<xmp> <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3238927?origin\x3dhttp://rotturnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script> </xmp>
fimmtudagur, janúar 29, 2004
Þa bar ekkert annað! Maður er að sjálfsögðu aðalmaðurinn, og hetja, sátt við þetta, hmmm nema að ég kannast nú ekki við athyglissýkina. Já og nammitestið sagði að ég væri tyggjó! Veit nú ekki alveg hversu gott það er og hin innri ég er 16! Ma er svo hissa!

Mario
You are Mario. You're pretty good-all-around.
You're most of the time the hero, and you don't
get too hung up in it...just try and let others
get a little spot-light too, k? (plz rate)


What Nintendo Charater are You? (pics)
brought to you by Quizilla
Ranted at 11:50 e.h.♥

|


Jamms ég býð Telmu aftur!
Svo sjáumst við hressar annað kvöld :)
Ranted at 3:31 e.h.♥

|


miðvikudagur, janúar 28, 2004
Hæ og já takk fyrir síðast, rosa gaman hjá Maríu og ég er ennþá södd...eða svona næstum :o)
Ég var beðin um að setja smá tilkynningu inn hérna og hér kemur hún:

Okkur Dísunum er boðið í afmælið hennar Telmu Dís næsta föstudag (30.01.04) um klukkan 21:00
Afmælið verður haldið að Bólstaðarhlíð 26. Og hún hlakkar örugglega rosalega til að sjá okkur :o)

Ef að þið komist ekki viljið þið þá vera svo vænar að smella á hana eins og einu smáskilaboði, það held ég að myndi gleðja hennar litla hjarta.

Gyða, ég átti líka að senda þér einhverja ábendingu um að Telmu vantaði aðgang inn á síðuna.....

Jæja sjáumst vonandi sem flestar á föstudaginn!


Ranted at 9:04 e.h.♥

|


Sælar stúlkur og takk fyrir síðast, þetta var frábær saumó!

Ég er búin að panta borð á Tapasbarnum þann 21. febrúar fyrir 15 manns. Hann ætlar svo að hringja í mig þegar nær dregur og segja mér frá hópmatseðlum sem þeir hafa. Þetta verður án efa alveg eðal! Þessa dagana ligg ég með hausinn í bleyti til að finna upp á einhverju sniðugu til að gera áður, sem mun án efa toppa Telmu og Benný!!!

Læt ykkur vita um leið og ég veit eitthvað meira. T.d. hvaða frábæru tilboð Tapasbarinn mun senda okkur ;)

Ranted at 11:27 f.h.♥

|


mánudagur, janúar 26, 2004
Hæhæ og takk fyrir síðast. Þetta var alveg ótrúlega flott hjá Maríu og ég skemmti mér ofsalega vel. Nú er ég farin að telja niður í árshátíðina... 26 dagar :)
Ranted at 4:58 e.h.♥

|


miðvikudagur, janúar 21, 2004
Hæ hæ skvísur, var að hlera Maríu og hér kemur nýjast update-ið....nei djók bara doldið fyndið hvað ég er orðin mikill milliliður....en hún var samt að segja mér að hún ætlar að hafa mexíkóskan mat (ég held að maður skrifi þetta svona) ....namminamm.

sjáumst hressar á sunnudaginn
Ranted at 6:34 e.h.♥

|


þriðjudagur, janúar 20, 2004
Já, ég líka :)
Ranted at 12:33 e.h.♥

|


mánudagur, janúar 19, 2004
Frábært
Ég hlakka geðveikt til!!!
Ranted at 5:06 e.h.♥

|


Hello girls,
Saumó næsta sunnudag heima hjá Maríu um kl.19.30, hún ætlar að hafa eitthvern mat handa okkur þannig að mætið svangar ......;)
þið fáið síðan sms frá henni von bráðar, vildi bara segja ykkur þetta "bloggurum" því ég veit hvað við erum allar óþreyjufullar.
En María heyrði semsagt frá lækninum sínum í dag og fer í aðgerðina í næstu viku.

kveðja, Guðrún....ritarinn hennar Maríu.....!!! ....;)
Ranted at 4:26 e.h.♥

|


sunnudagur, janúar 18, 2004
Blessaðar gellur!

Ég er óðum að aðlagast íslenskri menningu og lífi! En hver pantaði þetta veður eiginlega? Ég ætlaði nú bara að hoppa aftur upp í flugvél þegar ég kom útúr Leifsstöð! En peysurnar mínar halda mér hlýrri!

Anna Jóna akkuru ertu svona blá??? Saumó segiði, við getum náttúrulega líka bara hists á kaffihúsi eða eitthvað slíkt.... það þarf engar hnallþórur né vesen. Bara mæta. Ég mæti bara þar sem mér er sagt að mæta.

Hey já árshátíð!!! Mig langar mig langar mig langar að vera memm. Ég missti náttúrulega af síðustu. En TApas er æðislegur staður héldum einmitt árshátíð Díonýsusar þar. Frábær staður! En þar sem ég hef engin númer eða neitt þá er ég ekki mannsveskjan í að plana þetta.

María mín (eða einhver sem talar við hana) GANGI ÞÉR ROSALEGA VEL!! baráttukveðjur frá Hrebbnu.

Ranted at 10:07 e.h.♥

|


laugardagur, janúar 17, 2004
Hæ skvísur, ég er búin að tala við Maríu mikið í vikunni sem leið og reyna að hlera hana með saumó. En málið er nefnilega það að hún er að bíða eftir að heyra frá lækninum sínum því það hefur verið ákveðið að hún fari í aðgerð eða speglun á leginu og þau voru að bíða eftir að deilurnar leystust milli lækna og TR, og hefði læknirinn getað hringt í hana og sagt henni að koma daginn eftir þess vegna!!!. María bað mig allavega að segja ykkur þetta og ég var sjálf að pæla í að halda jafnvel saumó í staðinn fyrir hana en get það ekki vegna álags í skólanum en ef það er einhver önnur sem vill halda saumó þá er það sjálfsagt, því mánuðurinn er að klárast og árshátíðin á næsta leyti. Ég veit að Maríu langar rosalega að halda saumó en ég held samt að þetta sé of mikill stress mánuður fyrir hana til að standa í því. Persónulega myndi ég fresta því ef ég gæti. En endilega hlerið restina af saumó og tjékkið á stöðunni.
Síðan er aldrei að vita nema María boði okkur í saumó bara í næstu viku......:)

Ég fór annars á Idolið í gær aftur og með Ollu vinkonu og Helgu Sjöfn og fleirum og við skemmtum okkur konunglega, enduðum á barnum á fridays og rúlluðum útúr smáralindinni að ganga 2 um nóttina........:S

Voru þið annars sáttar með úrslitin skvísur????
Ranted at 2:53 e.h.♥

|


föstudagur, janúar 16, 2004
Heyrðu frábært :)
Ég hlakka mikið til að fara í saumó!
Ranted at 12:39 e.h.♥

|


mánudagur, janúar 12, 2004
Frábært, mig langar svo ofsalega mikið í saumó :)
Ranted at 9:37 e.h.♥

|


sunnudagur, janúar 11, 2004
Talaði við Maríu og hún ætlar að halda saumó, vonandi sem fyrst. Var einmitt að spá í hvað hún ætti að hafa. En við getum þá reynt að ákveða dag fyrir árshátiðina. Júlía á náttúrulega afmæli 12 feb og við höldum örugglega uppá það helgina eftir sem er 14 - 15 feb, þannig að ég vona að það verði ekki akkúrat árshátíðarhelgin, en við sjáum bara til hvenær flestir geta mætt. Ég myndi náttúrulega mæta þó það væri sömu helgi en það er ekkert gaman að vera þunnur í barnaafmæli og hvað þá hjá manns eigin barni......híhíhí.

Ég skal samt þjarma að Maríu og fá hana til að halda saumó í vikunni. Verðum í bandi girls.
Ranted at 6:34 e.h.♥

|


Já gott að þið eruð svona staðfastar ungar dömur :)
hehe

Ég er að sjálfsögðu mjög til í Tapas, ég elska þann stað!

Ég óska Tinnu til hamingju að vera búin í prófunum loksins. Það var mikill léttir að kíkja á eina einkunn áðan, ég sem hélt ég hefði runnið í eigin skít á prófinu, en sem betur fer hefur mér tekist að standa í fæturnar :) En ég verð nú að segja ykkur að ég var inni á Celtic í gær og ég hef aldrei áður tekið eftir því að þessi staður sé svona stór! Það er nú ekki merkilegt nema hvað við sátum fyrir innan og borðið var svört líkkista og á glugganum á hurð sem var við hliðiná okkur stór "funeral ...bla eitthvað". Mér fannst þetta svona hálf ósmekklegt, en ekki var hægt að opna líkkistuna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Ranted at 1:41 e.h.♥

|


laugardagur, janúar 10, 2004
Tökum þetta skipulega: ég veit ekki, ég veit ekki... og ég veit ekki :) Mjög góðar spurningar hjá þér AJ. Þyrftum eiginlega að hafa saumó sem fyrst til að geta rætt um þetta. Og ég er til í Tapas, hef einu sinni borðað þar og það var æði.

Annars er ég sloppin úr einangrun eftir að hafa klárað síðasta jólaprófið í gær og er komin í jólafrí... í tvo daga... jeiii :)
Ranted at 7:29 e.h.♥

|


fimmtudagur, janúar 08, 2004
ein hugmynd um stað sem við getum borðað á árshátíðinni....!! Tabas-barinn...fór þangað um daginn og ég veit að Gyðu finnst góður matur þar...;) allavega hugmynd
Ranted at 8:57 e.h.♥

|


miðvikudagur, janúar 07, 2004
Noh bara verið að koma á frónið.

Ætli að það verði nú ekki beðið með saumóinn, verður Marín ekki hérna í einhvern tíma í viðbót?
Hvernig er það annars, fer ekki að koma tími til að ákveða hvert við ætlum að skella okkur á árshátíðinni þetta árið?
Ranted at 6:51 e.h.♥

|


þriðjudagur, janúar 06, 2004
Gledilegt ar gellur!

HEy ekki hafa saumo fyrr en eg kem heim!!! eg kem a manudag!
Ranted at 4:28 e.h.♥

|


mánudagur, janúar 05, 2004
Já ég hlakka mikið til að hitta ykkur allar í saumó! Vonandi sem allra fyrst :)

Og Tinna, gangi þér rosalega vel í prófinu!
Ranted at 1:46 e.h.♥

|


laugardagur, janúar 03, 2004
P.S. Ég er farin að hlakka ótrúlega til að hitta ykkur næst, get bara ekki beðið :) Vona bara að María haldi ekki fyrir föstudaginn :/
Ranted at 11:46 e.h.♥

|


Gleðilegt ár :)

Ég var í árlegu fjsk matarboði hjá systur mömmu á gamlársdagskvöld og fór síðan í þrusupartý með bekknum og var þar til fjögur. Bara róleg, ekkert sukk á minni, ákvað að byrja nýja árið vel (hluti af þeim pakka var t.d. að lesa námsbækurnar á nýársdag!). Við erum nefnilega að fara í síðasta jólaprófið núna 9. janúar. Svo fæ ég 2ja daga jólafrí (kannski kallast það frekar janúarfrí eða bara vetrarfrí) áður en skólinn byrjar af fullri hörku, samanþjappaður vegna skipulagsbreytinga læknadeildar.

By the way, ég er ótrúlega jákvæð og lífsglöð manneskja :)
Ranted at 11:45 e.h.♥

|


Já gleðilegt ár skvisur,
við Styrmir og Júlía vorum hjá tengdó í mat og að skjóta upp flugeldum og svo kíktum við bara í smástund í partý til Jóhannesar og Ollu vinapars okkar. Við fórum samt snemma heim og ég var dauðfegin enda er maður svo svakalega þreyttur eftir allt þetta prógramm á gamlárs. Ég er miklu meiri manneskja í að tjútta almennilega á nýárskvöldi frekar.
En varðandi saumó þá held ég líka að María eigi að halda næst og vonandi getur hún það fljótlega því við höfum ekki hist svo lengi. Svo er líka Marín bara á landi í takmarkaðann tíma svo það er um að gera að reyna hittast áður en hún fer.
Svo var ég að fatta að það styttist óðum í árshátíðina okkar ......Jibbý...:)
var hún ekki í byrjun feb í fyrra??

En jæja, ég skal allaveg hlera Maríu og læt ykkur svo vita

bæ í bili skvísur
Ranted at 8:18 e.h.♥

|


föstudagur, janúar 02, 2004
Jæja hvað var svo gert á Gamlárskvöld?

Ég, Sella, Anna Lára, Benný og Katrín vorum allar í sama partýinu. Það var voða gaman enda allt of langt síðan ég hef hitt ykkur allar saman. Það var alla vega það gaman að ég kom ekki heim fyrr en kl 8.30 í gærmorgun! Og munaði þá minnstu að ég hefði sofnað í bílnum hjá Sellu gellu, ekki vegna ölvunar eins og þið haldið kannski, nei ó nei, heldur vegna syfju.

Í gær horfði ég svo á Lord of the Rings 2 því stefnan er tekin á bíó á þriðju myndina í kvöld. Þetta eru svo æðislegar myndir, ég elska svona ævintýri! Svo var ég að panta Harry Potter og alla Lord of the Rings seríuna á Amazon fyrir spottprís og engan sendingarkostnað því ég pantaði fyrir meira en $25. Algjör snilld!

Hins vegar hef ég ekki grænan grun um það hver á að halda næsta saumó, í hreingerningarkasti mínu fyrir jólin virðist ég hafa hent listanum svo ef einhver á hann endilega senda hann á mig. Það er greinilega stórhættulegt að missa sig svona með tuskuna, enda passa ég mig á þvi að það gerist sem sjaldnast ;)
Ranted at 9:57 f.h.♥

|