fimmtudagur, febrúar 23, 2006
Heisala hobbsala!Okkur er sönn ánægja að tilkynna ykkur það dagurinn fyrir árshátíð vora er fæddur! Má ég kynna fyrir ykkur 11. mars!!!! Jeijjjjjj:o) En hann ku einnig vera afmælisdagur Laufeyjar, semsagt mjög góður dagur.
Held svei mér þá að þetta sé erfiðasta ákvörðun sem hefur verið tekin í þessu ferli og nú þegar þessu þunga fargi er af okkur létt þá getum við einbeitt okkur að þessu skemmtilega. Reyndar er það nú eiginlega allt ákveðið. Eigum bara eftir að staðfesta nokkrar pantanir hér og þar og svo bara hviss búmm bæng.........dagskráin kemur inn um helgina.
Ranted at 9:11 e.h.♥
miðvikudagur, febrúar 22, 2006

Dísir!
Það verður partý á menningarheimili mínu næstkomandi laugardagskvöld og þið eruð að sjálfsögðu boðnar :) Tilefnið er útskriftin mín og stuðið byrjar klukkan 21! Á boðstólnum verður eitthvert magn af hressandi guðaveigum og jodel-duettinn lederhosen mun leika fyrir dansi fram yfir miðnætti! Að sjálfsögðu eru makar ykkar velkomnir :)
Vonast til að sjá ykkur sem flestar.
Skál (fyrir mér ;);) )
Ranted at 1:04 e.h.♥
mánudagur, febrúar 20, 2006
Slæmar fréttir!Þar sem ég er nú með allt niður um mig og brúnt í brók þá sé ég ekki fram á að ná að halda saumóinn sem ég ætlaði að halda í þessum STUTTA febrúar :(:(:(
Valkostirnir eru því eftirfarandi:
1) ég held saumóinn í byrjun mars
2) höfum bara árshátíð í mars og ég hef saumó í apríl
3) einhver snillingur skiptir við mig
Endilega segið hvað þið viljið gera í þessu leiðindamáli!
Annars ætla ég að bjóða ykkur í partei hjá mér á laugardagskvöldið :) Læt betur vita þegar ég veit hvenær og svona!
Ranted at 2:40 e.h.♥
fimmtudagur, febrúar 16, 2006
Jæja!Núna erum við búnar að taka 4.mars af listanum og þá eru bara 11. og 18. eftir! Við vitum að 4 skvísur höfðu planað sumarbústaðaferð þann 11. og við viljum nú alls ekki skemma hana fyrir þeim en svo eru einhverjar að vinna helgina 18. og okkur langar auðvitað að hafa sem flestar með þannig að þetta er orðið ogguponsu flókið. En ekkert sem ofurdísir ráða ekki við;o)
Þannig að nú verður bara kosið á milli 11. og 18. og sú helgi sem fær fleiri atkvæði verður fyrir valinu...... semsagt eins einfalt eins og karlmaður væri að plana þetta!
Annars vona ég bara að þið séuð farnar að hlakka til því þetta verður sko rosa svaka gaman!
Vonum allaveganna að við skemmtum okkur jafnvel og þessir.....
http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=1993
Bestur kveðjur
Ragna og Sunna
Ranted at 10:51 f.h.♥
miðvikudagur, febrúar 08, 2006
Sælar skvísur!Þá fer að líða að hinni stórskemmtilegu hátíð sem kennd er við ár!
Undirbúningur er semsagt að hefjast en við þurfum víst að byrja á að velja helgi sem allir/flestir eru ánægðir með. Þessvegna biðjum við ykkur um að setja hér í athugasemdirnar hvenær ykkur hentar best að hrista rassin með hinum Dísunum.
Hægt er að velja um eftirfarandi:
4. mars
11. mars
18. mars
...og kjósið nú!
Ranted at 5:01 e.h.♥
föstudagur, febrúar 03, 2006
Góða helgi dömur!Vonandi stefnir í góða helgi hjá ykkur. Ég ætla að eyða helginni á Hótel Valaskjálf með nýja elskhuga mínum honum Pedro. Læt hér fylgja mynd af honum. Sjáumst hressar!
Ranted at 10:31 f.h.♥

