mánudagur, júní 30, 2003
Já ég vildi einmitt minna á saumóinn hjá mér á miðvikugagskvöldið! Komið eftir klukkan 8, ég er nebbla á æfingu til 7:30 og þarf að ná að hoppa í sturtu áður en þið komið :)
Ranted at 5:46 e.h.♥
sunnudagur, júní 29, 2003
´Takk fyrir mig!! massa stuð á öllum í gærkvöldi
Oh ég hefði alveg verið til í að djamma... en neiii ég þurfti að vakna klukkan 3 í nótt til að mæta til vinnu. OJ!!! En fæ að sofa út á þriðjudag... oh hva ég hlakka til.
En svo er náttúrulega saumó á miðvikudaginn og þá ætla ég að heyra djammsögur helgarinnar.
Guðrún: hvenær ætliði að flytja inn?? Oh er ekki gaman að vera að standsetja eigin íbúð?? Ég er nú svoldið spennt að fara að leigja og fá að hafa allt eins og ég vil.
Mig langar mest til að chilla bara og horfa bara upp í loftið. Spá í að fara í smá dekur og svona á þriðjudag-miðvikudag og gera mig sæta fyrir kallinn minn sem kemur 11.júlí. Vá hvað ég hlakka til að sjá hann mér finnst ég vera að springa af spenningi. Vá hvað þessir dagar þangað til verða erfiðir.
Ranted at 9:44 e.h.♥
föstudagur, júní 27, 2003
Ég er komin með svo illt í hálsinn :( vona að ég verði djammhæf á morgun :( Ef ekki þá verð ég bara að fórna mér fyrir málstaðinn! (málstaðurinn er bjór ;) )
Ranted at 3:50 e.h.♥
Hæ hó, já maður hefur verið óduglegur að sletta einhverju á bloggerinn uppá síðkastið. Var líka í þannig aðstöðu að vera ekki með tölvu og net fyrir framan mig allan daginn. En já ég komin á skrifstofuna hjá 66°N sem ég er mjög ánægð með. Ég er enginn búðardama!!! Ég er líka með miklu betri vinnutíma núna eða frá 8-4 eða 9-5 fer eftir því hvenær ég mæti. Svo fékk ég líka launahækkun í kjölfarið, það er nú víst aðeins meiri ábyrgð sett á herðar manns hér meðal skrifstofublókanna :)
En já tjútt á morgun, það verður stuð, vonandi sem flestar mæti
Svo erum við Styrmir hætt við að leigja íbúðina út og erum á fullu við að breyta, brjóta og mála. Við erum nefnilega búin að auglýsa íbúðina núna í 2 vikur og fáir hafa hringt þannig að gengur ekki að láta hana standa auða svo foreldrar okkar ætla að hjálpa okkur að koma okkur fyrir og Styrmir fær parket í útskriftargjöf frá foreldrum sínum sem verður sett á eftir helgi.
Úfff eftir svona langa pásu frá Bloggernum þá kemur bara rumsan útúr manni. Sjáumst á morgun stelpur í partýinu!!!! :)

Ranted at 2:55 e.h.♥
fimmtudagur, júní 26, 2003
Já Marín hringdi í mig í gær! Stefnir allt í svaðalegt partý. Hlakka til að sjá ykkur!
Ranted at 11:51 f.h.♥
miðvikudagur, júní 25, 2003
Saltkjöt og baunir...túkall! :) Er að fara til ömmu í saltkjöt á eftir og ég get bara hreinlega ekki beðið. Og frábært að heyra með saumó, alltaf gaman að hafa fleiri hluti til að hlakka til.
Og svo fékk ég vinnu í dag....vúhú! Á kvennasviði Landspítalans, verð aðstoðarlæknir.................djók! Ritari :) Fæ að fara inn á ýmsar deildir, meðgöngudeild, fæðingadeild o.fl. Gaman gaman!
En hvað eru gellurnar að fara að gera í London?
Ranted at 7:31 e.h.♥
þriðjudagur, júní 24, 2003
Enn á ný er hljóðara á síðunni okkar en í kirkjugarði!
Hvað um það, mér datt í hug að hafa saumó í næstu viku þar sem við getum talað um partýið :) Hvurnig líst ykkur á?
Ranted at 4:44 e.h.♥
mánudagur, júní 23, 2003
Ú bara partý á laugardaginn hjá Marín! Ætla ekki allar að mæta? Ég mæti amk.
Ég eyddi þessum yndislega gærdegi í það að fara í Bláa Lónið, það var alveg eðal. Gyða snillingur mætti með 2 fyrir 1 miða frá Visa sem rann út 31. maí. Strákurinn í afgreiðslunni hló bara að mér, ekki nógu gott sko ;) Hvað haldiði svo að við höfum séð í sturtunni! Það ætti að rassskella alla þessa nísku þjóðverja! Það kom einhver þjóðverjakelling með poka inn í sturtuklefann og fyllti hann af sápu úr sápuboxinu!!! Er ekki í lagi, flestir kaupa sér sturtusápu sko! Ég glápti á kellu með hneykslissvip. Mér finnst þetta bara toppur dónaskapsins!!! Ég meina það.
Ranted at 10:44 f.h.♥
föstudagur, júní 20, 2003
Allt gott að frétta af mér alla vega. Djammaði ekkert um síðustu helgi, var á kjaftatörn hér um bil alla helgina! Heima hjá vinkonum eða vinkonur heima hjá mér. Var alveg með harðsperrur í kjálkanum á mánudeginum :) Svo fór ég eftir vinnu á mánudaginn og gaf blóð og kom þannig í veg fyrir að ég djammaði um kvöldið ;) Svo var sautjándinn tekinn með stæl og ég rölti um bæinn allan daginn. Varð þeirra gæfu aðnjótandi að berja Birgittu Haukdal augum. Rosalega góð stemmning :)
Svo er ég að fara til Akureyrar á eftir, verð þar fram á sunnudag í afslöppun og rólegheitum. Góða helgi stúlkur, vona að þið hafið það gott!
Hvernig var annars með saumó, ég er ekki búin að hitta ykkur í óralangan tíma! Hver ætlar að halda næst?
Ranted at 3:22 e.h.♥
Hæ hæ þakka kveðjurnar.
Bara búin að vera í nettu chilli þegar maður er ekki að vinna. Ég er náttúrulega að vinna á tímum þegar venjulegt fólk er í fríi. En það er heví nice vinna. En hvað er svona að frétta af ykkur? Var eitthvað djammað um helgina og á sextándanum?
Úff ég tók 3 djömm á 4 dögum ekki sniðugt.

Ranted at 1:20 f.h.♥
fimmtudagur, júní 19, 2003
Hmmm hvar eru allir? Enginn segir neitt hér! Eru allir bara í sumarfríi?
Ranted at 2:19 e.h.♥
föstudagur, júní 13, 2003
Já til hamingju með háa aldurinn Hrefna :)))
Og hafið góða helgi allar saman í þessu frábæra veðri sem verður um helgina ;)
Ranted at 4:09 e.h.♥
fimmtudagur, júní 12, 2003
Jæja, þá er helgin komin á hreint! Gyða ætlar bara að smella sér í Mörkina! Haldiði að það sé? Eina sem maður þarf er heimsókn í Ríkið og kaupa nokkra öllara með í nestið! Alveg eðal :) Svo verð ég líka að biðja til Guðs um sól í alla nótt, hvað leggur maður ekki á sig ;)
Sem sagt, fyrsta útilega sumarsins orðin að staðreynd :)))
Ranted at 4:14 e.h.♥
miðvikudagur, júní 11, 2003
Það er yndislegt veður og maður hangsar hér inni að venju :(
Ég var einmitt búin að hugsa mér að nýta mér Guðrúnu og 66°N eftir næsta útborgunardag :) Það er nottla best í heimi að vera í nýrri flíspeysu!
Það verður svo gaman að sjá íbúðina ykkar Guðrún, þó að við þurfum að bíða í eitt ár. Við þolum það vel. Hins vegar nennir maður varla að bíða lengur eftir saumó, kannski maður reddi því bara sjálfur fljótlega ef maður heyrir ekki frá neinum!
Ranted at 3:18 e.h.♥
Legsig er eitthvað sem hljómar mjög óspennandi, einmitt pant ekki fá það. En ég er að vinna í 66°N í sumar bæði í versluninni niðri í Lækjargötu og svo á skrifstofunni seinna í sumar. Endilega kíkið á mig ef ykkur vantar flíspeysu eða eitthvað þannig, ég fæ leyfi til að gefa vinum og vandamönnum afslátt.
En ég fæ íbúðina mína á morgun, vei...við ætlum samt að leigja hana út þannig að við flytjum ekki þangað fyrr en eftir amk. ár. En gaman samt.
Hlakka til að mæta í saumó, því fyrr því betra!!!
En ég fæ íbúðina mína á morgun, vei...við ætlum samt að leigja hana út þannig að við flytjum ekki þangað fyrr en eftir amk. ár. En gaman samt.
Hlakka til að mæta í saumó, því fyrr því betra!!!
Ranted at 11:23 f.h.♥
þriðjudagur, júní 10, 2003
LEGSIG!!! Ojjjj er ?a? til? Ma?ur spyr n? bara ? f?visku sinni!!! Hlj?mar mj?g illa, pant ekki f? legsig!
Er annars eitthva? a? gerast ? l?fi ykkar ?essa dagana? Hj? mér gerist ekkert frekar en vanalega, en ég djamma?i ? laugardaginn s??asta og ?a? er bara langt s??an ég hef skemmt mér svona vel! Svo er svo fr?b?rt n?na a? ma?ur kaupir bara Viking Lite og er ? megrun um lei? og ma?ur er ? fyller?i. ?a? er alveg fr?b?rt, ?etta ger?um vi? einmitt ? laugardaginn og ég sver a? vi? h?fum ?rugglega grennst ? kremjunni fyrir utan Hverfisbarinn drekkandi Viking Lite. ?g m?li me? ?essari megrunara?fer? :) H?n er einkar skemmtileg. M?li ?? ekki me? ?v? a? standa ?arna ? kremjunni ? opnum sk?m, ?a? olli mér amk svona ??arfa ???gindum, en ma?ur s?nir nottla bara h?rku og ?tir ?llum af miklu afli sem dirfast a? tilla sér ? t? mér ;) (Hmmm undarleg setning).
Kannski ma?ur ?tti a? fara a? vinna eitthva?...
...e?a neeeei
Ranted at 4:59 e.h.♥
LEGSIG!!! Ojjjj er það til? Maður spyr nú bara í fávisku sinni!!! Hljómar mjög illa, pant ekki fá legsig!
Er annars eitthvað að gerast í lífi ykkar þessa dagana? Hjá mér gerist ekkert frekar en vanalega, en ég djammaði á laugardaginn síðasta og það er bara langt síðan ég hef skemmt mér svona vel! Svo er svo frábært núna að maður kaupir bara Viking Lite og er í megrun um leið og maður er á fylleríi. Það er alveg frábært, þetta gerðum við einmitt á laugardaginn og ég sver að við höfum örugglega grennst í kremjunni fyrir utan Hverfisbarinn drekkandi Viking Lite. Ég mæli með þessari megrunaraðferð :) Hún er einkar skemmtileg. Mæli þó ekki með því að standa þarna í kremjunni í opnum skóm, það olli mér amk svona óþarfa óþægindum, en maður sýnir nottla bara hörku og ýtir öllum af miklu afli sem dirfast að tilla sér á tá mér ;) (Hmmm undarleg setning).
Kannski maður ætti að fara að vinna eitthvað...
...eða neeeei

Ranted at 3:54 e.h.♥
föstudagur, júní 06, 2003
Já, gott hjá þér Gyða mín :) Þetta er samt alveg rétt hjá þér, fólk er mjög nískt á það sem tengist heilsu. Og í þokkabót þá er þetta tískudót, sem maður tímir að eyða í, oft mjög heilsuspillandi! T.d. svona pinnahælaskór, þeir valda mjög miklum höggum upp í hrygginn og geta þar að auki (mjög langsótt samt) valdið heilahristingi og legsigi! Hananú ;)
Annars er ég að vinna á Kvennasviði Landspítalans, flakka á milli deilda í sumar sem ritari. Er t.d. núna í móttöku kvenna og líkar alveg ofsalega vel. Seinna í sumar fer ég á meðgöngudeild, sængurkvennadeild og upp í Hreiður. Sé fleiri óléttar konur hér á hverjum degi heldur en ég hef gert alla mína ævi! :)
Ranted at 3:55 e.h.♥
Úúúú saumó! Mér líst vel á það, svo ef Hrefna af einhverjum ástæðum getur ekki haldið getið þið leitað til mín og ég skal þá halda:)
Annars er ég bara hjá Lyfjadreifingunni aftur. Það er bara fínt, þá er maður amk inni meðan það rignir eins og akkúrat núna! Já og skórnir góðu sem kostuðu 13000 keypti ég í InterSport, það eru hlaupaskór fyrir fólk eins og mig sem þarf dempara í hæl og tá! Ég hef komist að því að fólk er alltaf nískt þegar kemur að því að borga eitthvað fyrir heilsuna, þá á allt að vera ókeypis. En að spreða í eitthvað fínerí úr tískubúðum, fólk er meira til í það! En hvað er gaman að vera í einhverju rándýru fíneríi og líta út og líða eins og tusku? Þess vegna hef ég tekið upp þá stefnu að eyða bara pening í bæði :) Gott hjá mér ;)

Ranted at 3:02 e.h.♥
fimmtudagur, júní 05, 2003
Hæ gellur!!
Ég get alveg haldið saumó en ég er ein hjemma til 19. júní. hehe sorry að hafa aðeins gleymt mér (að koma) í síðasta saumó... hehehe Seint koma sumir en koma þó.
En að þessu peningabraski þá áttu þessir dúddar reksturinn á veitingadeildinni á Hótel Borg og þeir hafa ekki borgað starfsfólki laun í maaarga mánuði. Vinkona mín lenti í þessum skít þarna hjá þeim og þeir skulda henni einhverjar hundruði þúsunda skilst mér.
En hvar eruði svo allar að vinna í sumar??? Ég er komin aftur á Hótel Ísland og er að vinna þar í morgunmatnum, massa fínt!
Ranted at 5:44 e.h.♥
Jú, Felix var líka lokað. Ég á líka kort í Planet, er búin að eiga það síðan í haust og það gildir út október :( Einstaklega leiðinlegt því ég var sko alveg búin að ákveða að taka á því í sumar. En maður verður bara að vera bjartsýnn og vona að einhvern langi að kaupa þetta af þeim og leyfa okkur að svitna áfram! Mér finnst líka sorglegt að Thorvaldsen sé lokaður því það er frábært að skreppa þangað í hádeginu í lunch, mjög góður matur þarna.
En hvar keyptir þú þér skó Gyða? 13.000 kall, váááá ;) Þú hefðir átt að koma með mér til Englands, við vorum í strandbæ þar sem allt var svo ódýrt að ég missti mig alveg og verslaði og verslaði, keypti mér t.d. þrenn skópör fyrir samtals 5000 :) Kom sér afskaplega vel, það er svo langt síðan ég hef verslað mér föt.
En hvenær er annars stefnt á næsta saumó? Og hver ætlar að halda?

Æ grey Styrmir! Þetta er massa fúlt. Var þessum nýja stað þarna Felix ekki líka lokað? Það held ég. Þetta peningabrask í þjóðfélaginu er greinilega eitthvað spúkí!
Það er satt að tíminn líður rosalega hratt! Það verður kominn júlí áður en maður veit af! Ég væri alveg til í að fara að kaupa mér línuskauta bráðum! Kannski ég noti þá oftar en þrisvar ;) Annars var ég að eyða 13000 kalli í skó þannig að skautarnir verða að bíða held ég. Svo langar mig lika að kaupa hjól, geri það örugglega næsta sumar eða eitthvað! Svo er hvítasunnuhelgin framundan og ég ætla ekki að gera neitt, nema kannski drekka bjór og liggja í sólbaði í góða veðrinu!!!

Sáu þið fréttirnar í gær? það er búið að loka Thorvaldsen og Planet Reykjavík!!!! og greyið hann Styrmir minn á kort í Planet Rvk. og getur ekkert notað það núna :(
En það er bara kominn júní, geðveikt skrítið hvað tíminn líður hratt á sumrin, maður verður að vera duglegur að nota góða veðrið en ég fékk einmitt stól aftan á hjólið mitt fyrir Júlíu í afmælisgjöf. Alveg æðislega flottur og ég verð að vera dugleg að fara í hjólreiðatúra með hana. Þarf bara að fara kaupa hjálm á hana og mig, mér finnst ekki annað hægt ef ég ætla að reyna að skikka hana til að nota hjálm að noti sjálf hjálm :) - svo á ég líka línuskauta sem ég bara notað kannski 2-3 sinnum frá því ég fékk þá. Maður er alltof latur :/

Ranted at 12:47 e.h.♥
þriðjudagur, júní 03, 2003
Gvuuð ég er líka 59% snobb, það er bara ágætt, er ég ekki í snobb skóla eins og Ingibjörg Sólrún kallar Háskólann í Reykjavík.
Annars þá finnst mér ömurlegt að það skuli rigni á afmælisdaginn minn, ég pantaði það ekki :(
Fæ svo famelíuna í kaffi í kvöld, allir velkomnir ef þeir vilja :)
Ranted at 2:32 e.h.♥
mánudagur, júní 02, 2003
Já það er rétt, ekki myndi ég ráða þá í vinnu til mín! Þeir verða bara að bíta í það súra með Árna Johnsen :)
Ranted at 1:50 e.h.♥