉG ER KOMIN AFTUR!!!
Já viti menn er ég ekki bara búin að finna lykilorðið inn á síðuna aftur og komin til að skrifa......
...... lítið gert um helgina nema vinna og kíkti bílandi í bæinn bæði kvöldin! Frekar gaman að geta kíkt svona og séð alla skandalana sem að maður víst missir af þegar maður er FÚLLUR.....
En ykkur til mikillar gleði hef ég náð að setja inn eina filmuna af árshátíðinni okkar GÓÐU.... þið verðið að kíkja á þetta er frekar skondið.
Gyða er með seinni filmuna og vona ég að hún muni eftir að setja hana í framköllun bráðlega..
En ekki meira í bili ENJOY THE PICTURE ;o)

Ranted at 12:23 f.h.♥
mánudagur, apríl 05, 2004
Hæ stelpur,
leiðinlegt að ég komst ekki að hitta ykkur á föstudaginn.
En stelpur.....ég er ég í smá vandræðum. Sko, þannig er mál með vexti að ég á að halda saumó í maí. Ég hef í raun engann stað til að halda saumó á, nema ég hendi foreldrum og systkinum mínum út, sem mér finnst frekar leiðinlegt :o( Ég gat nú reyndar reddað þessu í fyrra þegar ég henti systur hennar mömmu út úr íbúðinni sinni og hélt saumó þar, en ég kann nú eiginlega ekki við að gera það aftur:)
Ljósi punkturinn í þessari sorgarsögu minni er nú samt að ég er að fara festa kaup á íbúð núna í sumar (jiiibbbbbbý:)
Þannig að ég er að spá hvort ykkur sé sama þó að ég fái að færa minn saumó þangað til seint á þessu ári, eða snemma næsta ár. Þá get ég boðið ykkur í mína eigin íbúð og ég skal sko halda saumó þrisvar í röð í staðinn....
Ef einhvern myndi langa til þess að taka maí í staðinn þá væri það náttulega mjög sniðugt en ef enginn hefur tíma til þess þá datt mér í hug að ég gæti skipulagt kaffihúsakvöld eða eitthvað annað sniðugt sem við gætum gert saman þennan mánuð.
Ég vona að þið verðið ekki mjög reiðar yfir þessu veseni á mér ...... endilega látið í ykkur heyra ef þið eruð á móti þessu.....
Ranted at 8:02 e.h.♥
Já takk fyrir síðast stúlkur! Þetta voru ekkert smá flottar veitingar Hrefna!!! Lifi á þessu lengi og væri ótrúlega ánægð ef ég fengi uppskriftina af kjúklingnum í tölvupósti :)
En ég er sko ekkert byrjuð að læra neitt fyrir prófin, er bara ennþá á fullu að klára einhver verkefni, enda fáum við hér ekkert upplestrarfrí! Vona svo bara að það komi smá tími um páskana til að líta á stærðfræðigreininguna. Mér finnst saumó í lok apríl alveg ljómandi hugmynd. Þýðir ekkert að vera að bíða fram í maí eftir áti :)

Ranted at 1:34 e.h.♥
Sælar stúlkur, og takk fyrir síðast. Frábær matur sem við fengum hjá Hrefnu.....klapp klapp.
Eru annars ekki allar bara á fullu í próflestri þessa dagana...eða allavega að hugsa um að byrja að lesa ;)
ég fer í eitt próf á morgun og svo annað eftir páska. Það væri gaman ef það væri saumó einhverntímann í lok april eins og Tinna stakk uppá. Mér finnst alltof langt að bíða fram í enda maí :(
anyway...halda áfram að lesa.....lærlærlærlær

Ranted at 10:56 f.h.♥
föstudagur, apríl 02, 2004
æi greyið hún Britney okkar...alveg búin að tapa sér. Kíkið á þetta
Ranted at 12:19 f.h.♥
fimmtudagur, apríl 01, 2004
HAHAHA Mér fannst e-mailið frá Guðrúnu um vatn á Mars ógeðslega fyndið
En það er bara ég!
Ranted at 9:05 e.h.♥
I'm shocked!!!
I'm Ross Gellar from Friends!
Take the Friends Quiz here.
created by
stomps.
En það er reyndar enginn af þeim neitt líkur mér... :/ Svolítið erfitt að gera þessa könnun þegar maður veit nákvæmlega hvaða svar á við hvað karakter ;)
En ég fór í bíó í fyrradag. Nokkuð viss um að vera á leið á góða mynd þegar á meðal leikara voru Kiefer Sutherland og Ethan Hawke! Þetta er sem sagt myndin "Taking lives". En þetta var án efa versta mynd sem ég hef séð! Í alvörunni. Svo hrikalegt að við vorum farin að skellihlæja undir lokin... og þetta var spennumynd nota bene!
Er annars einhver ykkar búin að gera aprílgabb???

Ranted at 3:57 e.h.♥
Einhverjir verða ekki hissa!!!
I'm Rachel Green from Friends!
Take the Friends Quiz here.
created by
stomps.
I'm Rachel Green from Friends!
Take the Friends Quiz here.
created by
Ranted at 3:32 e.h.♥
((( drrring )))
((((((((((( drrring-g-g-g-g)))))))))))
***svarað ***
"Halló?"
"Hæ, elskan, þetta er pabbi, er mamma þarna?"
"Nei, pabbi, hún er uppi í svefnherbergi með Kalla frænda"
...
Eftir stutta stund segir pabbi:"En þú átt engan Kalla frænda, elskan!?
"Jú víst, og hann er uppi í herbergi með mömmu núna!"
"Hmm, allt í lagi, gerðu þetta fyrir pabba: Leggðu frá þér símann, bankaðu á svefnherbergisdyrnar og kallaðu til mömmu og Kalla frænda að þú hafir séð bílinn hans pabba koma heim?
"Allt í lagi, pabbi!"
Nokkrum mínútum síðar kemur stúlkan aftur í símann:
"Ég gerði eins og þú sagðir, pabbi"
"Og hvað gerðist?" spyr hann.
"Mamma stökk allsber fram út rúminu og hljóp öskrandi út úr herberginu en hrasaði í mottunni og datt út um gluggann, hún liggur hreyfingarlaus úti í garði núna...."
"Guð minn góður, hvað með Kalla frænda?"
"Hann stökk allsber út úr rúminu og stökk út um gluggann og lenti í sundlauginni. Verst að þú lést tæma hana hum helgina til að láta þrífa hana. Hann liggur þar steindauður!
***löng þögn ***
***lengri þögn ****
Svo segir pabbi:,
"Sundlaug..........................Er þetta ekki 555 2755??"

Ranted at 3:27 e.h.♥