<xmp> <body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar/3238927?origin\x3dhttp://rotturnar.blogspot.com', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script> </xmp>
fimmtudagur, janúar 31, 2002
Ég veit!!!!!! Við erum hræðilega ömurlegar:( Tölum saman á msn ALLA daga og svo meðan hin svara ekki í smá stund þá förum við og bloggum!!! ARRRRG! Svo dæmi sé tekið þá er klukkan núna 16.09 og Hrefna farin heim, fyrir 6 mínútum síðan og þá er ég komin hingað og uppgötva að þú varst að skrifa um... úpps síminn...
...já, um hvað við erum ömurlegar og eigum ekkert líf! Sem er líka satt. Nennir plís einhver annar líka að skrifa hérna svo að ég og Hrefna séum ekki algjörir HÁLVITAR!!! Einnig er líka satt að ég á mjög góðan tannsa og ætla jafnvel aftur til hennar á eftir til að fá meira joð. Já þetta snýst líf mitt um þessa dagana: fá joð í munninn og passa mig að missa ekki af næsta leik á EM. Mjög kúl líf:)
Jæja, ég vil fara heim og kannski maður reyni bara að smygla mér út. GEEEEEEEEEEIIISP!
Ranted at 4:18 e.h.♥

|


Tannsinn þinn er góður! Hún pínir þig ekki. eða hvað?
Gyða mín ég held að við þurfum að fara að eignast líf! Við eigum í samskiptum við umheiminn í gegnum tölvu!
Ranted at 2:16 e.h.♥

|


miðvikudagur, janúar 30, 2002
Sælar! Nú er ég að fara til tannsa og vona að hún láti mér líða betur í endajaxlinum. Heyrumstum
Ranted at 4:08 e.h.♥

|


Hæ hó!
Ég er þreytt!
Ranted at 1:48 e.h.♥

|


mánudagur, janúar 28, 2002
Sælar! Vonandi var helgin ykkur góð! Mín var svona sæmileg, var helst til þreytt sem er ekki gott. En nú er maður mættur eldhress í vinnu og það er -11°C úti, svo klæðið ykkur vel;) Hvaða sætu stráka ertu að tala um Hefna? Ég hef nebbla bara ekki séð neina. En það á sér kannski þá skýringu að Anna L og vinkonur hennar stunda vanalega Sportkaffi og þangað kíktum við inn á laugard. kvöldið. Það er nú ekki í frásögur færandi nema að ég var eins og "big moma" þarna inni og mæli ekki með þeim stað lengur nema í STÓRUM vinahóp svo maður taki ekki eftir börnunum þar inni. Annars er Hús málarans líka á hraðbyr á leið í skítinn, einu staðirnir þar sem maður hefur orðið var við stuð eru Gaukurinn og Nasa. Allir þangað næst!!!
Ranted at 9:08 f.h.♥

|


Hallo Kallo.
Já það var mjög gaman á laugardaginn að vísu fylltu strákarnir mig allverulega. Ég byrjaði á að fara á djammið með Kristínu og við hittum nokkra vini okkar en svo fór hún heim og ég var alein eftir með þeim. Mjög furðulegt djamm. Sunnudagurinn var dagur höfuðverkjar og þynnku.
Hvernig stendur á því að allir sætu strákarnir eru teknir???? Mér finnst etta ekkert sniðugt lengur.
Anna Jóna skelltu þér bara á deit með honum!! híhí
Jæja best að vinna smá.
Ranted at 8:09 f.h.♥

|


föstudagur, janúar 25, 2002
Ja, danke Hrebbna. Gott að fá svona stuðning. Góða helgi.
Ranted at 4:16 e.h.♥

|


Hey Gyða mín ég er á eintali á tveimur öðrum bloggum, þannig það er allt í lagi ef þú talar við ´sjálfa þig af og til. Annars ertu nú alltaf að tala við mig á MSN. Annars sjáumst á morgun á kaffihúsinu.
Góða helgi fólk.
Ranted at 4:11 e.h.♥

|


Síðustu tvo daga er ég farin að sjá ákveðið mynstur hérna á blogginu okkar. Þ.e. enginn skrifar nema ég, ég er búin að vera á eintali í 2 daga hérna! Ég vona að þið sjáið sóma ykkar í þvi að bjarga mér frá frekari geðveilu. Virðingafyllst.
Ranted at 4:05 e.h.♥

|


Já það er greinilegt hver á minnsta lífið hér á bæ. GYÐA!!! Annars var ég rétt í þessu að koma mér í mjúkinn hjá einhverjum töffara sem heitir Brynjar, það er ekki í frásögur færandi nema vegna þess að hann vinnur hjá OL'IS og ætlar að vera svo góður að redda fyrir mig aukavinnu. Kannski eitthvað kvölds og helgar. Mjög gott fyrir bankareikninginn minn:) Annars ekkert að frétta og ég læt vita með framgöngu mála hér á blogginu. Þ.e. hvort ég verði bensínstöðvalúði eða ekki. Annars held ég að ég verði frekar svöl inni á svona bensínstöð með græna derhúfu og grænan bol með gulum stöfum! En það mun bara koma í ljós hvort að þessur "villtu" draumar mínir rætast! ;) Ég segi þá bara góðar stundir og bless í bili!
Ranted at 4:02 e.h.♥

|


Ja kære veninder! Nu skriver jeg kun på dansk. Det er fordi jeg og Hrebbna snakker nu sammen på dansk på msn. Men jeg har glemt meget og fordi skriver jeg ikke alt helt rigtigt! Men jeg har ingenting at sige og nu vil Hrebbna snakke engelsk, so I guess that's easier:). Yes, but I have nothing to say in english either, so I'll just say so long my dear friends.
Ranted at 11:47 f.h.♥

|


fimmtudagur, janúar 24, 2002
Hæ stelpur. Stund milli stríða í vinnunni:) Annars ekkert að frétta. Hrebbna er víst í brúðkaupi núna svo ég hef engan að tala við á meðan:( Vona að hún standi sig vel sem veislustjóri, mér heyrðist hún nú vera aðstoðarkokkur líka!!! Ætla ekki allar að skemmta sér eitthvað um helgina? Eða eru það bara rólegheitin? Ég þarf nú að fara í 6.M saumó á föstudag en svo verður kannski tekið á því á laugardag. Fer allt eftir stemmaranum! Já svo er ég í sjokki yfir kaffihúsaferðinni á laugardag. Á sama tíma er 2. leikur Íslendinga á EM. Ég verð bara að taka hann upp og horfa á hann þegar ég kem heim. ÞVÍLÍK FÓRNUN!!! En hvað gerir maður ekki fyrir vini sína? ;)
Ranted at 1:49 e.h.♥

|


miðvikudagur, janúar 23, 2002
Hver í andsk.... var að senda þér þetta?
Ranted at 9:59 f.h.♥

|


Hey girsl, hey boys...
...öhh eða bara hey girls!
Ég kem ekki fyrr en kl. 16.00 á laugardaginn á Coffeetear. Sjáumst þá!!!
Ranted at 8:31 f.h.♥

|


þriðjudagur, janúar 22, 2002
Hey klukkan 2-3 á Kaffitár hvernig líst þér á það? Gyða ætlar að koma með.
Ranted at 3:06 e.h.♥

|


Jæja prófið tekur um 3 tíma en það er í Keflavík og byrja rétt fyrir 8 um morguninn þannig ég er laus um hádegi.
Ranted at 1:49 e.h.♥

|


Ég er búin humm... best að tjekka á því
Ranted at 1:41 e.h.♥

|


Hey kannski er enn til karlmaður sem er almennilegur, sætur, skemmtilegur og allt það. Já og er ekki hommi eða í sambandi! Glætan ég er búin að vera að leita. Það var í einhverjum sjónvarpsþætti um daginn að maður getur verið miklu meira en bara gagnkynhneigður, tvíkynhneigður og samkynhneigður maður getur verið sjálfkynhneigður og eitthvað fullt í viðbót.
Híhí hvað segiði með að kíkja á laugardag á kaffihús þegar ég er búin í prófinu og förum að dissa karlmenn?
Ranted at 8:48 f.h.♥

|


mánudagur, janúar 21, 2002
Hola! Jæja, ekkert að frétta af mér en engar smá fréttir frá þér Anna Jóna mín! Ég vona að þér líði nú betur og gott hjá þér að ætla samt að fara til Danaveldis. Go girl! Jæja best að þykjast vinna eitthvað.
Ranted at 9:08 f.h.♥

|


Æ æ krúttið mitt Anna Jóna! Karlmenn eru fífl, only good for one thing... vaska upp!
Ranted at 8:36 f.h.♥

|


föstudagur, janúar 18, 2002
Hí hí Anna Jóna where is u?
Hey ég er bytta og frekja og snobb samkvæmt essu prófi... ekkert að marka það!

Ranted at 10:54 f.h.♥

|


Hæ! Anna Jóna lætur ekkert á sér kræla! Já og ég er Will í þessu testi. Skil samt ekki akkuru?
Ranted at 9:04 f.h.♥

|


fimmtudagur, janúar 17, 2002
jæja fólk!
Ranted at 11:31 f.h.♥

|


þriðjudagur, janúar 15, 2002
Ég get eiginlega ekki sett mikið meira inn á síðuna mína í dag. Ég er búin að hrúga inn drasli á hana! hí hí.
http://hrebbna.blogspot.com/
Ranted at 3:27 e.h.♥

|



Will & Grace eru æði!! Taktu prófið og athugaðu hver þeirra þú ert. Ég er Karen hí hí.


Ranted at 9:15 f.h.♥

|


TIL HAMINGJU GYÐA MÍN!!!
Nú þarf bara að finna vinnu fyrir Sellu og Telmu! En hvað ertu annars að starfa við?
Ég er að deyja úr harðsperrum! Ég var að byrja aftur í líkamsrækt eftir jólin og ó my god ég er í lélegu formi. En samt ég var á leiðinni í einn ákveðinn tíma en mér var sagt vitlaust í símann þegar ég hringdi um morguninn þannig hann byrjaði klukkutíma seinna en ég hélt. Þannig þá var bara að nýta tímann vel. Ég fór á stigahelvítið og hlaupabrettið síðan var farið að lyfta og að lokum teygt aðeins á áður en tíminn byrjaði. Ég var hálfdauð þegar tíminn byrjaði, en kláraði hann þó. Nú á ég bágt með að ganga og enn erfiðara að lyfta höndum.

Bjóðum Önnu Jónu velkomna til starfa.

En Gyða ég var að kíkja á teammembers- Sunna er Þórarinsdóttir en ekki Þórisdóttir!
Telma eða eiinhver hlýtur að vita meilið hjá Marín en er Katrín ekki með meil?
Vinna núna blogga seinna!

Ranted at 9:00 f.h.♥

|


mánudagur, janúar 14, 2002
Takk Hrefna fyrir boðið en...
... nei takk!!! Annars er það nýjast í fréttum að ég þarf ekki að þykjast vera COOL, ég er COOL Sella mín! Og ég er ekki atvinnulaus aumingi lengur, heldur starfsmaður hjá Lyfjadreifingu!!! (Applause). Annars vil ég bara þakka fyrir saumó í gær hann var mjög skemmtilegur (og ljúffengur). Svo vil ég bjóða Önnu Jónu velkomna, sem ég hef áræðanlegar heimildir fyrir að sé að fara að logga sig hér inn. Já og Anna Jóna þú ferð svo í view web page, sem er skrifað hér með appelsínugulum stöfum til þess að sjá sko síðuna sjálfa sem er ákaflega græn og "sjarmerandi". Veit einhver e-meilið hjá Marín svo að ég geti boðið henni??? Það er eiginlega nauðsynlegt. Jæja nóg komið í dag, heyrumst!
Ranted at 3:17 e.h.♥

|


Það var alveg einstaklega fróðlegt og gaman í gærkvöldi í saumó. Ég var að fá að vita allskonar hluti sem ég hafði ekki hugmynd um. Það var kannski fullmikið rætt um börn og barneignir en þó dugir bara að krossleggja fætur og hlusta. Við sem erum ekki í sambandi förum fækkandi. Ég held að það sé bara ég, Sella, Gyða og Anna Lára eftir!
Í sambandi við vinnur! ef ég finn eitthvað þá pósta ég það hingað strax, svo megið þið rífast um hver fær hana. Þið megið annars vinna vinnuna mína ef ég fæ borgað!
Ranted at 8:03 f.h.♥

|


laugardagur, janúar 12, 2002
Jæja HALLÓ halló, ég á ekkert líf.!!!!
Hrefna mín ef þú sérð einhverja sniðuga vinnu auglýsta þá máttu láta mig vita líka því ég er að verða gráhærð úr leiðindum. Eina sem maður getur gert er að setja upp gervibros og þykjast cool. Ég hata þetta.! Ekki gaman að vera ATVINNULAUS AUMINGI eins og ég og Gyða erum akkurat núna

En ekki meira í bili, sjáumst í saumó á sunnudag
Ranted at 4:55 f.h.♥

|


miðvikudagur, janúar 09, 2002
Jæja saumó hjá Önnu Láru næsta sunnudag kl.20:00 held ég. Þetta sagði Gyða mér allavega.
Sel það ekki dýrara en ég keypti það.
En ég ætla að reyna að mæta ef ég verð í bænum og ef ég þarf ekki að vinna. :)

Annars er kominn tími til að ég viti hvað er að gerast ég var að fá að vita áðan að María Ósk er gift og búin að vera það síðan í ágúst. Ég vissi að hún væri trúlofuð en halló gift. Mér skilst að Guðrún sé komin með ansi stóra bumbu. :) hún á að eiga víst bara bráðum.

Svo vil ég fá að vita hvað er að gerast með allar hinar. Sko við þyrftum eiginlega að hafa svona staðlaðan póst á alla þannig að sumir vissu eitthvað.
Nafn:
Númer:
Heimilisfang:
Land:
Hjúskaparstaða:
Vinna:
Skóli:
Börn:
Hvað er verið að gera í augnablikinu:
Framtíðaráform:


Þetta er orðið hálffáranlegt ég veit aldrei neitt.
Ranted at 4:55 e.h.♥

|


mánudagur, janúar 07, 2002
Hey með saumó, hver á að vera með hann næst?
Ég veit að ég er einhvers staðar í röðinni en hef ekki hugmynd hvenær!
Má saumóinn sem ég held vera með gleðivatni um hönd? Ég hef ekki verið neitt sérstaklega dugleg við að mæta í saumó en það stendur til bóta.
Ranted at 4:21 e.h.♥

|


Halló dömur! Vildi bara segja GLEÐILEGT NÝTT ÁR. Ef þið vitið um vinnu fyrir litlar Gyður sendið þá emil á gyda_mjoll@hotmail.com. En ég neita að vinna á Domino's og McDonalds! Frekar sæki ég um atvinnuleysisbætur:( Gaman að byrja nýja árið af svona miklum krafti! Sjáumst í saumó.
Ranted at 3:14 e.h.♥

|


sunnudagur, janúar 06, 2002
Hey ég fór upp í Réttó í gær að fá afrit af einkunnunum mínum og það er allt eins og það var. Það er meira að segja búið að setja upp myndina af okkur!! Hí hí Pétur og Kiddi með asnaleg gleraugu og eins og hálfvitar. Og við erum allar eitthvað svo clueless og litlar á þessari mynd. Æ ég væri alveg til í að vera að BYRJA í menntaskóla núna og taka þetta með þvílíku trompi.
Æ ég man ekki hvað konan á skrifstofunni heitir Ósk eða eitthvað hún mundi eftir mér og var að spyrja mig hvað ég væri að gera og svona og líka hvað þið væruð að bralla. Ég held henni fannst ég vera orðin eitthvað of fullorðin. Æ ég fékk þvílíka nostalgíu tilfinningu við að koma þarna.
Vildi bara láta ykkur vita!
Best að halda áfram við þessar umsóknir. Þetta er alveg hörku hörku vinna!!
Ranted at 1:21 f.h.♥

|


fimmtudagur, janúar 03, 2002
Hola chicas!!!

Vildi bara segja gleðilegt ár og takk fyrir þau GÖMLU, sjáumst hressar og kátar :o)
Ranted at 8:57 e.h.♥

|


miðvikudagur, janúar 02, 2002
Gleðilegt ár!!! 2002 vá :)
Ranted at 9:05 f.h.♥

|